Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2017, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 12.04.2017, Blaðsíða 20
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 Auglýsingasími: 421 0001 Mundi S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir Kjartan farinn að moka inn fasteignagjöldum. Bláa Lónið og Grindavíkurbær bjóða upp á menningar- og sögutengda gönguferð mánudaginn 17. apríl, annan í páskum. Gangan hefst kl. 11.00 við bílastæði Bláa Lónsins og er áætlað að hún taki um þrjár klukkustundir. Möguleiki er að fara rúmlega hálfan hring og fá akstur til baka. Leiðin sem farin verður er auðveld yfirferðar og hentar fyrir alla fjölskylduna. Sigrún Jónsdóttir Franklín verður leiðsögu maður í göngunni og mun hún fræða þátt takendur um leiðina með áherslu á náttúru og sögu svæðisins. Ekkert þátttökugjald er í gönguna. Þátttakendur sem hafa hug á að fara í Bláa Lónið að göngu lokinni er vinsamlegast bent á að ganga tímanlega frá bókun á heimasíðu Bláa Lónsins. Þátttakendur eru á eigin ábyrgð. GÖNGUFERÐ UM NÁGRENNI BLÁA LÓNSINS Á ANNAN Í PÁSKUM Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. (BYGG) hefur á undanförnum árum byggt yfir 3.000 glæsilegar íbúðir á almennum markaði. Fyrirtækið hefur einnig byggt íbúðir fyrir Félag eldri borgara og húsnæðisnefndir í Reykjavík og Kópavogi. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 220 manns og er meðalstarfsaldur hár. Hjá fyrirtækinu er öflugt starfsmannafélag. Traust atvinna í boði. Smiðir Erum að byrja á uppbyggingu Hlíðarsvæði, Reykjanesbæ. Allt unnið í uppmælingu samkvæmt mælingaskrifstofu húsasmiða. Upplýsingar veitir Páll S:693-7316, pallth@bygg.is Smíðanemar Leitum að frísku ungu fólki til að læra hjá okkur smíðar. Upplýsingar veitir Páll S:693-7316, pallth@bygg.is BYGG býður þér til starfa www.bygg.is BYGG byggir á 32 ára reynslu á íslenskum byggingamarkaði. Ég starfa í ferðamannaiðnaðnum og hef áður skrifað um þau mál enda hef ég einnig brennandi áhuga á þessum bransa. Félagi minn frá Miami dvaldi hér á landi um síðustu helgi. Þetta var fyrsta koma hans til Íslands en þær verða eflaust fleiri, á ég fastlega von á. Ég var að sjálfsögðu duglegur að sýna honum áhugaverða staði hér á svæðinu. Við tókum góðan lunch hjá Erni á Soho, rúntuðum um Reykjanesið, hentum okkur í Bláa lónið og þá var kíkt á körfu- boltaleik (þar sem Grindvíkingar fóru á kostum). Auðvitað var svo Gullni hringurinn tekinn á sunnudeginum með allri þeirri fegurð sem þar leynist. Sá bandaríski var algjörlega heillaður af landi og þjóð, sérstaklega fólkinu og þá sér í lagi hér fyrir sunnan. Hins vegar, á neikvæðu nótunum, þá tók hann vel eftir því hversu slitnir og hættulegir þjóðvegirnir okkar eru orðnir hér á þessu svæði og okkur brá hreinlega á ferðalagi okkar. Ég hef ekki farið Gullna hringinn lengi og ég var eiginlega í smá áfalli. Við Geysi, sem dæmi, komum við að röð bíla sem allir voru með sprungin og skemmd dekk eftir djúpar holur í veginum og slysahættan á köflum þar mjög mikil. Tala nú ekki um að mæta erlendum ferðamanni á einbreiðri brú, algjörlega galið. Viðhaldi þjóðvegarins er ábótavant og með þessari gríðarlegu aukningu ferðamanna og bílaleigubíla þá er deginum ljósara að átak þarf í þessum málum. Við getum tekið á móti öllu þessu fólki en þá verðum við líka að fjárfesta betur í innviðum samfélagsins og samgöngurnar verða að vera í lagi, fyrst og fremst eins öruggar og hægt er. Tala nú ekki um á þessum stöðum sem taka á móti gríðarlegum fjölda fólks allt árið um kring, þar er mikilvægast að hefjast handa. Reykjanesbrautin og Grindavíkurvegur- inn eru svo auðvitað sér kapítular út af fyrir sig en ástand þessara vega er hroðalegt eins og við Suðurnesjamenn þekkjum allt of vel. Nú fer senn að hefjast enn eitt metsumarið í ferðamannabrans- anum og það er í raun byrjað þótt daga- talið segi kannski annað. Öryggi fólks á þjóðvegunum verður að tryggja. Það er gjörsamlega fráleitt að viðhald veganna sem á undanförnum árum hefur verið skorið niður sé ekki aukið núna í þessu góðæri sem hér ríkir. Ástandið er hrein- lega það slæmt. En þetta er í höndum stjórnmálamannanna og því miður þá er erfitt að stóla á þá annars ágætu stétt. Þar tala menn um að það vanti aurinn en á meðan var peningum dælt í Vaðlaheiða- göng sem dæmi (einhverja heimskustu framkvæmd Íslandssögunnar) á meðan annað og mikilvægara sat á hakanum. Furðuleg forgangsröðun og það er hægt að benda á fleiri dæmi. Ferðamenn flykkjast hér til landsins, ýmsar ástæður eru fyrir því en ein þeirra er öryggi, fólki finnst það öruggt hérna. Úti á þjóð- vegunum er það svo sannarlega ekki á meðan við leyfum vegakerfinu að grotna niður og ætla ég rétt að vona að menn spýti í lófana í þessum efnum. Óska ykkur öllum gleðilegra páska og farið varlega hvert sem förinni er heitið. Forgangsröðun LOKAORÐ Örvars Kristjánssonar

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.