Víkurfréttir - 25.11.2004, Blaðsíða 30
30 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Úrslit vikunnar
Bikarkeppni Evrópu
Keflavík-Bakken 80-81
Kef: Gunnar Einarsson 25,
Nick Bradford 23, Anthony
Glover 11/14
BB: Jensen 20, Christoffer-
sen 18/11.
Reims- Keflavík 94-106
Kef: Anthony Glover 29/12,
Nick Bradford 29, Magnús
Gunnarsson 25, Jón Norðdal
Hafsteinsson 10.
Reims: Fletcher 26, Fein 20,
Ignatowicz 12.
Hópbílabikar karla
Keflavík-Njarðvík 78-84
Kef: Anthony Glover 31/11,
Nick Bradford 13/18.
Nja: Frið rik Stef áns son
16/10, Ant hony Lackey
16, Matt Sayman 16, Páll
Kristinsson 12/12, Brenton
Birmingham 12.
Grindavík-Snæfell 75-82
Gri: Þorleifur Ólafsson 29,
Darrel Lewis 21, Guðlaugur
Eyjólfsson 11.
Snæ: Desmond Peoples 18,
Pierre Green 17, Sigurður
Þorvaldsson 12/10, Pálmi
Sigurgeirsson 11, Hlynur
Bæringsson 11/11.
Njarðvík-Snæfell 79-84
Nja: Frið rik Stef áns son
24/10 Anthony Lackey 20,
Matt Sayman 12, Brenton
Birmingham 11.
Snæ: Desmond Peoples 22,
Pierre Green 20, Hlynur Bær-
ingsson 14/14, Sigurður Þor-
valdsson 13.
1. deild kvenna
Keflavík-Njarðvík 96-60
Kef: Reshea Bristol 22/10/12,
Birna Valgarðsdótt ir 18,
Anna María Sveinsdóttir 12,
Bryndís Guðmundsd. 11,
Rannveig Randversdóttir 10.
Nja: Jaime Woudstra 24/13,
Sæ unn Sæ munds dótt ir
13/11, Dianna Jónsdóttir 11.
Hópbílabikar kvenna
Keflavík-Grindavík 83-41
Kef: Birna Valgarðsdóttir 32,
Bryndís Guðmundsdóttir
19, Reshea Bristol 12.
Gri: Erla Þorsteinsdóttir 13.
Um helg ina fór 10-11 mótið fram í annað skipti og þótti takast
mjög vel.
Barna- og unglingaráð Kefla-
vík ur og Njarð vík ur héldu
mótið í sameiningu, þar komu
saman rúmlega 300 keppendur
í 5. flokki drengja í knattspyrnu,
en leikið var í Reykjaneshöll.
Mótinu var skipt upp í deildir
sem voru kenndar við þjóðlönd.
Í argentínsku deildinni vann lið
Njarðvíkur og HK vann í B-úr-
slitum
Í Brasilísku deildinni van ÍA og
HK vann í B-úrslitum.
Í Chile-deildinni vann HK og
Keflavík vann í B-úrslitum
Í dönsku deild inni sigr aði
Þróttur frá Reykjavík og Reynir/
Víðir vann í B-úrslitum.
Í þeirri ensku sigraði Njarðvík
og Keflavík unnu í B-úrslitum.
Framkvæmd mótsins var með
miklum ágætum og stóðust
tímaáætlanir mjög vel þar sem
allir sluppu við leiðindatafir.
Foreldrar iðkenda stóðu sig með
prýði að því að fram kemur í
fréttatilkynningu frá mótshöld-
urum. Framlag þeirra á mótum
er mikilvægt til að hægt sé að
halda svona umfangsmikið mót.
Fyrir utan keppendur sem voru
á fjórða hundrað, eins og áður
sagði, voru um 40 þjálfarar og
farastjórar. Fyrir utan að keppa
í fótbolta var farið í bíó, sund
og heimsótt flugskýli Flugleiða
á Keflavíkurflugvelli. Barna
og unglingaráð Keflavíkur og
Njarðvík vilja þakka sérstaklega
þeim félögum sem sendu kepp-
endur á mótið Akranes, ÍR, HK,
Hamar, KFR og Reynir/Víðir,
foreldrum iðkenda fyrir frábæra
aðstoð, öllum samstarfsaðilum
þ.e. Langbest, MÍT, Nýja bíó,
SBK, starfsmönnum í flugskýli
Flugleiða, Sundhöll Keflavíkur,
Reykjaneshöll og svo aðalstyrkt-
araðila mótsins, 10 - 11.
Glæsilegt 10-11 mót
í Reykjaneshöll
Þróttur tók þátt í bikarmóti SSÍ
Sunddeild Þróttar í Vogum tók þátt í Bikarmóti Sund-sambands Íslands í fyrsta
sinn um síðustu helgi.
Sundstarfið í Vogum hefur verið
á mikilli uppleið og eru nú rúm-
lega 60 krakkar á aldrinum 5-13
ára að æfa hjá félaginu. 11 þeirra
voru í eldlinunni um helgina og
sagði María Jóna Jónsdóttir, yfir-
þjálfari hjá Þrótti, í samtali við
Víkurfréttir að gengið hafi verið
mjög gott.
„Okkur gekk ótrulega vel. Við
vorum ekki langt frá því að
vinna okkur upp um nokkur
sæti, en við vorum með lang
yngsta liðið. Meðaladurinn hjá
okkur ver um 12 ár á meðan
hin liðin eru með 18 ára meðal-
aldur. Þetta var frábær reynsla
fyrir krakkana og við stefnum á
að vera með á næsta ári.”
Deildin var stofnuð árið 2000
og hefur verið stöðug aukning í
iðkendafjölda síðan. Framtíðin
í Vogum er björt og verður
gaman að sjá hvern ig þeim
reiðir af í framtíðinni.
Krakkarnir fengu nýja liðsbúninga afhenta
um daginn og skörtuðu þeim á Bikarmótinu.
ÞAÐ SKIPTUST Á SKIN OG SKÚRIR HJÁ KEFLVÍKINGUM Í
VIKUNNI, EN ÞEIR LÖGÐU FRANSKA LIÐIÐ REIMS Á ÚTIVELLI Í
GLÆSILEGUM LEIK Á ÞRIÐJUDAGINN. ÞAÐ BÆTTI UPP FYRIR
VONBRIGÐI SÍÐUSTU LEIKJA EN ÞEIR TÖPUÐU NAUMLEGA GEGN
BAKKEN BEARS Á HEIMAVELLI Í EVRÓPUKEPPNINNI OG VORU
SVO SLEGNIR ÚT Í UNDANÚRSLITUM HÓPBÍLABIKARSINS AF
NJARÐVÍKINGUM. ENN MUN MÆÐA Á KÖPPUNUM UM HELGINA
ÞEGAR ÞEIR MÆTA SNÆFELLINGUM Í 32-LIÐA ÚRSLITUM
BIKARKEPPNINNAR.
VF-mynd/Hilmar Bragi
Elsku Aron.
Til hamingju
með 10 ára
afmælið
sem var
þann 15.
nóvember
sl.
Afmæliskveðja, mamma,
pabbi, Lovísa og Leifur.
ÍRB tókst ekki að verja titil sinn á Bikarmóti Sund-sambands Íslands um síð-
ustu helgi.
Lið ÍRB hafnaði í öðru sæti
á eftir Ægi, en SH var í því
þriðja. B-lið ÍRB hreppti einnig
silfrið í 2. deildinni.
Árngurinn er góður en jafnast
þó ekki á við það sem ÍRB á að
venjast, enda var liðið handhafi
allra stóru titlanna hér á landi
fyir Bikarmótið. Aðstandendur
sundliðs ÍRB segja að í gangi
séu ákveðin kynslóðaskipti í
liðinu sem ekki náðist að brúa
fyrir bikarkeppnina í ár. Mótið
i ár var engu að síður betra en
það í fyrra að mörgu leyti þar
sem má nefna að mikið var um
góðar bætingar.
Árangur B-liðsins gefur einnig
til kynna að þessi kynslóða-
skipti taki fljótt af því að ungu
krakkarnir sem þar voru að
keppa stóðu sig afbragðsvel.
Ástæðan fyrir því að senda B-
lið frá ÍRB var einmitt sú að
leyfa þeim að spreyta sig svo
þau verði til í slaginn þegar
fram líða stundir.
Þar stóðu þau sig svo sannar-
lega vel og urðu í öðru sæti á
undan liðum eins og Vestra,
Ár manni og Fjölni. ÍRB-B
var ekki spáð góðu gengi af
formönnum og þjálf urum
annarra liða og kom það því
öðrum félögum gríðarlega
á óvart hversu sterkur yngri
hópurinn var. Eitt met var sett
af liðsmönnum ÍRB, en það
var Gunnar Örn Arnarson
sem setti glæsilegt sveinamet í
200m bringusundi.
Silfur í báðum deildum
á bikarmóti SSÍ