Víkurfréttir - 07.12.2006, Síða 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 48. TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR
Mannlífið og menningin:
Laugardaginn 2.desem-ber opnaði Gunnhildur Þórðardóttir sýninguna
“Samræmi-Identity” í Suðsuð-
vestur og er þetta fyrsta einka-
sýning hennar á Íslandi, áður
hefur hún tekið þátt í samsýn-
ingum hér heima og haldið
einkasýningar í Englandi og
Kaupmannahöfn.
Gunn hild ur vinn ur út frá
hugmyndum rússnesk/banda-
ríska sálfræðingsins Abraham
Maslow um þarfapýramídann
og notar til þess liti og hluti/
tákn tengdum hversdagsleik-
anum. Á sýningunni verða mál-
verk og skúlptúrar flestu unnið
þetta ár.
Gunnhildur er með BA próf í
fagurlistum og listasögu frá
Listaháskólanum í Cambridge
og MA gráðu í liststjórnun frá
Ashcroft International Business
School frá sömu borg. Hún
er nú búsett í Keflavík ásamt
manni sínum og sonum þeirra.
Dansarar úr Reykja-
nesbæ á verðlaunapall
Laugardaginn 25. nóvember var
keppt í Dansbikarnum 2006. Þessi
keppni er haldin af JSB. Í ár tóku 106
keppendur þátt, keppt var í tvemur
aldursflokkum 10-12 ára og 13-15
ára. Keppt var í einstaklings og hópa-
keppni. Það er gaman frá því að segja
að í hópakeppni 10-12 ára unnu 3
stúlkur úr Reykjanesbæ. Þær heita
Aníta Ósk Georgsdóttir 11 ára, Krist-
jana Hanna Benediktsdóttir 12 ára,
Ingibjörg Ásta Bjarnadóttir 11 ára.
Guðmundur Maríasson sýnir í Bling Bling við Hafnargötu nú í desember. Sýningin samanstendur af
blönduðum verkum Guðmundar, bæði óhlutbundnum og fígúratífum og eru viðfangsefnin af ýmsum
toga. Á sýningunni eru 18 olíumálverk, öll máluð á þessu ári. Um sölusýningu er að ræða. Sýningin
er opin á afgreiðslutíma verslunarinnar og vonast Guðmundur til að sjá sem flesta.
FRÉTTASÍMINN
SÓLARHRINGSVAKT
898 2222
„Samræmi-Identity“
í Suðsuðvestur
Guðmundur Maríasson sýnir í Bling Bling
Guðmundur við eitt
verkanna í Bling Bling.