Ljósið - 15.05.1920, Page 7
/
Lýgin fer í syndasjó. | Syndir eiga að þverra.
Eg rétt kenni: Aldrei dó | Okkar góði herra,
Andans sverð ég brýni beitt, | Björtum sannleik unni.
Biskupum ei bjargar neitt | Blek úr ritningunni.
Biskup villir börn og hjú. | Bræður skírðir finni;
Skyldi’ ’ann eiga trúa trú | Til i eigu sinni.
Að kristna Jón, þann montna mann | Munég reyna lengur,
En sem kargur asni hann | Aftur á bak gengur.
Býsna þrár er biskup Jón, | Batna hlýtur karlinn.
Herrann veit að hann er flón, | Heimskri trú af fallinn.
Prísi allir prentfrelsið | Prentið svar frá biskup Jóni.
Drottinn öllum leggi Iið | Lýgin Jóns svo kafni’ á Fróni.
Mjög vel trúuð mín er sál, | Mínir bræður finna það.
Prentað breiðast mitt á mál | Mentaðan um höfuðstað.
Dýrð ég minum drotni gef, | Djörfung þori sýna.
Rimskáld mega reka nef | Rímgalla í mína.
Yisa.
Virtu sannleik vinur minn,
vantrúin svo kafni.
Eg bið skýrist andi þinn
í guðs sonar nafni.
Einar Jochumsson.
f