Víkurfréttir - 12.04.2017, Qupperneq 16
STA R F S STÖ Ð :
K E F LAVÍKU RFLUGVÖ LLUR
U M S Ó K N I R :
ISAVIA. IS/ATVINNA
V E R K E F N A S T J Ó R I F R A M K V Æ M D A -
O G F J Á R F E S T I N G A V E R K E F N A .
Helstu verkefni er verkstjórn og eftirlit með
framkvæmda- og fjárfestingarverkefnum, umsjón
með gerð verk-, kostnaðar- og framkvæmdaáætlana,
umsjón með verkbókhaldi tengt framkvæmdum og
greining á fjárfestingaverkefnum, sem og skýrslugerð,
gagnasöfnun og úrvinnsla á sviði framkvæmda.
Hæfniskröfur:
• Verk- eða tæknifræðimenntun er nauðsynleg
• Góð þekking á Autocad, Revit og Microsoft Project
• Góð enskukunnátta í ræðu og riti
Umsóknarfrestur: 7. maí
H Ö N N U Ð U R / T Æ K N I T E I K N A R I
Helstu verkefni eru vinnsla á CAD teikningum,
landupplýsingakerfi, uppsetning og ýmis teiknivinna sem
og viðhald gagna sem tengjast gerð þróunaráætlunar,
hönnun og framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli.
Hæfniskröfur:
• Tækniteiknun, arkitektúr eða menntun sem
nýtist í starfi
• Haldgóð þekking á helstu teikniforritum
• Þekking á BIM aðferðafræðinni er kostur
Umsóknarfrestur: 30. apríl
S U M A R S T A R F F Y R I R
V E R K F R Æ Ð I N E M A
Helstu verkefni ganga öll út á að auka afköst núverandi
flugstöðvar, styðja við aðrar deildir og mun starfsmaður
kynnast öllum ferlum flugvallar. Nauðsynlegt er að
starfsmaður hafi gott vald á tölulegri greiningu, tölfræði
og líkindafræði.
Hæfniskröfur:
• Þarf að hafa lokið 2 árum af B.Sc í verkfræði
eða skyldum greinum
• Umsækjandi þarf að geta unnið sveigjanlega vinnutíma
• Góð tölvukunnátta skilyrði
• Góð enskukunnátta skilyrði
Umsóknarfrestur: 23. apríl
S U M A R S T A R F F Y R I R T Æ K N I N E M A
Helstu verkefni eru að vinna við upplýsingalíkan (BIM)
fyrir hönnun, framkvæmd og rekstur. 3D laser skanna
alla flugstöðina og útbúa þannig 3D líkan af henni, ásamt
öðrum tilfallandi verkefnum.
Hæfniskröfur:
• Tækni- eða verkfræðinemi, þarf að hafa lokið 2 árum
af B.Sc námi
• Reynsla af landmælingum er kostur
• Þekking og áhugi á BIM hönnun er kostur
• Góð tölvukunnátta skilyrði
• Góð enskukunnátta skilyrði
Umsóknarfrestur: 23. apríl
S U M A R S T A R F Á A Ð G A N G S S K R I F S T O F U
F L U G D E I L D A R
Helstu verkefni eru afgreiðsla og útgáfa aðgangsheimilda
fyrir einstaklinga og ökutæki. Samskipti við flugvallar-
notendur vegna aðgangsmála og við lögreglu vegna
bakgrunnsskoðana og vöktunar. Starfsmaður mun einnig
sjá um skjalavörslu og önnur tilfallandi verkefni í samráði
við hópstjóra aðgangsskrifstofu.
Hæfniskröfur:
• Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði
(Excel, Outlook o.fl.)
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
• Rík þjónustulund
Umsóknarfrestur: 23. apríl
V E R K E F N A S T J Ó R I R A F O R K U
Helstu verkefni eru umsjón og ábyrgð á raforku
framkvæmdaverkefna frá hönnun til reksturs, ásamt
uppbyggingu dreifikerfa. Samræming rafhönnunar og
samþykki útboða. Umsjón með öflun, móttöku og yfirferð
tilboða og samningagerð við verktaka. Áhættustjórn
verklegra framkvæmda og fleira.
Hæfniskröfur:
• Rafmagns- eða tæknifræði er skilyrði
• Víðtæk reynsla af verkefnastjórnun í mannvirkjagerð
• Reynsla eða menntun í fjármálum framkvæmda
• Reynsla af verkefnum með hátt flækjustig
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Umsóknarfrestur: 7. maí
F L Æ Ð I S S T J Ó R A R Í F A R A N G U R S -
O G F L O K K U N A R S A L
Helstu verkefni eru að tryggja skilvirkt flæði farangurs
í gegnum farangurskerfið og að flæði í flokkunarsal
sé í lagi. Almennt viðhald á farangurskerfi, eftirlit með
starfssemi rekstraraðila, gagnasöfnun og úrvinnsla.
Um er að ræða vaktavinnu.
Hæfniskröfur:
• Verkmenntun á sviði málm-, raf- eða véltækni er kostur
• Tæknimenntun er kostur
• Reynsla við vinnu á flugvelli er kostur
• Reynsla af verkstýringu er kostur
• Góð enskukunnátta skilyrði
• Góð tölvukunnátta skilyrði
Umsóknarfrestur: 23. apríl
V I L T Þ Ú V E R A H L U T I
A F G Ó Ð U F E R Ð A L A G I ?
Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti
af góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið.
Nú vantar okkur fleiri til að vera hluti af góðu ferðalagi með okkur.
Við leitum að metnaðarfullu og öflugu starfsfólki til að taka þátt í þeim öra vexti
sem er framundan á Keflavíkurflugvelli.
Isavia hlaut gullmerki PwC fyrir launajafnrétti í jafnlaunaúttekt PwC 2015 og 2016.
Við erum stolt af þeirri niðurstöðu og er hún í takt við jafnréttisáætlun félagsins sem
hefur það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess
að kynbundin mismunun eigi sér stað.
Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þá þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna
bakgrunnsskoðunar lögreglu, nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni og þurfa allir umsækjendur
að vera með hreint sakavottorð.
17
-
1
11
2
-
H
V
Í T
A
H
Ú
S
I Ð
/
S
Í
A