Víkurfréttir - 22.02.2018, Síða 14
14 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 22. febrúar 2018 // 8. tbl. // 39. árg.
Aðalfundur
Verkstjóra- og stjórnendafélags
Suðurnesja,
verður haldinn, þriðjudaginn 6. mars 2018,
kl. 19:00, að Hafnargötu 15, í Reykjanesbæ
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Lagabreytingar
3. Kosning í stjórn og nefndir
4. Önnur mál
Kaffiveitingar verða á fundinum.
Bláa lónið er að opna nýtt hótel, veitingastað og heilsulind sem saman mynda
Blue Lagoon Retreat og stefnt er að opni í apríl.
Frá veitingastaðnum, sem verður
hæsti hluti mannvirkja Bláa lónsins,
hafa gestir gott útsýni yfir fjallið
Þorbjörn, Illahraun og fleiri perlur
Reykjaness. Basalt arkitektar ásamt
ítalska fyrirtækinu Design Group
Italia (DGI) sjá um að hanna veit-
ingastaðinn.
Yfirmatreiðslumeistarar veitinga-
staðarins, Moss Restaurant, verða
Ingi Þórarinn Friðriksson og Helga
Vigfúsdóttir og hafa þau viðað að sér
reynslu víðs vegar að úr heiminum.
Hráefnið sem þau bjóða upp á verður
fyrsta flokks, alls staðar að af landinu.
Einnig verður hægt að fá sæti við svo-
kallað „Chef ’s Table“ þar sem kokkur
eldar matinn fyrir framan gesti úr
íslensku gæðahráefni. Þá verður Moss
Restaurant búinn vínkjallara sem
verður undir yfirborði jarðar og á
sér engan líkan í heiminum.
HERBERGI UMKRINGD JARÐHITA VATNI
LÓNSINS
Nýjar svítur hótelsins í Bláa lóninu
eru hugsaðar til þess að gestir geti sótt
þangað í leit að hugarró, herbergin
eru umkringd jarðhitavatni Lónsins
og svalir veita ógleymanlegt útsýni
út á hraunið.
Hvert herbergi býður upp á nýja
upplifun og innifalið í gistingunni
er fullur aðgangur af heilsulindinni
ásamt annari þjónustu sem boðið er
upp á í Lóninu.
NÝ UPPLIFUN Í HEILSULIND BLÁA LÓNSINS
Ný heilsulind verður hluti nýja hótels
Bláa lónsins en við hönnun hennar var
horft til samspils íslenskrar náttúru,
átta hundruð ára gamals hrauns og
orku Bláa lónsins.
Í heilsulindinni munu gestir verða
fyrir nýrri upplifun þar sem rýmið
verður opið og umlukið vatni úr
Lóninu. Gestir verða meðal annars
neðanjarðar, umvafðir hrauni þar
sem þeir geta slakað á í ró og næði.
Boðið verður upp á þurrgufu, gufu,
nudd, arineld og glæsilegt útsýni frá
svölum, auk þess að gestir geta baðað
sig upp úr Lóninu.
Boðið verður upp á fyrsta flokks
þjónustu í heilsulindinni þar sem
að gestir upplifa fjársjóði jarðvarm-
ans frá svæðinu ásamt kíslinum og
þörungum þess. „Orka náttúrunnar,
sem er keyrð áfram af vísindum,
gefur upplifuninni á líkama og sál
nýtt sjónarhorn, veitir ró og endur-
nýjar.“ Þetta kemur fram á heimasíðu
heilsulindarinnar.
Nánar á retreat.bluelagoon.com
FYRSTA FIMM STJÖRNU HÓTEL LANDSINS
Glæsilegt athvarf með stórbrotnu útsýni
Skattafróðleikur KPMG í Reykjanesbæ
Ýmsar breytingar hafa orðið á skattalögum á síðastliðnu
ári og á fróðleiksfundum KPMG verður farið yfir helstu
breytingar og það sem er efst á baugi í skattamálum hér
á landi. Ný ríkisstjórn hefur boðað ýmsar breytingar
og verður meðal annars fjallað um þær. Fundurinn
fer fram þann 23. febrúar nk. að Krossmóa 4, 5. hæð.
Málefni tengd ferðaþjónustu verða til umfjöllunar en þau
hafa verið mikið í umræðunni og ekki síst þær áskoranir
sem eru uppi tengd afkomu fyrirtækja í ferðaþjónustu.
Einnig verður fjallað um áherslur skattayfirvalda í eftirliti,
þau málefni sem hafa verið til skoðunar og hvað er helst
að fara úrskeiðis þegar kemur að skattamálum fyrirtækja.
Á fundinum verður meðal annars velt fyrir sér hvernig
skattaeftirlit hefur verið að breytast í löndunum í kringum
okkur og spáð í hvaða áhrif tækniþróunar verða á skatta-
eftirliti til framtíðar. Ný löggjöf samfara nýrri tækni er
að gjörbylta skattaeftirliti og skattaálagningu.
Þátttaka er án endurgjalds og veitir einingar hjá FLE.
Skattabækling KPMG verður dreift frítt en hann er að-
gengilegt hjálpargagn þegar kemur að upplýsingum um
skatta og skyldur einstaklinga og fyrirtækja.