Víkurfréttir - 11.05.2017, Blaðsíða 25
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
Auglýsingasími: 421 0001
Mundi
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
Valdi þjóðin ekki
rétta keppandann?
LOKAORÐ
Örvars Kristjánssonar
Valdimar í
Eurovision
Eurovision-vikan er í hámarki en
fyrir okkur Íslendinga lauk henni
nánast áður en hún byrjaði (á þriðju-
daginn) þegar Svala dóttir Bjögga
Halldórs komst ekki upp úr undan-
keppninni og olli það okkur flestum
miklum vonbrigðum. Slæmur kafli
hjá íþróttaliði í kappleik er yfirleitt frá
nokkrum mínútum og upp í einhverja
tugi mínútna en því miður þá hefur
slæmi kaflinn okkar í Eurovision verið
í nokkur ár, í raun eiginlega bara síðan
Gleðibankinn (ekki Spkef) var og hét.
Enn eitt árið komust við ekki upp úr
undankeppninni og ástæða fyrir góðu
grillpartýi í maí fokin út í veður og
vind. Flest okkar fylgjast með keppn-
inni (af mis miklum áhuga þó) enda
afar góð afsökun fyrir bjórdrykkju og
snakkáti. Svo eru sumir sem þykjast
ekkert fylgjast með en vita þó allt
um keppnina og karpa um hana af
miklum krafti á samfélagsmiðlum.
Eurovison er að mínu mati mjög
skemmtilegur partur af vorinu og
það er nákvæmlega ekkert að því en
við verðum að fara að drulla okkur
upp úr undanriðlinum! Laugardagur í
maí, gott Eurovision-partý með ferskt
lamb á grillinu, gestir í heimsókn, bjór
og létt, jafnvel eitthvað sterkara. Skot
við hver 12 stig sem Ísland fær og
partýið verður tryllt nema í öll þessi
skipti sem við fáum ekki 12 stig. En
ekkert af þessu verður að veruleika
nema við komum laginu í gegn um
undankeppnina, komumst í úrslitin
og gerum okkur ennþá óraunhæfari
væntingar en þegar við vorum þar
síðast. Það er alltaf sama umræðan
sem er fyrir keppni, hvar eigum við að
halda keppnina ef við vinnum? Hvað
mun það kosta okkur? Við getum
rekið Landspítalann í heilan mánuð
fyrir þann aur las ég einhvers staðar.
En við erum aldrei að fara að vinna,
eða hvað? Nei, lang líklegast ekki. Við
viljum bara góða ástæðu til þess að
halda gott partý á vordögum, gera
okkur glaðan dag yfir þessari keppni
sem flest okkar eiga í svona „love/
hate“ sambandi við. Þá verðum við
líka að fara að gíra þetta upp!
Samsæriskenningarnar um ófarir
okkar eru þó nokkrar, austantjalds-
löndin eru að rotta sig saman segja
menn öskuillir (því að Norðurlöndin
gera það ekki…hóst, hóst) aðrir kenna
kísilverinu um þetta og nú er það nýj-
asta nýtt að klína óförum okkar upp á
Ástrali (þá helst Karl Kennedy). Það er
svo allt önnur umræða, en er ég sá eini
sem skil það ekki að Ástralía sé í Euro-
vision? Hverju missti ég af í landa-
fræðinni? Persónulega held ég þó að
ófarir okkar megi skrifa á buffalo-skó
Svölu og hreint út sagt var lagið ekki
nægilega sterkt. Við þurfum meiri
gæði. Ég held að lausn vandans liggi
hérna fyrir sunnan. Nú er bara kom-
inn tími á að senda Suðurnesjamann
þarna út. Keflvíkingurinn Valdimar
Guðmundsson myndi sem dæmi
rúlla þessu upp, einn af okkar allra
bestu söngvurum í dag. Hver í Evrópu
(Ástralíu) myndi ekki elska þessa stór-
kostlegu rödd? Allt sem drengurinn
syngur verður að gulli, það er algjör
staðreynd. Skora á þig Valdimar, að
bjarga því sem bjargað verður.