Ljósið - 09.03.1908, Qupperneq 1
LJOSIÐ
TÍMARIT
ER MÓTMÆLIR VILLUKENNINGUM VÍGÐRA KENNIMANNA,
ER HVORKI VILJA NÉ GETA VARIÐ SIG FYRIR ANDANS
SVERÐI EINS MANNS.
RITSTJÓRI, ÚTGEFANDI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: EINAR JOCHUMSSON.
1. ál’
Reykjavík, Marz 1908.
O.blað.
Konungs iiiiinii
ort á Lögbergi Lí. ágúst 1 í>< >7'.
Stíg réttum fótum réttan á völl
vor réttarhái Islands jöfur;
þess hér óskar þjóð vor öll:
þú uppfyllir hennar kröfur,
svo vér náum fullu frelsi,
og frjálsir brjótum satans helsi.
Það oss eykur dáð og dug
að Dana-sjóli er frelsis vinur;
fámenn þjóð með hetju hug,
hetjuandinn ekki linur,
setur hátt sitt sigurmerki,
sjóli vertu með í verki.
Drottinn þinn er drottinn vor,
drottinn eflir frelsið manna,
að bændum vaxi þrek og þor
þú munt vitur ekki banna.
Friðrik kongur lifðu lengi,
lof þitt rómi íslands mengi.
Herra lít vor hraun og fjöll,
helga þjóð með frelsi réttu,
heyr, að þjóðin heldur snjöll