Víkurfréttir - 12.01.2017, Blaðsíða 28
28 fimmtudagur 12. janúar 2017VÍKURFRÉTTIR
Húsasmiðjan vill ráða starfsmann í timburafgreiðslu fyrirtækisins
í Reykjanesbæ
Um er að ræða fullt starf og þarf viðkomandi að hefja störf sem fyrst
Ábyrgðarsvið
• Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
• Tilboðsgerð og leiðbeiningar við almennar byggingaframkvæmdir
• Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
• Mjög góð alhliða þekking á timbri og öðru byggingaefni
• Lyftararéttindi kostur
• Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
• Samskiptahæfni
• Íslenskukunnátta (tala og skrifa)
• Æskilegur aldur 20 +
Byggjum á betra verði
HÚSASMIÐJAN LEITAR
AÐ ÖFLUGUM LIÐSMANNI
Umsóknir berist fyrir
20. janúar n.k.
Til Einars
Ragnarssonar,
einarr@husa.is
Metnaður
Þjónustulund
Sérþekking
Húsasmiðjan leggur metnað sinn í
að veita fyrsta flokks þjónustu og
hafa gott aðgengi að vörum sínum
og starfsfólki. Það sem einkennir
starfsmenn Húsasmiðjunnar eru
eftirfarandi gildi:
1. 24k Magic -
Bruno Mars.
Almáttugur. Þetta
lag er svo ógeðs-
lega gott. Ég get
ekki ekki brosað
þegar þetta lag fer í
gang. Ég held að þetta
lag muni fylgja mér í mörg ár.
2. Me and Your Mama
- Childish Gambino.
Childish Gambino. What a man. Svo
hæfileikaríkur og klár listamaður.
Þetta lag er, held ég, uppáhaldið af
plötunni sem hann gaf út 2016. Byrjar
rólegt og svolítið svona öðruvísi en fer
svo út í gamaldags rokk sem minnir
helst á eitthvað Pink Floyd eða gefur
alla vega svipað „vibe“ og er bara svo
ofur svalt.
3. Purple Lam-
borghini
- Skrillex, Rick
Ross.
Þ e t t a l a g e r
HELLAÐ. Kemur
manni einhvern veg-
inn í gírinn og er fullkomið lag til að
setja í botn á rúntinum.
4. Makin’ a Move - TWRP.
Ég er alltaf til í „old school“ stuðlög.
Mér finnst TWRP algjörlega hafa
neglt það í þessu lagi. Mega nett
partýlag sem ég fíla í tætlur.
5. Queen’s
Speech 4 - Lady
Leshurr.
Þessi gella þykir
mér ekki bara
góður rappari heldur er hún líka klár
rappari. Hún er með skemmtilega
texta sem eru oft mjög sniðugir og
hún hefur algjörlega það sem ég leita
að í rappi.
6. Banana Brain - Die Antwoord.
Die Antwoord eru alltaf töff og fannst
mér bæði þ etta
lag og platan
sem það er á,
Mount Ninji
and da Nice
Time Kid,
sjúklega töff.
Þetta lag er til-
valið pepp-lag.
7. Casin - glue70.
Þetta lag náði mér strax þegar ég
heyrði það fyrst. Það er næstum of
stutt að mínu mati. Eitthvað við það
kemur mér bara í svo gott skap.
8. No Lie - Glowie.
Eina íslenska lagið
sem komst á
listann minn.
Þurfti að vera
alla vega eitt.
Ég hlustaði
mikið á þetta
í bí l ferðum
gegnum 2016.
Mjög „solid“ og
gott popplag.
9. Upside - Allen Stone.
Ég veit eiginlega ekki hvað skal segja
um þetta lag. En ég veit bara að ég fíla
það í botn.
10. Don’t Know Why
- Ricky Montgomery.
Þessi ungi maður er frábær. Ég skil
ekki hvernig stendur á því að mér líkar
einhvern veginn við allt sem hann
gerir. Ég dýrka þetta. Straight up.
LÖG ÁRSINS
Mun fylgja mér í mörg ár
Andrea Lind Hannah er 21 árs gömul söngkona frá Keflavík. Hún æfir söng í Tónlistaskóla Reykjanesbæjar og er meðlimur
hljómsveitarinnar SíGull, en þau spila framsækið, funkað popp. Andrea setti saman lista yfir þau tíu lög sem henni fannst best á
árinu 2016.
Tónleikaröðin Söngvaskáld á Suður-
nesjum heldur áfram á nýju ári og
verður boðið upp á þrenna tónleika í
febrúar, mars og apríl þar sem fjallað
verður um söngvaskáld og tónlistararf
Suðurnesja í tali og tónum.
Tónleikarnir verða haldnir í Bergi í
Hljómahöll þar sem sagan á bak við
tónlistina er kynnt í heimilislegri
stofustemmningu. Kynnir og hand-
ritshöfundur er Dagný Gísladóttir,
söngvari er Elmar Þór Hauksson
og útsetningar og píanóleikur eru í
höndum Arnórs B. Vilbergssonar sem
nýverið hlaut Menningarverðlaun
Reykjanesbæjar.
Að sögn Dagnýjar var ekki annað
hægt en að halda áfram með verkefnið
þar sem uppselt var á alla tónleika
raðarinnar á síðasta ári og bæta þurfti
við aukatónleikum. „Við ákváðum að
prófa þetta og sjá hvernig undirtektir
yrðu og það er óhætt að segja að þær
hafi verið umfram væntingar og það
var skorað á okkur að halda áfram –
sem er okkur bæði ljúft og skylt.“
Söngvaskáldin að þessu sinni verða
Ingibjörg Þorbergs, Þorsteinn Egg-
ertsson og Magnús Þór Sigmunds-
son og eru æfingar þegar hafnar fyrir
fyrstu tónleika raðarinnar sem helg-
aðir verða Ingibjörgu.
„Við erum mjög spennt fyrir söngva-
skáldunum okkar að þessu sinni og
það er gaman að geta bætt konu í
hópinn en þess má geta að Ingibjörg
nær þeim merka áfanga að verða ní-
ræð á árinu. Þorsteinn er konungur
lagatextanna svo þar er úr miklum
fjölda laga að velja og okkur þótti við
hæfi að fjalla nú um hinn hluta tví-
eykisins og Njarðvíkinginn, Magnús
Þór. Svo er bara að sjá hvernig Suður-
nesjamönnum líkar,“ sagði Dagný að
lokum en miðasala er hafin á vefnum
hljomaholl.is og er miðaverð 3.400
krónur.
SÖNGVASKÁLD Á SUÐURNESJUM
ÞRENNIR
TÓNLEIKAR Á NÝJU ÁRI
Tríóið, Arnór, Elmar og Dagný.
Ella 60 ára!
Kroppatemjarinn, félagsmálanördinn
og gleðigjafinn okkar, til hamingju
með daginn í dag.
Þínir aðdáendur til bæja og sveita.
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnukirkjan
í Keflavík,
Hafnargötu 84