Land & synir - 01.11.1999, Qupperneq 2

Land & synir - 01.11.1999, Qupperneq 2
LAND OG SYNIR Nr. 21 - 3. tbl. 5. árg. 1999 Útgefandi: Félag kvikmyndagerðarmanna í samvinnu við Kvikmyndasjóð íslands. Ritstjóri og ábyrgðarmadur: Björn Brynjúlfur Björnsson. Blaðamaður: Skarphéðinn Guðmundsson. Ritnefnd: Anna Th. Rögnvaldsdóttir, Ásgrímur Sverrisson, Böðvar Bjarki Pétursson, Hákon Már Oddsson, Ólafur H. Torfason, Þorfinnur Ómarsson. Uppsetning: Erling Ingi Sævarsson. Prentun: Viðey. Land & synir kemur út annan hvern mánuð. Tölvupóstur: bjorn@hugsjon.is. Hún Edda okkar EDDAN, fyrsta íslenska kvikmynda- og sjónvarpshátíöin var nýlega haldin í Borgarleik- húsinu . Hátíðin er sniðin eftir ýmsum sambærilegum hátíðum austan hafs og vestan eins og Cannes, Berlín, Felix og Óskari. Ekki var annað að sjá en að hún Edda okkar sómdi sér vel í þessum hópi þótt ung sé og ómótuð. Raunar held ég að hátíðin hafi farið fram úr björtum vonum þeirra sem trú höfðu á fyrirtækinu og heppnast miklu betur en hinir svartsýnu höfðu spáð. Þeir svartsýnu áttu von á að alltyrði þetta heldur kauðskt og hallærislegt en eftir hátíðina hafa þær raddir þagnað. Eddan var send út í beinni útsendingu á Stöð 2 í ólæstri dagskrá og auðheyrt er að fólkið í landinu hefur fylgst með Eddu af áhuga og haft gaman af. Dagskráin var góð blanda af gamni og glensi en hafði samt yfir sér blæ alvöru og virðingar. í sjónvarpsútsendingunni virtist sem salurinn væri hálftómuren sú var ekki raunin heldur forðaðist fólk að sitja beintfyrir framan vélarnar. Aðsóknin var raunar mjög góð og ekki mun á löngu líða áður en færri komast á Edduna en vilja. Kvikmynda- og sjónvarps- iðnaður heimsins hefur yfir sér ákveðin blæ frægðar og frama sem hátíðir eins og Edda spila á. Séð og heyrtslóupp'+aforsíðu: "Sjáið stjörnurnar okkar skína". Leiðari blaðsins fjallaði um ágæti Eddunnar enda fékk blaðið þar á einu bretti sex síður af sínu uppáhaldsefni. En glansinn er ekki markmið heldur leið að því markmiði að beina athygli almennings að þvt sem best er unnið í kvikmynda- og sjónvarpsiðnaði á íslandi og halda þeim afurðum á lofti á markaðstorgi dagsins. Þetta virðist og hafa tekist ef marka má td. aðsókn á Ungfrúna góðu sem tók góðan kipp eftir að myndin sópaði til sín Eddunum. Á hátíðinni kom bæði sjónvarps- og kvikmynda- iðnaðurinn fram undir einum hatti og vafalaust er það báðum aðilum til góðs. Raunar má segja að lítið vit sé í öðru í ekki stærra landi. Kvikmyndir hafa yfir sér nokkurn ævintýrablæ en hins vegar ná fæstar þeirra því áhorfi á íslandi sem sæmilegur sjónvarpsþáttur nær í hverri viku. Almenningur þekkir því betur til sjónvarpsefnis en kvikmynda. Það er raunar mikilvæg forsenda hátíðarinnar að almenningur fái að taka þátt í að útdeila Eddunum. Að þessu sinni greiddu á annað þúsund manns atkvæði á netinu sem sýnir vel áhugann. Atkvæði almennings vógu 30% á móti 70% vægi atkvæða fagfólksins. í framtíðinni mætti hugsa sér að hnika þvítil eða hafa sérstök verðlaun sem almenningur fengi einn að velja. Þetta atriði og raunar fjölmörg önnur verða skoðuð fyrir næstu hátíð með það fyrir augum að gera hana Eddu okkar enn betri og skemmtilegri eftir því sem árin færastyfir hana. FÉLAG KVIKMYNDAGERÐARMANNA STJÓRN: Formaður: Björn Br. Björnsson. Varaformaður: Jón Karl Helgason. Gjaldkeri: Katrín Ingvadóttir. Ritari: Kristín Atladóttir. Meðstjórnandi: Hjálmtýr Heiðdal. Varamaður: Kristín María Ingimarsdóttir. FORMENN GILDA: Framkvæmda- og framleiðslugildi: Jóna Finnsdóttir. Handritshöfundagildi: Friðrik Erlingsson. Hljóðgildi: Þorbjörn Erlingsson. Hreyfimyndagildi: Kristín María Ingimarsdóttir. Klipparagildi: Sigurður Snæberg Jónsson. Kvikmyndastjóragildi: Hjálmtýr Heiðdal. Leikmyndagildi: Geir Óttarr Geirsson. FULLTRÚAR FK: í stjórn Bandalags íslenskra listamanna: Björn Br. Björnsson. í stjórn Kvikmyndasjóðs: Jóna Finnsdóttir. í stjórn MEDIA upplýsingaskrifstofunnar á íslandi: Ásthildur Kjartansdóttir. í fulltrúaráði Listahátíðar: Björn Br. Björnsson, Katrín Ingvadóttir. í Kvikmyndaskoðun og ISETU/FISTAV: Sigurður Snæberg Jónsson. í stjórn Kvikmyndahá- tíðar í Reykjavík: Böðvar Bjarki Pétursson. í stjórn íslensku kvikmynda- og sjónvarps- akademíunnar: Björn Br. Björnsson, Jón Karl Helgason. EDDUVERÐLAUNIN --------- 1999 --------- Hinn 15. nóvember voru Edduverðlaunin aflient með pomp og prakt í Borgarleikhúsinu. Eftirtaldir aðilar hlutu Edduna að þessu sinni: BÍÓMYND ÁRSINS: Ungfrúin góða og húsið Framleiðendur: Halldór Þorgeirsson, Snorri Þórisson, Erie Crone, Crister Nilson Leikstjóri: Guðný Halldórsdóttir Handrit: Guðný Halldórsdóttir LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI ÁRSINS: Fóstbræður Framleiðandi: Óskar Jónasson fyrir Stöð 2 Leikstjórn: Óskar Jónasson Handrit: Sigurjón Kjartansson, Jón Gnarr, Helga Braga Jónsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson HEIMILDARMYND ÁRSINS: Sönn íslensk sakamál Stjóm: Björn Brynjúlfur Bjömsson Handrit: Sigursteinn Másson Framleiðendur: Björn Brynjúlfur Björnsson og Viðar Garðarsson fyrir Hugsjón SJÓNVARPSÞÁTTUR ÁRSINS: Stutt í spunann Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson fjuir RÚV-sjónvarp Umsjón: Eva María Jónsdóttir og Hjálmar Hjálmarsson LEIKKONA ÁRSINS: Tinna Gunnlaugsdóttir fyrir “Ungfrúna góðu og húsið” LEIKARI ÁRSINS: Ingvar E. Sigurðsson fyrir “Slurpinn og co” LEIKSTJÓRI ÁRSINS: Guðný Halldórsdóttir fyrir “Ungfrúna góðu og húsið” FAGVERÐLAUN ÁRSINS: Ragna Fossberg fyrir förðun í “Dómsdegi” og “Ungfrúnni góðu og húsinu” Hilmar Örn Hilmarsson fyrir tónlist í “Ungfrúnni góðu og húsinu” Þórunn María Jónsdóttir fyrir búninga í “Dansinum” SÉRSTÖK HEIÐURSVERÐLAUN: Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur og kvikmyndaframleiðandi. Framlag íslands til Óskarsverðlauna var valið "Ungfrúin góða og húsið" Framleiðendur: Halldór Þorgeirsson, Snorri Þórisson, Eric Crone, Crister Nilson Leikstjóri: Guðný Halldórsdóttir Handrit: Guðný Halldórsdóttir 2 lamú&synir

x

Land & synir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.