Víkurfréttir - 22.07.2004, Síða 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
!
"
#$%
#&
#'#$%
#&
#()
*+, ,*-./0
1+01
! ! "#$ %&%$ '(( )&#&
*
+
,
-
*
. ,*
/
0
1 23/ #)& . ,*
! (
Símamyndir
➤ Húsnæðisvandi sýslumannsembættisins heldur áfram:
➤ Ekki allir með handfrjálsan:
E kki hefur enn verið tek-in ákvörðun um bygg-ingu stjórnsýsluhúss á
Keflavíkurflugvelli. Málið hef-
ur síðustu mánuði verið til um-
ræðu innan utanríkis- og fjár-
málaráðuneytis en utanríkis-
ráðuneytið hefur forræði í mál-
inu. Í stjórnsýsluhúsinu verða
sýslumannsembættið á Kefla-
víkurflugvelli og embætti flug-
vallarstjóra en sýslumanns-
embættið hefur átt við veruleg-
an húsnæðisvanda að stríða
síðustu misseri. Komið hefur
verið upp gámum við lögreglu-
stöðina að Grænás sem hýsa
skrifstofur embættisins. Áætl-
aður byggingakostnaður
stjórnsýsluhússins er á bilinu
800 til 1000 milljónir króna.
Hjálmar Á rnason alþingismaður
segir að unnið hafi verði lengi og
vel að málinu en að fjárheimild
hafi ekki fengist. „ Það er búið að
undirvinna málið að öllu leyti.
Fjármálaráðuneytið hefur fallist á
forsendurnar fyrir stjórnsýslu-
húsinu, en einungis stendur eftir
að taka ákvörðun um að fara í
framkvæmdir og ég trúi að það
muni gerast við næstu fjárlaga-
gerð.“
Aðspurður sagði Hjálmar þörfina
á stjórnsýsluhúsinu vera til stað-
ar; flugumferð sé vaxandi og
mikil þrengsli og aðstöðuleysi sé
hjá lögreglumönnum hjá emb-
ættinu. „ Það er auðvitað óþolandi
hvað búið er að draga málið og
að fjárheimildir fáist ekki, eftir
alla þá mjög góðu faglegu vinnu
sem búið er að vinna af hálfu
sýslumannsembættisins. Það er
allt sem mælir með því að húsið
verði byggt og ég sé engin rök
gegn því,“ sagði Hjálmar í sam-
tali við Víkurfréttir.
Óvissa með stjórnsýsluhús
á Keflavíkurflugvelli
L ögreglan í Keflavík hef-ur, það sem af er árinu,stöðvað eitt hundrað og
fjóra ökumenn og sektað fyrir
notkun farsíma við akstur án
handfrjálsbúnaðar. Það er
töluverð fjölgun frá síðasta ári
en þá voru einungis 72 kærðir.
Svo virðist sem að júní sé tími
þeirra sem tala í símann við akst-
ur en þá voru 28 kærðir á móti
aðeins einum í janúar mánuði.
Jón Halldór Eðvaldsson, þjón-
ustustjóri Símanns í Reykjanes-
bæ, sagði í samtali við Víkur-
fréttir að þeir séu búnir að selja
2-3 þúsund pakka af handfrjáls-
um búnaði undanfarin 2 ár. „ Það
hefur gerst að fólk hafi verið sek-
tað af lögreglu og komið til okk-
ar strax eftir það og keypt af okk-
ur búnað,“ sagði Jón. Handfrjáls
búnaður kostar allt frá þúsund
krónum á meðan sektin er fimm
þúsund krónur.
104 kærðir vegna farsíma
stuttar
f r é t t i r
Hundur hélt vöku fyrir
Sandgerðingum
■ Geltandi hundur í Sandgerði
varð þess valdandi að íbúar í
nokkrum húsum í Sandgerði
fengu ekki svefnfrið í síðustu
viku. Hundurinn hélt vöku fyrir
íbúunum en hann var utandyra
og greinilega ósáttur við að kom-
ast ekki inn til eigenda sinna.
Lögreglan í Keflavík fékk til-
kynningu um hundinn í gær-
kvöldi og var eigendum hundsins
gert að taka seppa inn svo íbú-
arnir fengju svefnfrið.
Of ungir til að keyra
■ Tveir drengir sem höfðu
ekki aldur til að keyra bifreið
voru stöðvaðir í Grindavík í
síðustu viku. Farið var með
drengina heim til sín og rætt við
foreldra þeirra en frá þessu
greinir í dagbók lögreglunnar í
Keflavík.
Þetta er hún Ella sem var 21 árs, 11. júlí.
Með kærri kveðju frá Fríðu:)
Dóra og Anna í gír!
Ægir í góðum gír í Hrísey:)
Starfsemi lögreglumanna á
Keflavíkurflugvelli er hýst í
þessum gámum fyrir utan
flugstöðina.
Margeir Jónsson látinn
Margeir var í umsvifamiklum atvinnurekstri í Kefla-
vík um langt árabil. Hann var aðaleigandi og fram-
kvæmdastjóri útgerðar og fiskvinnslufyrirtækisins
Rastar h.f. í Keflavík frá stofnun þess 1945
og tók þátt í rekstri síldarsöltunarstöðva á Austurlandi
og á Norðurlandi á síldarárunum.Hann stofnaði Reið-
hjólaverkstæði í Keflavík 1932 og rak það til 1966.
Margeir var mikill félagsmálamaður, hann átti sæti í
Bæjarstjórn Keflavíkur og var formaður Rafveitu-
nefndar Keflavíkurbæjar um langt árabil,
einnig var hann Slökkviliðsstjóri í Keflavík frá 1940
til 1960.
Margeir var mjög virkur í ýmsum félagsmálum at-
vinnurekenda og þá sérstaklega sjávarútvegsins.
Hann var einn af stofnendum Málfundafélagsins
Faxa, var í forystu Ungmennafélags Keflavíkur, vann
að bindindismálum og var um tíma æðstitemplar
stúkunnar. Margeir var sæmdur riddarakrossi hinnar
Ísl. fálkaorðu fyrir störf sín
Margeir Jó nsson fyrrverandi útgerðarmaður og
fiskverkandi lé st á Landspítalanum sunnudaginn
18. júlí sl. Margeir var fæ ddur 23.nó vember
1916 í Stapakoti í Innri Njarðvík. Foreldrar hans
voru Jó n Jó nsson útvegsbó ndi og kona hans
Guðrún Einarsdó ttir.
Margeir giftist Á stu Ragnheiði Guðmundsdó ttir
19.nó vember 1939, Á sta lé st 20. okt. 1999.
92% lestur á Suðurnesjum
- samkvæmt könnun Gallup fyrir Víkurfréttir
Auglýsingasíminn er 421 0000
30. tbl. 2004LOKA3 21.7.2004 16:52 Page 4