Víkurfréttir - 30.03.2017, Qupperneq 28
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
Auglýsingasími: 421 0001
Mundi
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
Auglýsingasíminn er
421 0001
Voru mótmælin gegn
kísilverinu skipulögð í
reykfylltum herbergjum?
Skemmtilegar
fermingargjafir
Macbook Air
Örgjörvi: Intel i5 1,6/2,7GHz
Skjástærð: 13,3’’ LED skjár
Skjákort: Intel HD Graphics 6000
Vinnsluminni: 8GB RAM, 128GB Flash geymsla
kr. 149.990
HP Probook 455 A8-7410 8GB
Skjástærð: 15,6” LED HD SVA Anti-glare
Örgjörvi: AMD Quad Core A8-7410 2.2 GHz, Turbo
Speed: 2.5 GHz
Vinnsluminni: 8GB (1x8GB) 1600MHz (Max 16GB)
Geymslumiðlar: 500GB 7200RPM harður diskur
Skjákort: Radeon R6 með 2GB minni
Lyklaborð: Í fullri stærð með talnaborði, vökvavarið.
Íslenskir innbrenndir stafir
kr. 109.900
HP Notebook 15 AMD A8-7410
Skjástærð: 15,6` HD LED BrightView skjár
Upplausn á skjá: 1366 x 768
Örgjörvi: AMD A8 7410 / 2.2 GHz
Vinnsluminni: 8GB 1600 MHz
Geymslumiðlar: 1TB HDD + 8GB SSD Hybrid diskur
Skjákort: AMD Radeon R5 M430 2GB
kr. 89.900
IDP 110 15” N3710
Örgjörvi: Intel Pentium N3710 1,6-2,56GHz Quad Core 2MB
Minni: 4GB 1600MHz DDR3L (4GB mest, á mb.)
Skjár: 15,6” HD LED TN m. myndavél
Diskur: 1TB 5400sn. 2,5” SATA
kr. 69.900
Dell Inspiron 15 (5567)
Intel Core i5-7200U 7Gen
8GB DDR4 vinnsluminni
15.6” FHD (1920x1080) Anti-Glare skjár
1TB 5400rpm harður diskur
kr. 129.900
IDP Y520
IDEAPAD Y520 ER NÝJASTA LEIKJAVÉLIN
FRÁ LENOVO
Örgjörvi: Intel Core i5 7300HQ 2,5-3,5GHz Qcore 64bit
Minni: 1 x 16GB 2133MHz DDR4 minni
Skjár: 15,6” FHD LED m. innbyggðri myndavél
Upplausn: 1920x1080 punkta
Skjákort: Optimus tækni: NVIDIA GeForce GTX1050M
(4GB) og Intel HD630
Diskar: 256GB SSD M.2 PCIe og 1TB HDD 2,5” SATA
Margmiðlun: hágæða JBL Dolby hljóðkerfi 2 x 2W
kr. 169.900
IdeaPad Yoga 3
EINSTÖK HÖNNUN SAMEINAR
FARTÖLVU OG SPJALDTÖLVU
Örgjörvi: Intel Core i3 5005u
Minni: 8GB 1600MHz DDR3L
Skjár: 14” IPS LED 10 punkta snertiskjár m. myndavél
og Gorilla glass vörn
Upplausn: FHD IPS 1920x1080 punkta
Diskur: 256GB SSD
kr. 99.900
HAFNARGÖTU 40 - SÍMI 422 2200
Bluetooth
hátalarar og
heyrnartól
Fartölvutaska
fylgir með öllum
15“ fartölvum
í apríl
Björgum
óskabarninu
Það að skrifa lokaorð reglulega í
Víkurfréttir gefur manni svakaleg
völd, raunar svo að líkja mætti við
galdra. Ég sá það...tja hvítt á hvítu...
eftir síðasta pistil minn þar sem ég
deildi áhyggjum mínum af snjóleysi
með lesendum. Þvert á allar veður-
spár skall á með slíkri snjókomu eftir
pistilinn að öll met féllu og gestirnir
mínir fóru alsælir með upplifunina.
Ég þakka lesendum þolinmæðina og
lofa að nú er einungis dönsuð sólar-
samba á Heiðarbrúninni.
En ég ætla að láta reyna aftur á mátt
lokaorðanna og galdranna. Í sama
blaði og lokaorðin mín birtust var
þessi fyrirsögn: „Óskabarn kauptúns-
ins. Sundhöllin í Keflavík á sér mikla
sögu - Húsnæðið er til sölu og gæti
hlotið þau örlög að vera jafnað við
jörðu“. Í blaðinu er hin merka saga
þessa reisulega húss rakin, en það
var teiknað af Guðjóni Samúelssyni
og tekið í notkun sem sundlaug árið
1939. Þarna lærði ég að synda eins og
margar kynslóðir Keflvíkinga. Slík var
eftirvænting bæjarbúa fyrir opnun
sundlaugarinnar að amma mín Ei-
ríka sendi pabba á sundnámskeið til
Reykjavíkur til að hann gæti notið
laugarinnar frá fyrsta degi.
Húsið má vissulega muna sinn fífil
fegurri, en það má einfaldlega ekki
rífa það. Sýnum framsýni, virðingu
fyrir sögunni og nýtum það einstaka
tækifæri sem þarna gefst til þess að
auka líf í miðbænum og við göngu-
stíginn fallega meðfram ströndinni.
En hvað á að gera við húsið, hver á að
kaupa, hver ber ábyrgðina?
Stutta svarið er að við gerum það öll.
Bæjaryfirvöldum ber í fyrsta lagi að
tryggja friðun hússins og leggja þær
kvaðir á kaupendur að það verði fært í
sem upprunalegasta horf. Og þá væri
komið að okkur hinum. Ýmsar hug-
myndir hafa verið reifaðar um hvaða
starfsemi gæti verið í húsinu, en hvort
sem þarna yrði íþróttasafn, frum-
kvöðlasetur, myndlistargallerý, hótel,
veitingastaður eða fiskmarkaður
væri það mín ósk að við gætum tekið
höndum saman - íbúar, fjárfestar,
bæjaryfirvöld og aðrir áhugasamir -
og komið lífi í húsið aftur.
Látum reyna á máttinn...björgum
óskabarninu!
Ég er til, en þú?
LOKAORÐ
Ragnheiðar Elínar