Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.07.2004, Síða 11

Víkurfréttir - 22.07.2004, Síða 11
VÍKURFRÉTTIR I 30. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 22. JÚLÍ 2004 I 11 ➤ Hestamenn fjölmenna í Reykjanesbæ: S trákar úr 11. flokki Keflavíkur í körfuknattleik hlupuá mánudaginn áheitahlaup til styrktar keppnisferð tilEnglands. Strákarnir hlupu frá Keflavík sem leið lá í gegnum Garð og Sandgerði og aftur til baka og komu til baka þreyttir en ánægð- ir. Strákarnir fara út á laugardag og vilja koma á framfæri þökk- um til allra sem studdu við bakið á þeim. Safna fyrir körfuboltaferð H estamannafélagið Mánistendur um helgina fyr-ir Íslandsmótinu í hestaíþróttum. Mótið verður að sjálfsögðu eitt það stærsta á árinu þar sem 340 keppendur mæta til leiks og hefst keppni á hádegi á morgun og stendur fram á sunnudag. Að undanförnu hafa verið miklar framkvæmdir við keppnissvæðið við Mánagrund og er aðstaða orðin öll hin glæsilegasta. M.a. er komin upp glæný skeiðbraut auk þess sem byggt hefur verið nýtt dómarahús við aðalvöllinn. Mar- geir Þorgeirsson, formaður Mána sagði í samtali við Víkurfréttir að mikill spenningur væri í mönn- um fyrir mótið. „Það er löngu kominn tími á að halda mót hér þar sem við höfum ekki haldið Íslandsmótið síðan 1982. Ég vil hvetja bæjarbúa til að mæta á svæðið og fylgjast með enda verður hægt að sjá bestu hesta og knapa landsins frá morgni til kvölds alla helgina.“ Mikill vöxtur hefur verið í hesta- mennsku á svæðinu á síðustu árum og eru félagar í Mána nú um 400 talsins. Gengi þeirra á mótum hefur verið með miklum ágætum og er þar skemmst að minnast frábærs árangurs á landsmótinu fyrir skömmu. Íslandsmót í hestaíþróttum á Mánagrund um helgina Hestamaður við æfingar á keppnissvæði Mána á Mánagrund Samkaup er einn stærsti styrktaraðili Íslandsmótsins. Hér sjást Margeir Þorgeirs- son, formaður Mána og Skúli Skúlason, starfsmannastjóri Samkaupa, ásamt tveimur af keppnismönnum Mána. Skúli sagði að það hafi vakið athygli Sam- kaupa sú mikla áhersla sem Máni hefur lagt í unglingastarfið og þátttöku fjölskyld- unnar í íþróttinni. „ Þetta viljum við hjá Samkaupum viðurkenna og leggja til okk- ar framlag til áframhaldandi uppbyggingar. Það er líka viðurkenning fyrir Mána að halda Íslandsmót unglinga og mikilvægt að það fari vel fram í alla staði.“ 30. tbl. 2004LOKA 21.7.2004 12:46 Page 11

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.