Ljósið - 13.03.1908, Qupperneq 2
50
LJÖSIÐ
er rósami andinn hans
undir silfurhærum.
Guðsson presti gefur frið
góðann allar stundir.
Vitið honum veitir lið,
vel á flestar lundir.
Breyting öll þá verður væg,
ef vit er mælikvarði;
bróðurleg fæst blessun næg
á bygðum herragarði.
Harpan þegar hættir slá
hér á rjóðri beru,
dregur til sín drottinn þá
dýrð í góða veru.
tilHallgríms biskups ogþjóna liaus, lútliersku
px'esta,nna,, um Hlóöíóvii og píslardauða o. 11.
Mottó:
Það vitrir bræður vitið nú:
vit gott skapar menning.
Jesú átti trúa trú,
tapist villu-kenning.
Allir, sem lært hafa kristindóminn, sem kirkjan
býður, og kennir enn í dag, þeir vita hvað lútherskir
prestar dást mikið að makalausri, föðurlegri forsjón
og kærleika hins alvitra föður, mildi og miskun við
sína útvöldu þjóð, Gyðingana, og þá ekki síður við
okkur kristnu mennina, sem höfum, eftir biskupsins og
prestanna orðum, öðlast barnarétt vorn fyrir einskæra