Dagsbrún - 01.11.1895, Blaðsíða 3

Dagsbrún - 01.11.1895, Blaðsíða 3
163 — vinunum, sem þeir elska, ástvinunum þeiriva kærustu, börnunum elskulegu, fari í bið eilífa bál og kveljist þar og veinium alla eilífð ! gnísti tönnum af þessum djöfullegu kvölum, því að “þeirra ormur deyr ekki og þeirra cldur slöknar ekki.” og “mjór er sá vegur sem til lífsins iiggur, og fáir þeir, sem liann rata.” Þeir verða að trúa þessu, eðaað öðrum kosti að afneita Kristi. Það er enginn milliveg- ur til. Klerkar reyna vanalega að brciða yfir þetta með allra handa kattarklóri, því að þeir eru hræddir um, að alþýðan vakni, og fari þá að hugsa. Yér sjáum nú hér af eigin framburði prestsins, varnarmanni hinnar lútersku kyrkju, að Kristur hefir á helvíti trúað. En hvað var það fleira sem hann trúði ? Vér skulum rekja út í æsar iiugs- unina, sem klerkurinn benti oss á. Vér sjáum þá (Lúk. 17, 29) að Kristur segir: “En á þeim tíma þegar Lot fór út af Sódóma, rigndi eldi og brennisteini af himni, sem eyðilagði þá alla,” og rétt á undan segir hann “Þeir átu og drukku, tóku sér konur og giftust alt til þess dags, er Nói fór inn í örkina og ílóðið kom, sem eyðilagði þá alla.” Að hugsa sér það, að guðinn Kristur skyldi ekki vita betur, eða að guð-maðurinn Kristur skyldi trúa því, að eldi liafi rignt af liimni og brennisteini þegar Sódóma eyðilagðist! Nú var því vitanlega alvcg eins varið með Sódóma eins og með brunahraunin og eldgosin á íslandi. En eng- inn einasti íslendingur mundi nokkurn tíma trúa því, að sá eldur hafi af himnum komið, eða að brennisteinninn í Kröflunámum við Mývatn sé regn af himni. Eða þá flóðið lmns Nóa. Þeir eru víst harla fáir hinir lútersku, sem trúa því. Fyrirlestur vor um það (í öðrum árgangi Dagsbr.) stendur alveg óhrakinn enn, og hefir hann þó staðið í Dagsbrún og verið útgefinn sérstaklega, en það er ekki búið að hreifa eða hrekja einn einasta staf í honutn enn þá, og bíður liklega fyrst um sinn. Þá sér maður það, á Matt. 12, 40, að Kristur trúði því, (eins og sumir aðrir !!) að Jónas gamli hefði verið í kviði hval-fiskjarins í þrjá daga og þrjár nætur. En er ekki þetta og annað eins að kasta öllu viti og skynsemi og gera sig að dýrum í stað manna? Hvað eru þeir margir lútersku mennirnir sem trúa þessu. Oss getur ekki annað en sárnað að vita til þess, að nokkur landi vor skuli vera svo mikill andlegur aumingi, að gleypa þetta og annað eins, Það getur verið að vér minnumst á hvalsöguna áður en langt um líður, og viijum vér því ekki fara fleiri orðum um þetta. Þetta, að Kristur trúi á helvíti, á flóðið og Nóasöguna, á brenni-

x

Dagsbrún

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/1272

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.