Víkurfréttir - 12.04.2017, Page 10
10 miðvikudagur 12. apríl 2017VÍKURFRÉTTIR
Eyþór Sæmundsson
eythor@vf.is
Ungu hjónin voru að leitast eftir hæð
eða íbúð í ákveðnum radíus frá æsku-
slóðum sínum í Keflavík en þau voru
þá að flytjast frá Egilsstöðum á þessum
tíma. Sossa er alin upp á Skólavegi 28
og Óli á Hafnagötu 36. „Við hittumst
þá á miðri leið hérna á Mánagötunni,“
segir Óli en staðsetningin er góð í ró-
legri einstefnugötu. Guðrún gamla
sem átti húsið vildi ekki selja hverjum
sem er. „Við klæddum okkur upp áður
en við fórum að hitta hana,“ segir
Sossa. Upphaflega stóð til að kaupa
bara hæðina og risið. Að lokum fór
það svo að þau keyptu kjallarann líka
enda leist gömlu konunni vel á skötu-
hjúin. Ástandið á húsinu var ekki gott
og þau þurftu að ráðast fljótlega í
framkvæmdir.
Húsið er byggt árið 1954 af Einari
Norðfjörð, en hann byggði það fyrir
sjálfan sig og bjó í því um skeið.
Seinna seldi hann hjónunum sem
bjuggu þarna á undan Sossu og Óla.
Þau eru því þriðju eigendur af húsinu.
Veggir voru brotnir niður og her-
bergisskipan breytt á miðhæð. Búið
er að skipta um alla glugga nema einn
en þau hafa unnið að endurbótum
smátt og smátt í gegnum árin. Óli sá
sjálfur um að smíða alla gluggana.
Sossa viðurkennir að karlinn geti
verið nokkuð handlaginn.
Einstakt eldhús
Eldhúsinnréttingin er algjörlega ein-
stök en hún er hönnuð í gömlum
stíl með halla á efri skápum og inn-
byggðum rekkum fyrir matardiska.
Eyjan vakti nokkra athygli á sínum
tíma en þetta þótti ekki jafn móð-
ins árið 1995. „Hérna sitjum við,
drekkum kaffi og borðum og tökum
á móti gestum,“ segir Sossa. Matar-
boðin fara fram í bjartri borðstofunni.
Stólarnir við stofuborðið fylgdu hús-
inu. Þau bólstruðu þá en áður var
einhvers konar plast á þeim. „Þetta
er örugglega eitthvað af Vellinum frá
um 1950, svona Mánabarslegt“, segir
Óli. Stólarnir voru fimm talsins en
sjötti stólinn kom óvænt í leitirnar.
Vinahjón þeirra voru þá á rúntinum
í Garðinum og sáu sams konar stól í
vigtarhúsinu við bryggjuna. „Ég fór
á fund Magga bæjarstjóra og bauð
honum stólaskipti. Hann stóð strax
upp og bauð mér sinn stól og sagði að
hann hefði alltaf langað að vera skóla-
meistari,“ segir Óli og þau hlæja bæði.
Deila endalaust um gólfdúkinn
Gamall gólfdúkur er helsta þrætuepli
þeirra hjóna. Dúkurinn liggur upp
stigann og upp í risið. Óli er ákaflega
hrifinn af dúknum á meðan Sossa vill
ekki sjá hann. Blaðamaður hefur á
orði að hann sé nú frekar skólalegur
dúkurinn. „Það er kannski málið,“
segir Óli þá hugsi.
Húsinu fylgdi bílskúr sem var ekki
mikið notaður áður en þar er Sossa
með vinnustofu sína. Viðbyggingin
við skúrinn er falleg en hún er byggð
í kringum aldarmótin síðustu. Þar er
frábær birta fyrir listamanninn. „Mér
finnst það nauðsynlegt að fara út úr
húsi til þess að fara í vinnuna. Helst
að smyrja nesti og fara út til þess að
vinna,“ segir Sossa sem þarf að taka
nokkur skref frá útidyrunum til þess
að koma sér í vinnu sína.
MYNDARLEGT
HÚS VIÐ
MÁNAGÖTU
HEIMA HJÁ SUÐURNESJAFÓLKI:
Það er einstaklega reisulegt húsið á Mánagötunni þar sem listakonan Sossa Björnsdóttir og Ólafur Jón
Arnbjörnsson skólastjóri hafa hreiðrað um sig. Hjónin keyptu húsið fremur óvænt árið 1995 en þau eru þriðju
eigendur af því. Eignin, sem er 63 ára gömul, hefur gengið í gegnum þó nokkrar breytingar og enn er verið
að betrumbæta. Falleg listaverk einkenna húsið en í stofunni er einstakt parket og stórfenglegur gluggi með
milljón dollara útsýni.