Fréttablaðið - 15.01.2018, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 15.01.2018, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Máté Dalmay mate@365.is Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Gerðu betri kaup hjá okkur! Hringdu í 511 2777 2018 Nissan Leaf 2 Zero Edition 2017 Kia Optima 2017 Mercedes-Benz GLC 350e Verð 3.790.000 kr. Verð 7.400.000 kr. Verð 3.990.000 kr. Við finnum draumabílinn fyrir þig á betra verði! 2017 Mitsubishi Outlander Arctic Phev Ármúla 4-6, Reykjavík 511 2777 | sala@betribilakaup.is facebook.com/betribilakaup Forpöntun Verð 4.430.000 kr. Laugardaginn 20. janúar verða haldn- ir stórtónleikar hipphoppkvenna í Gamla bíói en sama dag verður mál- þing beintengt viðburðinum þar sem verður farið yfir uppgang og sögu femínisma í hipphoppheim- inum og fleira. Bak við viðburðinn er Puzzy Patrol, en það er viðburða- fyrirtæki sem sérhæfir sig í að skipu- leggja viðburði með listakonum og femínískum talskonum. Fyrirtækið var stofnað síðasta sumar af Valgerði Árnadóttur, en hún er kölluð Vala, og Ingibjörgu Björnsdóttur – Björgu. „Markmið okkar er að styrkja og styðja konur í listum og fræða almenning um femínisma og skapa jákvæðan umræðugrundvöll. Við stóðum fyrir okkar fyrsta viðburði í haust á Off-venue Airwaves á Sólon þar sem íslenskar og erlendar tón- listarkonur komu fram og strax á eftir hófum við að skipuleggja stórtónleika í Gamla bíói þar sem allar flottustu konur í hipphoppi á Íslandi munu koma fram. Þær Cell7, Reykjavíkur- dætur, Alvia, Fever Dream og Krakk og spaghettí ásamt nýliðanum Siggu Ey, sem er að feta sín fyrstu skref í bransanum, munu koma fram,“ segir Vala. Björg lauk námi í viðburðastjórn- un, „music and media management“, í London Metropolitan University og hefur eftir það séð um hina ýmsu viðburði en Vala er menntaður inn- kaupastjóri frá VIA University í Dan- mörku og hefur síðustu 12 ár unnið við innkaupastjórn, nú síðast hjá 66° Norður. „Nafn Puzzy Patrol kemur frá bandarísku kvennahreyfingunni sem spratt upp er Donald Trump var kosinn forseti BNA og vísar í slagorð þeirra, „Pussy grabs back!“ Hvaðan kemur hugmyndin um að halda málþing og tónleika í sama pakkanum? „Hugmyndin að því að sameina tónleika og málþing kom þegar Vala hitti Laufeyju Ólafsdóttur á förnum vegi og sú var þá að leggja lokahönd á BS-ritgerð sína í stjórn- málafræði, „Hipp-hopp feminismi, markaðsvæðing menningar og þöggun hins háværa minnihluta. Er hipp-hopp vettvangur fyrir femin- isma?“ Á sama tíma var einnig mikil gagnrýni á grein í Grapevine um flott- ustu nýliðana í hipphoppi þar sem ekki hafði þótt ástæða til að minnast á eina einustu konu þrátt fyrir að svo margar eru að gera góða hluti, það ýtti enn frekar undir nauðsyn þess að ræða þessa hluti; hvað veldur því að konur eru út undan þegar verið er að bóka á tónleika og tónlistarhátíðir og hvað getum við gert til að laga þetta?“ Af hverju veljið þið þessa tón listar­ stefnu sem vettvang ykkar? „Það er okkur mikilvægt að skapa jákvæðan umræðugrundvöll um femínisma og þykir okkur hipphopp góður grund- völlur til að byrja á þar sem mikill uppgangur er innan þessarar tón- listarstefnu og hún höfðar til ungu kynslóðarinnar.“ Á málþinginu mun Laufey Ólafs- dóttir leiða og kynna BS-ritgerð sína ásamt því sem Erpur Eyvindar, Anna Tara og fleiri úr bransanum sitja í umræðupanel. Stefnið þið á að skipuleggja einungis viðburði með konum? „Þó að við kjós- um að vinna bara með konum þá er það von okkar að konur í listum fái jafn mikið pláss og karlmenn og að hætt verði að tala um að þær séu að gera „kvennalist“ eða „kvenna- rapp“. Þær eru manneskjur sem eru að skapa list og það á ekki að flokka þær eftir kyni, hvað þá að setja þeim einhverjar reglur um hvað þær eiga að fjalla um eða hvernig þær eiga að haga sér. Við erum ekki að saka karla um að að sniðganga konur í brans- anum viljandi, en eitthvað veldur því hvernig landið liggur og saman getum við vonandi lagað það.“ Eru fleiri viðburðir í burðarliðnum hjá ykkur? „Við erum með ógrynni hugmynda að fleiri viðburðum og það var reyndar ætlun okkar að vera með erlendar tónlistarkonur á tónleikunum núna 20. janúar en við komumst fljótt að því að það er bölvað hark að vera nýr í þessum bransa, það var okkur mjög erfitt að finna samstarfsaðila og styrki svo við vonum bara að það seljist vel á þessa fyrstu tónleika svo við höldum okkur fyrir ofan núllið og getum haldið áfram. Draumurinn væri að hafa reglulega tónleika með íslenskum og erlendum tónlistarkonum og svo erum við líka opnar fyrir því að vinna með öðrum tónleikahöldurum að því að jafna kynjahlutföllin. Við erum ekki að þessu til að græða, við erum að þessu af hugsjón og því að við fílum góða tónlist.“ stefanthor@frettabladid.is Stofnuðu til styrkja konur í listum Björg og Vala vilja styðja konur í listum og fræða almenning um femínisma, meðal annars. FRÉTTABLAÐIÐ/VILhELM Við erum ekki að Saka karla um að að Sniðganga konur í branSanum Viljandi, en eitthVað Veldur þVí hVern- ig landið liggur og Saman getum Við Vonandi lagað það. viðburðafyrirtæki Viðburðafyrirtækið Puzzy Patrol stendur fyrir stórtónleikum kvenna í hipphopp- tónlist í Gamla bíói um næstu helgi og málþingi sama dag. Þær Valgerður Árna- dóttir og Ingibjörg Björnsdóttir eru stofnendur fyrir- tækisins og er það von þeirra að uppá- tækið geti jafnað hlut kvenna í listum. 1 5 . j a n ú a r 2 0 1 8 M Á n U D a G U r22 l í f i ð ∙ f r É T T a B l a ð i ð 1 5 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 9 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E B C -E 8 C 0 1 E B C -E 7 8 4 1 E B C -E 6 4 8 1 E B C -E 5 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 1 4 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.