Ljósið - 15.05.1920, Blaðsíða 6

Ljósið - 15.05.1920, Blaðsíða 6
6 Mörður, heiðinn* Móeses | Menn ei kristnað getur, Ritning margur lærður les. | Lýgi vonda metur. Ivristur færði oss kært lífs orð. | Kaífas það vildi ekki. Hneikslið, lýgin myndar morð. | Menn sannleikann þekki. Guð vor faðir, góður, trúr, | Guðleysi ei styður. Herrann fór ei holdi úr | Helvítis til niður. Hirðir lífs sveif himins til; | Hann er drottinn manna. Eg biblíu skráða skil. | Skakka kenning banna. Segir vin hins sanna manns, | Sæll, en lítið fróður: Úr holdi til audskotans | Ei fór hirðir góður. Bókin stóra, biblían, | Bræður kristnar ekki. Eiga flestir afguð þann. | Eg bókina þekki. í ritning er engin sál | Eða mannleg tilfinning: Hún á ekki heyrn né mál. | Heimi gef eg upplýsing. Enginn hrekur orð mín sönn. | Eg á Krists trú góða. Vefst mín ekki tunga um tönn. | Tigna ei vantrú þjóða. Biblíu hef eg blöðum flett. | Bók þá drengir skoðið. Eg frjáls skal koma fyrir rétt. j Fúna hlýtur goðið. Jesús ekki batt í bók | Blessað frelsi manna. Jeg hans orðum trúa tók. | Trúvinglið því banna. Börnum kendi móðurmál | Mjög vel trúuð Þóra. Hennar var ei trúin tál | Trúna átti stóra. Nú er komin önnur öld | ÖlLbóktrúin slitin. Jeg ber frelsisvopnin völd. | Vitna það mín ritin. ' Heiðinn — dauður.

x

Ljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.