Víkurfréttir - 11.05.2017, Blaðsíða 19
19fimmtudagur 11. maí 2017 VÍKURFRÉTTIR
„Það er afar brýnt að fjölga nemendum í tæknigreinum
á háskólastigi. Atvinnulífið kallar eftir tæknimenntuðu
vinnuafli og alþjóðleg þróun staðfestir að þörfin fyrir
tæknimenntað fólk vex hratt – og raunar hraðar en við
höldum,“ sagði Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla
Íslands, en hann flutti ávarp við tíu ára afmælishátíð
Keilis þann 4. maí sl. Hann sagði einnig að sameinað átak
þyrfti til að bregðast við þessum vanda hér á landi, m.a.
með vel fjármögnuðu háskólastarfi sem byði upp á góða
tilrauna- og verkefnaaðstöðu.
Í ávarpi sínu sagði Jón Atli m.a. að það hefði verið Háskóla
Íslands kappsmál að bjóða upp á tæknifræðinám til BS-
prófs á vettvangi Keilis enda væru þar afbragðs aðstæður
fyrir slíkt nám.
Rektor rifjaði einnig upp við hvaða aðstæður Keilir var
settur á laggirnar en þá fór m.a. saman aflabrestur á mið-
unum og brotthvarf bandaríska herliðsins með tilheyrandi
fækkun starfa og þrengingum í samfélaginu. Með Keili
hefði ætlunin verið að byggja upp háskólasamfélag og efla
bæði rannsóknir og kennslu a svæðinu.
„Með samstilltu átaki ólíkra aðila hefur tekist að breyta
gamalli herstöð í kvikt og þróttmikið samfélag sem ein-
kennist af frumkvæði, nýsköpun, rannsóknastarfi og fjöl-
breyttum tækifærum til aukinnar menntunar. Keilir er
miðpunkturinn í þessu nýja og gróskumikla samfélagi á
Ásbrú. Að mínu mati hefur Keilir því sannarlega staðið
undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar í upphafi
og gott betur,“ sagðir rektor enn fremur.
Texti og myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Góðir gestir!
10 ára saga Keilis á 14 metra langri risamynd
Því var fagnað sl. fimmtudag að tíu ár eru frá því Keilir - miðstöð vísinda, fræða
og atvinnulífs var stofnaður á Ásbrú í Reykjanesbæ. Tímamótanna var minnst
í Andrews leikhúsinu á Ásbrú og svo var gestum boðið að skoða skólann og
njóta veitinga. Það hefur margt gerst á þessari tíu ára vegferð Keilis en því helsta
í sögunni eru gerð skil á fjórtán metra langri og tveggja metra hárri mynd sem
sett hefur verið upp í Keili. Það er Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, KADECO,
sem lét gera myndina sem er sett upp í tímalínu og hefur þegar vakið mikla
athygli. Myndin er á einum af göngum skóla Keilis og öllum til sýnis á opnunar-
tíma skólans.
Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmda-
stjóri KADECO, afhenti Hjálmari Árnasyni,
framkvæmdastjóra Keilis, verkið.
Jónína Aradóttir, fyrrum nemandi
við Keili, spilaði og söng frum-
samið lag í afmælisveislunni.
Brýnt að fjölga nemendum í
tæknigreinum á háskólastigi
●● Keilir●hefur●staðið●undir●væntingum●og●gott●betur
Fjölmargir gestir mættu í afmæli Keilis. Fremsta sjáum við Guðna Th. Jóhannesson
forseta Íslands og Jón Atla Benediktsson rektor Háskóla Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, ávarpaði afmælisgesti.
Í Þ Æ T T I V I K U N N A R
á Hringbraut fimmtudagskvöld
kl. 20:00 og 22:00
GJÓLAN
KRÓKÓDÍLL
Queen
stoppar ekki
hjólareiðakappa
og margt annað áhugavert í þæi vikunar
á barnahátíð í DUUS
messan í Keflavíkurkirkju
Ítarlega umfjöllun um 10 ára afmæli
Keilis má sjá á vef Víkurfrétta, vf.is