Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.03.2017, Síða 2

Víkurfréttir - 30.03.2017, Síða 2
2 fimmtudagur 30. mars 2017VÍKURFRÉTTIR Menntunar- og hæfniskröfur: • Íslenskt hjúkrunarleyfi • Frumkvæði og metnaður í starfi HRAFNISTA REYKJAVÍK HAFNARFJÖRÐUR KÓPAVOGUR GARÐABÆR REYKJANESBÆR Hjúkrunarfræðingar Laus störf hjá Hrafnistu Reykjavík Hafnarfjörður Kópavogur Reykjanesbær Garðabær HRAFNISTA I I I Allar nánari upplýsingar veitir Lind hjá Fast Ráðningum í síma 552-1606 og tölvupósti, lind@fastradningar.is. Einnig er hægt að sækja um á www.fastradningar.is. Umsóknarfrestur er til 30. apríl. Hrafnista leitar að hjúkrunarfræðingum til starfa í fjölbreytt og skemmtileg störf. Starfshlutfall er samkomulag. Þekking, reynsla, frumkvæði og ánægja starfsmanna Hrafnistuheimilanna tryggir gæði þeirrar þjónustu sem veitt er. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu. Við hlökkum til að vinna með þér! • Sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð • Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót Jón Gunnarsson, samgönguráðherra sagði á opnum borgarafundi um tvö- földun Reykjanesbrautar sl. fimmtu- dag að það væru fáir aðrir möguleikar en einhvers konar gjaldtaka til að ná fram auknu fé til vegamála. Hann sagði að það væri mikilvægt að ná fram sátt um málið en nefnd á vegum ráðuneytisins vinnur nú að frekari hugmyndum í möguleikum á vega- tollum. Jón sagði að undanfarna daga hefði hann átt marga fundi með fólki og aðilum úti á landi sem hefðu komið til hans eða nefnt að fyrra bragði að það vildi greiða vegatolla til að flýta framkvæmdum við vegagerð eða gangnagerð. „Mér er ljós sá brýni vandi í sam- göngumálum og ekki síst á þeirri leið sem Suðurnesjamenn berjast fyrir, Reykjanesbrautinni.Það kostar um 15-20 milljarða að tvöfalda kaflann sem upp á vantar á Reykjanesbraut, upp að flugstöð og síðan í gegnum Hafnarfjörð. Við erum þess vegna að skoða einhvers konar gjaldtöku. Þannig getum við látið þennan gríðar- lega ferðamannastraum taka þátt í því að byggja samgöngukerfið upp með okkur. Það verður lögð áhersla á það að hafa gjaldtökuna hófsama fyrir þá sem nota vegina mest. Ef okkur auðn- ast að ná einhverri samstöðu um þær hugmyndir þá munum við fara í fram- kvæmdir á fullum krafti. Þannig mun margt gerast á næstu 3-5 árum. Þetta eru svo stór verkefni að við þurfum að leita út fyrir ríkiskassann og þá með gjaldtöku.“ Jón sagði að hann sæi fyrir sér að gjaldtaka færi af stað um leið og fram- kvæmdir hefjast við þessar leiðir og að hún verði nýtt í þær. „Til að ná fram sátt er mikilvægt að ávinningur þeirra sem myndu greiða gjald sé meiri af framkvæmdunum en fyrr. Að ökumenn séu að spara ferða- tíma og þar af leiðandi eldsneyti og rúsínan í pylsuendanum sé aukið um- ferðaröryggi og þar af leiðandi færri slys. Gjaldtaka er ekki ný af nálinni, ekki einu sinni hér heima. Vestmannaey- ingar greiða í Herjólf og fleiri slík dæmi mætti taka og íbúar á Vestur- landi og aðrir hafa notið góðs af Hval- fjarðargöngum. Gjaldtaka er mjög almenn í öðrum löndum. Við erum fámenn þjóð í stóru landi og það kostar sitt að byggja vegakerfi í 100 þús. ferkílómetra landi. Það er ljóst að við verðum að bregðast fljótt við vegna hins mikla ferðamannastraums og því er mikilvægt að við getum líka horft út fyrir boxið.“ ●● sagði●Jón●Gunnarsson●samgönguráðherra●● á●opnum●fundi●í●Stapa●um●tvöföldun●Reykjanesbrautar Ákveðið hefur verið að hefja skóla- starf í Dalshverfi í Innri Njarðvík í haust. Þetta kom fram á kynningar- fundi um nýjan skóla sem haldinn var í Akurskóla á dögunum. Ákveðið hefur verið að koma fyrir bráðabirgða skólahúsnæði á bílastæði þar sem nýi skólinn mun rísa. Húsnæðið verður með kennslustofum, fjölnota sal og starfsmannaaðstöðu. Byrjað verður með kennslu fyrir nemendur í 1. til 3. bekk sem búa í Dalshverfinu. Tímabundna kennsluúrræðið verður rekið undir stjórn Akurskóla að minnsta kosti fyrsta árið og verður því í raun útibú frá Akurskóla. Að sögn Helga Arnarsonar, sviðs- stjóra fræðslusviðs hjá Reykjanesbæ, stóð upphaflega til að setja þrjár nýjar lausar kennslustofur við Akurskóla næsta haust til að bregðast við fjölgun nemenda þar. „Fljótlega eftir áramót kom í ljós að sú leið var ekki fær þar sem uppbyggingin er mun hraðari en við gerðum ráð fyrir. Því var tekin ákvörðun um að setja upp tíma- bundna kennsluaðstöðu á lóð nýja skólans í Dalshverfi,“ segir hann. Í dag eru nemendur sem búa í Dals- hverfi í árgöngunum þremur 85 tals- ins og segir Helgi að búast megi við að þeim fjölgi enn til haustsins. Stefnt er að því að jarðvinna við skólann hefjist í sumar. Enn er óljóst hvenær fyrsti áfangi skólans rís en reiknað er með því að hjarta skólans, það er mið- rými og þjónustukjarni ásamt öllum kennslurýmum fyrir 1. til 10. bekk, verði tilbúið haustið 2019. Helgi segir Akurskóla hafa verið sprunginn og því þegar komin þörf fyrir nýjan skóla í Innri Njarðvík. „Nýi skólinn í miðju Dalshverfi er hugs- aður sem heildstæður grunn- og leik- skóli fyrir allt að 500 grunnskólanem- endur og 120 leikskólanemendur.“ Hann mun því fullbyggður þjóna Dalshverfi I og Dalshverfi II ásamt Stapahverfinu. Skólastarf hefst í Dalshverfi í haust ●● Akurskóli●sprunginn●og●þörf●fyrir●nýjan●skóla●í●Innri●Njarðvík Hér mun nýi skólinn rísa. VF-mynd/hilmarbragi. Úr tillögu Arkís sem bygginganefnd valdi. Mynd/ Arkís. ■ Forsvarmenn Stopp hópsins sem berst fyrir tvöfaldri Reykjanesbraut voru þokkalega sáttir eftir fundinn í Stapa sl. fimmtudag. Guðbergur Reynisson sagðist þó hafa vonast eftir einhverju loforði sem kom ekki. Ísak Kristinsson sagðist persónulega vera sammála gjald- töku, þ.e. að þeir borgi sem njóti. Þeir félagar eru þó ánægðir með að málið sé á hreyfingu og að framkvæmdir við hringtorgin á leið upp að flug- stöð verði á þessu ári. „Við vonum að þessi nefnd sem á að skila hugmyndum að gjaldtöku verði fljót að skila af sér. Það er mikilvægt að landsmenn viti hvernig gjaldtöku verður háttað, að við sem notum vegina mest séum að njóta þess.“ Kristín María Birgisdóttir talsmaður um öruggan Grinda- víkurveg sagðist vongóð eftir fundi með ráðherra og Vegagerð hvað varðar lagfæringar á Grindavíkurvegi og mikilvægt að aðilar snúi bökum saman. Ljóst sé að bregðast þurfi við mikilli umferðaraukningu upp á 56% síðan 2009. Það sé aðkallandi verkefni. „Maður er ekki alltaf sáttur við bráðabirgðaaðgerðir, en það þarf að bregðast við fljótt. Við höfum talað fyrir því að fara alla vega í einhverjar merkingar og þá plástra sem hægt er. En við höfum beðið Vegagerðina um að kostn- aðarmeta 2+1 veg þó auðvitað væri best að fá tvöfaldan upplýstan veg. Við verðum þó að vera raunhæf í óskum okkar. Það er brýnt að það gerist eitthvað fljótt og vel. Ég skil vel þá umræðu um gjaldtökuna. Það er mikilvægt hvernig útfærslan verður og þá sérstaklega að þeir sem nota veginn mest njóti þess í gjaldtöku.“ Forráðamenn áhugahópa á Suðurnesjum þokkalega sáttir Frá opnum fundi um Reykjanesbrautina í Stapa. Vel á annað hundrað manns sóttu fundinn en nokkur þúsund fylgdust með umræðum á Víkurfréttavefnum, vf.is í beinni útsendingu. Næst vonandi sátt um gjaldtöku Fulltrúar Stopp hópsins og Grindavíkur- vegar eftir fundinn í Stapa. VF-mynd/pket.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.