Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.03.2017, Side 16

Víkurfréttir - 30.03.2017, Side 16
16 fimmtudagur 30. mars 2017VÍKURFRÉTTIR UNGA FÓLKIÐ UM MÁLEFNI VIKUNNAR Anna Katrín Gísladóttir: „Umræðan um Reykjanesbrautina hefur verið áberandi undanfarna mánuði. Mikil þörf hefur verið síðustu ár á því að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautarinnar alla leið en ég tel að nú sé nauðsyn. Ég keyri Reykjanesbrautina daglega og í hvert einasta skipti sem farið er yfir á einbreiða kaflann kemur upp svolítil óþægindatilfinning. Að keyra til vinnu eða skóla á ekki að þurfa að vekja upp óhug fólks, það á ekki að vera líðandi í samfélagi eins og okkar. Hver einn og einasti Suðurnesjamaður annað hvort keyrir þessa braut reglulega eða á einhvern nákominn sem gerir það. Þetta málefni snertir okkur öll og við þurfum að halda áfram að standa saman og vekja athygli á mikilvægi þess.“ Súsanna Margrét Gunnarsdóttir: „Ég held að ég tali fyrir flesta þegar ég segi að Reykjanesbrautin sé stórhættu- legur vegur og hvað þá einbreiði kaflinn. Þessi vegur einkennist af djúpum hjól- förum og holum. Sama á við um Grinda- víkurveginn. Samtals fimm banaslys hafa orðið á þessum tveimur vegum á síðustu sjö mánuðum, fyrir utan önnur slys. Það er ólýsanlega sorglegt að slys þurfi að eiga sér stað svo einhverjar ráðstafanir verði gerðar, en ef þetta kallar ekki á tvöföldun allrar Reykjanesbrautar og lagfæringu veganna þá veit ég hreinlega ekki hvað gerir það.“ Marinó Örn Ólafsson: „Mér finnst mikilvægt að klára tvöföldun Reykjanesbrautarinnar. Akkúrat núna eru of mörg hættuleg gatnamót á veg- inum. Þetta þarf að laga. Svo er ég mjög spenntur fyrir hraðlestarhugmyndum. Hraðlest gæti fækkað ferðum á Reykja- nesbrautinni og sparað Suðurnesjamönnum sem sækja nám eða vinnu á höfuðborgarsvæðið samgöngukostnað.“ Markús Már Magnússon: „Mér finnst hrikalegt að það þurfi alltaf einhvað slæmt að gerast, einhver slys, til þess að eitthvað sé gert í málinu. Ég held að ég hafi lesið að það hafi ekki orðið neitt banaslys þar sem brautin er tvöföld sem segir okkur það að ef brautin væri tvöföld alls staðar þá myndi það draga heilmikið úr slysum og öðru slíku.“ REYKJANESBRAUTIN Skoða möguleika á að færa stálþil við Miðgarð Hafnarstjórn Grindavíkur skoðar nú þann möguleika að færa stálþil við Miðgarð fram um þrjá metra. Tillaga Hagtaks, sem er verktaki við upp- setningu á nýju stálþili og dýpkun við Miðgarð, felst í því að færa þilið fram um 3 metra til viðbótar eða samtals 5 metra. Kostnaður við það eru 14,8 miljónir. Þá segir í tillögunni að fordýpkunin verði 12 metrar í stað 5 metra og að dýpkunarefnið sem kemur til viðbótar verði nýtt í fyllingu innan við nýja stálþilið. Kostnaður við fyllingarefnið, ef það er sótt í nærliggjandi námur, er um tæpar 13 milljónir. Kostnaður af viðbótar fordýpkun með auka fyll- ingarefni er u.þ.b. 65 milljónir. Af- slátturinn nemur u.þ.b. 13 milljónum. Heildarkostnaður er því um 55 millj- ónir. Hafnarstjórn tók vel í þessar tillögur á síðasta fundi sínum og felur hafnar- stjóra og formanni hafnarstjórnar að ræða við forsvarsmenn Siglingasviðs Vegagerðarinnar um þessar tillögur Hagtaks. Lögreglan á Suðurnesjum handtók um síðustu helgi tvo menn sem voru með umtalsvert magn af þýfi í bíl sín- um. Þá var annar þeirra grunaður um fíkniefnaakstur og á hinum fundust meint fíkniefni. Mennirnir voru að tína ýmsa muni upp í bíl sinn úr geymslu við fyrirtæki á Suðurnesjum þegar eiganda þess var gert viðvart um háttsemi þeirra. Hann reyndi að stöðva för þeirra af staðnum en þeir létu sér ekki segjast. Lögreglu var gert viðvart og stöðvaði hún þá á Reykjanesbrautinni þar sem þeir voru á heimleið úr leiðangrinum. Í bílnum fundust tugir málmeininga, gafflar af lyftara og loftpressa fyrir kælikerfi. Þá höfðu mennirnir haft viðkomu á öðrum stað í umdæminu þar sem þeir hugðust kippa með sér skipsskrúfu en hún reyndist of þung. Þeir játuðu sök og höfðu ætlað að selja þýfið í brotajárn. Í leiðangri að stela brotajárni ●● Stöðvaðir●á●Reykjanesbraut●● með●gaffla●af●lyftara●og●loftpressu Vilt þú starfa á kraftmiklum og skemmtilegum vinnustað? Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum leitar að framúrskarandi starfsmanni sem vill starfa með okkur í Samvinnu starfsendurhæfingardeild. Þekking í þína þágu Skilyrði er að viðkomandi hafi einstaka þjónustulund, góða samskiptahæfileika, sé hugmyndaríkur og árangursdrifinn. Umsóknir sendist til ina@mss.is fyrir 20. apríl næstkomandi. Upplýsingar veitir R. Helga Guðbrandsdóttir verkefnastjóri Samvinnu, í gegnum tölvupóst rhelga@mss.is eða í síma 421 7500. Starfssvið viðkomandi nær m.a. yfir: • Ráðgjöf og stuðning við einstaklinga í starfsendurhæfingu • Taka þátt í teymisvinnu sérfræðinga sem koma að starfs- endurhæfingunni • Gera og hafa umsjón með endurhæfingaráætlunum einstaklinga • Skipulagning og umsjón með námskeiðahaldi og fræðslu • Þátttaka í ýmsum verkefnum Menntunar- og hæfnikröfur: • Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda • Reynsla og þekking á sviði einstaklingsráðgjafar og/eða starfsendurhæfingar • Þekking og reynsla af atvinnulífinu • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.