Víkurfréttir - 25.11.2004, Síða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
stuttar
F R É T T I R
Kór Fjölbrautaskóla Suðurnesja heldur klukkustundar langa
söng skemmt un í Duus
húsum í Keflavík, fimmtu-
dagskvöldið 25. nóv. n.k. kl.
20. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill á meðan hús-
rúm leyfir.
Kór inn starfar í tveim ur
hlutum. Kór 1 syngur ein-
raddað. Stjórnandi hans er
Kjartan Már Kjartansson. Á
efnisskrá hans eru létt lög,
bæði íslensk og erlend. Und-
irleikari á hljómborð er Guð-
brandur Einarsson.
Kór 2 fæst við fjölraddaðan
söng og stjórnandi hans er
Ingi Garðar Erlendsson.
Þetta er í fjórða sinn sem
kórinn stendur fyrir söng-
skemmtun sem þessari og
hafa undirtektir alltaf verið
mjög góðar. Foreldrar, ætt-
ingjar og vinir kórfélaga eru
sérstaklega hvattir til þess að
mæta á söngskemmtunina.
Söngskemmtun
Kórs FS í Duus
húsum
Eldur kviknaði í bifreið á
Strandarheiði á Reykjanes-
braut rétt eftir miðnætti í nótt.
Ökumaður bifreiðarinnar forð-
aði sér út úr bifreiðinni sem
er af gerðinni Isuzu Trooper.
Slökkvilið Hafnarfjarðar var
kallað út til að slökkva eldinn
sem gekk greiðlega. Bifreiðin
er mikið skemmd ef ekki
ónýt, en talið er að eldurinn
hafi kviknað í vél bílsins.
VF-mynd/Héðinn Eiríksson
Kviknaði í bifreið
á Reykjanesbraut
Fréttavaktin í síma
898 2222
allan sólarhringinn
Efni til fréttadeildar
berist á tölvupósti á
netfangið:
hilmar@vf.is
Hjör dís Ár na dótt ir og útgáfufyrirtækið G e i m s t e i n n f e n g u
Súluna, menningarverðlaun
Reykjanesbæjar fyrir fram-
lag sitt til menningarmála í
bænum.
Viðurkenningarnar voru veittar
við hátíðlega athöfn í Listasafni
Reykjanesbæjar í Duushúsum
á þriðjudagskvöld, en við sama
tækifæri afhenti Gunnar Odds-
son, formaður menningar-,
íþrótta- og tóm stunda ráðs
Reykjanesbæjar menningar-
styrki ársins.
Styrkhafar í ár eru Kvennakór
Suðurnesja, Nemendafélag FS,
Rythma- og blúsfélag Reykja-
nesbæjar, Arnar Fells, Rúnar
Júlíusson, Ísmedia, Frostrósir,
Suð- suðvestur, auk fjögurra tón-
skálda sem sömdu tónlist sem
var flutt á síðustu Ljósanótt.
Þá var einnig undirritaður sam-
starfssamningur milli Byggða-
safns Reykjanesbæjar og Iðnað-
armannafélags Suðurnesja um
iðnminjasýningu og varðveislu
muna og gagna sem tengjast fé-
laginu á liðnum árum.
Geimsteinn, sem er elsta starf-
andi útgáfufyrirtæki landsins,
fær Súluna fyrir framlag sitt til
tónlistarlífs á svæðinu. Í hljóð-
veri Geimsteins, Upptökuheimil-
inu, hafa margir af bestu tónlist-
armönnum Suðurnesja stigið sín
fyrstu spor, auk þess sem margir
af þekktustu listamönnum þjóð-
arinnar hafa hljóðritað diska
sína þar. Þá hefur Geimsteinn
gefið út á annað hundruð plötur
og diska með a.m.k. 180 lista-
mönnum frá stofnun fyrirtækis-
ins árið 1976.
Geimsteinn er sannkallað fjöl-
skyldufyrirtæki þar sem Rúnar
Júlíusson rekur fyrirtækið ásamt
konu sinni Maríu Baldursdóttur,
sonum sínum tveimur og Þóri
Baldurssyni, mági sínum.
Vel þótti hæfa að þakkarræða
Rúnars og Maríu var fallegur
söngur við píanóundirleik Bald-
urs, sonar þeirra.
Hjördís Árnadóttir hlýtur Súl-
una 2004 fyrir þróttmikið starf
til að byggja upp menningarlíf
bæjarins undanfarin tuttugu
ár. Hjördís var lengi ein af drif-
fjöðrum Leikfélags Keflavíkur
og formaður þess í mörg ár. Átti
hún sinn þátt í að Leikfélagið
komst að lokum í eigin húsnæði
á sínum tíma.
Þá hef ur Hjördís gegnt for-
mennsku í Félagi myndlistar-
manna í Reykjanesbæ síðustu
þrjú árin. Félagið hefur unnið
mikið og gott starf til fram-
dráttar myndlistinni og stofn-
aði, undir forystu Hjördísar,
Myndlistaskóla Reykjanesbæjar
sem starf ræktur er í Svarta
Pakkhúsinu að Hafnargötu. Þar
rekur félagið einnig gallerý þar
sem félagsmenn geta sýnt og selt
verk sín.
Hjördís hefur verið með einka-
sýningar á Ljósanótt auk þess
sem hún hefur tekið þátt í sam-
sýningu félagsins.
Hjördís játti því í ræðu sinni
að hún væri mikil hamhleypa í
þessum efnum og þakkaði fjöl-
skyldu sinni fyrir stuðninginn
sem og hinum mörgu sem hafa
unnið með henni í gegnum tíð-
ina. Að ræðu sinni lokinni af-
henti hún Björk Guðjónsdóttur,
forseta bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar, að gjöf glæsilegt málverk
eftir sjálfa sig.
Hjördís og Geimsteinn fengu Súluna
Menningarverðlaun Reykjanesbæjar 2004
M
EN
N
IN
G