Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2017, Qupperneq 13

Víkurfréttir - 12.04.2017, Qupperneq 13
13miðvikudagur 12. apríl 2017 VÍKURFRÉTTIR Dýrin í Hálsaskógi sett á svið í Sandgerði ●● Sviðsmynd●smíðuð●frá●grunni●og●hátt●í●200●búningar●saumaðir ■ Árshátíð Grunnskólans í Sandgerði fór fram síðasta fimmtudag, 6. apríl. Elstu nemendur leikskólans Sól- borgar ásamt nemendum úr 1. til 6. bekk grunnskól- ans settu leikritið Dýrin í Hálsaskógi á svið. Þeir voru með tvær sýningar og í tilkynningu frá skólanum segir að gestir hafi verið á einu máli um að einstaklega vel hafi tekist til. Nemendur lögðu allt í sýninguna og hafa stundað stífar söng- og leikæfingar undanfarnar vikur. Þá var mikil vinna lögð í að gera umgjörð leiksýningar- innar sem glæsilegasta. Leikmyndin var sérsmíðuð frá grunni og saumaðir voru hátt í 200 búningar. Húshljóm- sveitin sá um flutning tónlistar en hún samanstendur af kennurum grunn- og tónlistarskólans. Árshátíð eldri nemenda fór svo fram um kvöldið og var hver bekkur með sitt atriði. Meðal efnis á dagskránni var kennaragrín þar sem nemendur í 7. bekk gerðu grín að kennurum skólans. Starfsmenn grunnskólans létu ekki sitt eftir liggja og fluttu nemendum 10. bekkjar kveðjusöng í Eurovision-stíl. Dagskránni lauk með rósaafhendingu og þá tók við ball fram undir miðnætti. Afgreiðslutímar um páskana Skírdagur 13. apríl: opið 12:00–16:00 Föstudagurinn langi 14. apríl: lokað Laugardagur 15. apríl: opið 10:00–16:00 Páskadagur 16. apríl: lokað Annar í páskum 17. apríl: opið 12:00–16:00 Netverslunin er opin allan sólarhringinn Gleðilega páska lyfja.isLyfja, Krossmóum 4, 260 Reykjanesbæ Rafiðnaðarfélags Suðurnesja verður haldinn miðvikudaginn 19. apríl 2017 kl. 20:00 í sal Verslunarmannafélags Suðurnesja, Vatnsnesvegi 14. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin Aðalfundur Ísbúð - Grill - Pizza Hafnargötu 6a, 230 Reykjanesbæ // Sími  421-1544 ATVINNA Við hjá Ungó leitum að starfsmanni, 18 ára eða eldri, í vaktavinnu 2-2-3. Kvöld og helgarvinna. Í starfinu felst að vinna við matvæli , ís, þrif og almenna afgreiðslu. Ertu dugleg/ur, jákvæð/ur, ábyrg/ur og rösk/ur? Endilega komdu og sæktu um hjá okkur! Upplýsingar á staðnum.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.