Víkurfréttir - 30.03.2017, Page 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagurinn 30. mars 2017 • 13. tölublað • 38. árgangur
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Hafnargötu 20, 230 Reykjanesbær S: 420 4000
Guðlaugur H. Guðlaugsson lögg. fasteignasali
Halldór Magnússon lögg. fasteignasali
Brynjar Guðlaugsson aðstm. fasteignasala
Haraldur Freyr Guðmundsson aðstm. fasteignasala
studlaberg@studlaberg.is studlaberg.is
■ Einn vorboðinn á Suðurnesjum er fuglinn Tjaldur en hann er meðal nokk-
urra fastagesta á Hólmsvelli í Leiru á hverju ári. Hann er mættur til leiks en
nokkur tjaldapör halda jafnan til í Leirunni. Eftir ótrúlega mildan vetur er
allt að fara í gang hjá kylfingum og fyrsta opna vormótið verður á Hólms-
velli á laugardag. Þá verður opið á sumarflatir á sunnudag. „Eftir það er bara
komið sumar og völlurinn opinn,“ segir Gunnar Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri GS sem hefur ekki áður upplifað frostlausan vetur í Leirunni.
Steinþór Jónsson formaður FÍB og gamla áhugahópsins um tvöföldun Reykjanesbrautar mætti á opinn fund í Stapa með skófluna sem Sturla Böðvarsson þáverandi
samgönguráðherra fékk afhenta árið 2000 á sama stað. Í kjölfarið fór boltinn að rúlla á Reykjanesbrautinni. Með Steinþóri eru Jón Gunnarsson, samgönguráðherra og
Guðbrandur Einarsson, og Guðlaugur H. Sigurjónsson frá Reykjanesbæ en þeir fjórir sátu fyrir svörum á fundinum í Stapa. Jón ráðherra segir fátt annað í stöðunni til
að flýta framkævæmdum en gjaldtöku en vill taka tillit til þeirra sem nota vegina mest og rukka ferðamenn mest. Meira á bls. 2 og í forystugrein. VF-mynd/pket.
Gamla skóflan dregin fram
„Vísbendingar um djúpboranir eru
afar áhugaverðar, gefa fyrirheit um
að hugsanlega náum við stóru mark-
miðunum í verkefninu, sem eru að
framleiða orku með minni umhverf-
isáhrifum og fyrir lægri kostnað, segir
Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku
um tilraunir fyrirtækisins á djúpbor-
unum á Reykjanesi. Borað var niður
á 4.650 metra dýpi sem gerir holuna
þá dýpstu á landinu. Öll markmið
verkefnisins náðust en nýtingarmögu-
leikar djúpborunarholunnar liggja þó
ekki fyrir fyrr en í árslok 2018 þegar
rannsóknum á henni lýkur.
„Þetta er fyrsta holan sem tekst með
þessum hætti. Við erum að kæla hana
núna, svo látum við hana hitna upp
og förum að kíkja svolítið í pakkann á
næsta ári, hvað hún mun hugsanlega
gefa okkur. Við erum að vinna að fjöl-
mörgum öðrum verkefnum. Við erum
í undirbúningsferli fyrir hugsanlega
jarðhitanýtingu í Eldvörpum og við
reynum að vanda okkur, og öllu öðru
sem við gerum, mjög til verka. Það
eru ekki allir sáttir við allt sem við
gerum, við gerum okkur grein fyrir
því. Skoðanir mega og eiga að vera
skiptar, en þá þarf að skiptast málefna-
lega á sjónarmiðum. Við erum ekki að
virkja fyrir okkur, við erum að virkja
fyrir samfélagið. Við notum ekki
orkuna sjálf, við seljum hana öðrum,
til dæmis rafmagnið. Við erum að
bregðast við þörfum samfélagsins. Það
er ekki okkar að ákveða hvað er gert í
landinu, hvers konar verksmiðjur eða
starfsemi er byggð, en það er mikill
uppgangur í samfélaginu, öll hótelin
sem verið er að byggja, öll ferðaþjón-
ustan og allt annað, öll starfsemi, allt
það rafmagn. Það vantar einfaldlega
bara meiri raforku í landinu í dag.
Við erum að leita aðeins fyrir okkur í
vatnsafli líka og erum núna væntan-
lega í sumar að hefja framkvæmdir við
fyrstu vatnsaflsvirkjunina okkar og
erum að vinna að slíkum verkefnum
á nokkrum stöðum á landinu. Við
horfum til jarðhitanýtingar í Krísu-
vík í framtíðinni líka. Við sjáum fyrir
okkur nýtt afsprengi Auðlindagarðs-
ins þar, með fjölþættri nýtingu.“
Ásgeir er í Vikurfréttaviðtali í blaði
og sjónvarpsþætti vikunnar en HS
Orka flutti nýlega höfuðstöðvar sínar
í Svartsengi í Grindavík þar sem starf-
semi Hitaveitu Suðurnesja, forvera
HS Orku, hófst fyrir rúmum fjörutíu
árum síðan. Viðtalið við Ásgeir er á
bls. 22-23.
Vantar meiri raforku
●● Áhugaverðar●vísbendingar●í●djúpborun●á●Reykjanesi
●● Meiri●orka●fyrir●minni●kostnað●og●minni●umhverfisáhrif
Vorboðar í Leirunni
Vilja glæða
Seltjörn lífi
■ Á fundi Umhverfis- og skipulags-
ráðs Reykjanesbæjar á dögunum
barst ósk um afnotarétt af Seltjörn
til næstu sjö til tíu ára.
Um er að ræða vatnið sjálft og um-
hverfi þess, rústirnar, tjaldsvæðið við
skóglendið og leiksvæðið. Usk ráð tók
vel í hugmyndina en það er fyrirtækið
Gamli Nói ehf. sem þess óskar. Guð-
laugur H. Sigurjónsson sviðstjóri mun
gera drög að samningi sem verður
síðan lagður fyrir bæjarráð. Hann
segir í samtali við VF að fyrst sé verið
að ræða um veitingasölu á svæðinu,
en háleit markmið séu varðandi fram-
haldið. Tjaldsvæði hefur verið nefnt,
jafnvel stendur til að glæða Seltjörn
sjálfa lífi. Ekkert sé þó í hendi ennþá.