Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.07.2004, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 22.07.2004, Blaðsíða 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! H afnar eru dýpkunar-framkvæmdir viðGrindavíkurhöfn. Alls er gert ráð fyrir að sprengja þurfi 14 þúsund fermetra svæði í höfninni og er þykkt klappanna sem sprengja þarf upp í 5 metra á þykkt. Gert er ráð fyrir að alls verði sprengt 106 sinnum í höfninni. Svæð- inu er skipt upp í reiti sem eru um 150 fermetrar hver. Í hverj- um ramma eru boraðar 18 holur og er frá 13 og uppí 30 kílóum af sprengiefni komið fyrir í hverri holu. Búist er við að sprengingum ljúki í febrúar en það er fyrirtækið Hagtak hf. sem vinnur að dýpkun hafnarinnar. Íbúar Grindavíkur geta orðið fyr- ir einhverju ónæði vegna spreng- inganna og hefur Hagtak hf. sent hafnaryfirvöldum bréf þar sem sprengivinnan er útskýrð. Sprengt verður 106 sinnum ➤ Dýpkun Grindavíkurhafnar: D ýpka á innan hafnar í 8og 9 metra dýpi. Eftirdýpkun og gerð nýrrar viðlegu er unnt að taka við stærri skipum. Skip fara stöðugt stækkandi og til þess að missa þau ekki frá bænum er þessi dýpkun nauðsynleg. Botn hafnarinnar er á klöpp að mestum hluta og er ekki unnt að grafa upp efnið sem fjarlægja þarf án þess að sundra því fyrst. Til þess eru notaðar kerfisbundn- ar sprengingar. Þessar spreng- ingar fara í taugarnar á fólki sem ekki er vant þeim og valda áhyggjum um eignatjón og jafn- vel slys. Það er því rétt að fjalla aðeins um þessar sprengingar mönnum til nokkurs fróðleiks og vonandi hugarhægðar. Alls er gert ráð fyrir að sprengja þurfi um 14.000 fermetra svæði í höfninni. Þykkt klappar sem sprengja þarf er frá 0 og upp í 5 m. Svæðinu er skipt upp í reiti sem eru um 150 fermetrar. Borpramma er stillt upp á reitinn og frá honum eru boraðar 18 hol- ur. í holunum er komið fyrir sprengiefni sem heitir Minex. í hverja holu eru sett frá 13 og uppí 30 kg eftir þykkt klappar. Hvert kg af sprengiefni í neðan- sjávarsprengingum sundrar um 3 tonnum af harðri klöpp. Í holunum er komið fyrir kveiki- búnaði sem kemur sprenging- unni af stað. Í kveikibúnaðinum eru tímastillingar sem gera það að verkum að aðeins ein hola springur í einu. Fyrsta holan springur um hálfri sekúndu eftir að hleypt er af og sú síðasta um hálfri sekúndu síðar. Fyrsta hol- an lyftir efninu aðeins og áður en það er fallið niður aftur springur sú næsta og þannig koll af kolli uns allar holur eru sprungnar. Áhrif frá svona sprengingum eru tvenns konar. Það sem fólk uppi í bæ finnur er höggbylgja sem berst með berggrunninum. Berggrunnur á Íslandi er yfirleitt lagskiptur og byggður upp af hraunum úr mörgum eldgosum með mýkri og brotnari lögum á milli. Höggbylgja berst oft vel innan sama hraunlags en demp- ast á milli hraunlaga. Þannig finnst höggbylgjan helst þar sem hús eru grunduð á sama hraun- lagi og verið er að sprengja. Í húsum í meira en um 80 m fjar- lægð á titringur ekki að vera verulegur eða valda tjóni. Hins vegar getur hann fundist miklu lengra í burtu. Glös sem standa þétt saman geta glamrað og betra er að hlutir séu ekki látnir standa tæpt, þannig að þeir falli við minnsta högg eða hristing. Hús sem standa í um 30 til 80 m fjar- lægð verða meir vör við höggin. Ekki er hætta á skemmdum á húsum en betra er að huga að lausum hlutum. Þar geta nálar í hljómflutningstækjum hlaupið til og svo framvegis. (Í Grindavík eru engin íbúðarhús á þessu belti. Hins vegar er atvinnuhúsnæði á beltinu). Í mannvirkjum sem standa nær en 30 metra getur högg við sprenginguna orðið töluvert og þá talið betra að slökkva á tölvum og þess háttar. (Í Grindavík eru einungis hafnar- mannvirki innan 30m. ) Hin bylgjan sem myndast fer eft- ir vatninu og finnst ekki á landi. Hún er dempuð með því að blása þrýstilofti í gegnum sjóinn. Þeg- ar bylgjan lendir á loftbólunum þá eyðist hún. Þessi bylgja drep- ur dýr sem eru í sjónum næst sprengingunni. Hún er ónotaleg fyrir menn sem eru neðan vatn- borðs í skipum til dæmis ofan í vélarúmi, en ekki hættuleg. Alls er gert ráð fyrir að sprengt verði 106 sinnum í höfninni. Áður en sprengt er er gefið hljóðmerki. Venjulega er sprengt síðdegis virka daga. Í sumar er hugsanlegt að unnið verði á vökt- um og verður þá einnig sprengt að morgni dags. Gangi allt að óskum og unnið verði að hluta á vöktum lýkur sprengingum fyrir jól en líklegra er þó að þeim ljúki um miðjan febrúar. Ekki verður unnið milli jóla og nýárs. Okkur hjá Hagtaki þykir miður að raska ró bæjarbúa og reynum eftir bestu getu að hafa þá röskun sem minnsta. Aðalsteinn Hallgrímsson Framkvæmdastjóri Hagtaks ➤ Aðsend grein vegna framkvæmdanna í Grindavík: Byrjað er að bora fyrir sprengjuholum í Grindavíkurhöfn og eru tveir prammar komnir í höfnina. Dýpkun Grindavíkurhafnar Á góðviðrisdögum líkumþeim verið hafa upp ásíðkastið fyllast sund- laugarnar af fólki sem notar sólarstundirnar til að sleikja sólina. Krakkarnir hópast í laugarnar og hefur án efa verið fjölmennt í sundlaugum á Suðurnesjum síðustu daga. Grindvíkingar láta ekki sitt eftir liggja í þessum efn- um og er sundlaugin í bænum mikið notuð. Steikjandi hiti og sól er við sundlaugarbakkann og nota sundlaugargestir svalt sund- laugarvatnið til að kæla sig niður. Það er ekki annað hægt að segja en að sólin geri lífið skemmtile- gra, allavega voru þessar hressu stelpur í Grindavík hinar kátustu. Sleikja sólina í sundil i j li í i 30. tbl. 2004LOKA3 21.7.2004 15:38 Page 20

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.