Ljósið - 07.04.1911, Blaðsíða 6
L J Ó S I Ð
(>2
Hrópaudi rödd.
Hugyekja eftir Einai* Joehuinssoii.
Tilfiinkaö Mattliiasí Joclmmssyni.
t*að er nokkuð áþreifanleg villa setn þið kennimenn
drottins bjóðið enn, og kallið náðarmeðul; blávatns skirn
á óvitum og orðmælgi úr klerkum vorum yfir börnum,
mállausum og skilningslausum. Það er gagnslaus athöfn,
sem einungis dregur peninga út, oft frá nauðlíðandi
fólki. Sál og líkami barna þarf að þroskast vel, áður en
larið er að kenna þeim að reikna, og verður kennarinn
þó að byrja á auðveldum dæmum fyrst; en þið prestar
gerið öfugt við aðra vísindamenn tímans.
Ivristindóms fræðarar eigið að nota vitið og sjá að
röng er aðferðin sem þið brúkið enn í dag, þó þið ættuð
að ala upp nýja menn kristilega. Fyrst eigið þér að kenna
Jesú Iírists fræði — náðarboðskapinn, hann er barna-
fræði, því Jesús var barnafræðari, en dómari þræla
Gyðinganna. Það spillir hreinu máli drottins að hræra
því innanum guðfræði Gyðinganna. Það er ekki svo
hægt, sem þið haldið, kirkjunnar þjónar, að nota þá
kristilegu blessun, þegar villimenn eru búnir að hræra
hana innanum bölvunina frá Gjrðingum og heiðingjum.
Sagan sýnir að Gyðingar lýsa guði eins oggrimm-
um, reiðigjörnum harðstjóra, enda var Móses þræla fursti
löggjafi þeirra þangað lil Kristur kom. Þú sér það víst,
minn elskulegi bróðir Matthías, að heimurinn þart að
fá nýjan kristindóm og nýja trú. Sá upplýsti kristni
heimur þarf að sameina sig og skírast endurfæðingar-
skírn. Það er bezt að byrja á íslendingum; þeir eru
frelsisvinir, þó viltir séu, eftir það langa þrældóms ok
sem á þeim hefir legið, en samt er þjóðin virðingarverð
af guði og góðum mönnum. En talaðu nú ekki lengur
upp úr svefni, orð á stangli drotni til dýrðar. Komdu
undir sama merkið og ég berst undir. Getirðu ekki með
góðri samvizku viðurkenl, að Kristur sé drottinn þinn
og herra, þá afneitaðu honum opinberlega, og kendu þá
trú er þér geðjast að. Minn drottinn og herra er Jesús
Kristurjá hans fótskör mun ég falla með heiðri Matthias ;