Land & synir - 01.11.1999, Side 3

Land & synir - 01.11.1999, Side 3
Konsúlentakerfi - hvað er það? Staðan á öðrum Norðurlöndum UMRÆÐA um úthlutunarkerfí hefur löngum verið mjög takmörkuð hér á landi. Þetta er athyglisvert af ýmsum ástæðum; bæði vegna þess að víða erlendis eru slík mál í stöðugri um- ræðu og endurskoðun, og ekki síst í ljósi þess að margir fínna núverandi úthlutunarkerfi ýmislegt til foráttu. Raunar eru afar fáir sem verja nú- verandi kerfí, þó að vissulega telji ýmsir það skárstu lausnina sem í boði er. Lög um Kvikmyndasjóð Islands hafa verið óbreytt í 15 ár, eða frá 1984. Frá þeim tíma hefur allt umhverfí í fjármögnun íslenskra kvikmynda tek- ið gífurlegum breytingum. Ýmsir al- þjóðlegir sjóðir, s.s. Norræni sjóður- inn og Eurimages, hafa nú starfað í um áratug, og vel flestir kvikmynda- sjóðir í Evrópu hafa tekið ýmsum breytingum í takt við tímann. Kvikmyndastofnanir Norðurlandanna hafa allar verið í einhverri þróun á síð- ustu árum, sumar reyndar breyst mjög mikið. Þegar grannt er skoðað hefur Kvikmyndasjóður Islands reyndar þróast gífurlega líka, þrátt fyrir að sömu lög séu um stofnunina og fyrr og því ákveðnar hömlur á breytingum. Danmörk Danska Kvikmyndastofnunin tók veru- legum breytingum fyrir tæpum tveimur árum, þegar ný lög voru sett um kvik- myndamál og stofnunin stokkuð upp með duglegum hætti. Kvikmyndastofnunin var stækkuð verulega með sameiningu ýmissa stofnana sem fyrir voru og heild- arfjármagn til kvikmyndagerðar var aukið. Henning Camre er framkvæmdastjóri stofnunarinnar, sem síðan skiptist í þrjú svið: framleiðslusvið, markaðs- og dreif- ingarsvið, og kvikmyndasafn/cinematek. Thomas Stenderup er deildarstjóri framleiðslusviðs. í því felst allt í senn þróun verkefna, framleiðsla á bíómynd- um, stuttmyndum, heimildarmyndum, os- frv. Deildin hefur til umráða 220 milljónir DKK, eða um 2,3 milljarða íslenskra króna. Konsúlentar hafa til umráða megnið af þessari fjárhæð og eru konsú- lentar á nokkrum sviðum, þ.e. almennum bíómyndum, barnamyndum, stuttmynd- um og heimildarmyndum. Því til viðbótar hefur Thomas sjálfur ákveðna fjárhæð til ráðstöfunar og enn- fremur getur Hanning Camre sett verk- efni af stað án þess að konsúlentar komi þar við sögu. Þetta þykja mjög effektíf vinnubrögð í Danmörku. Það hefur auð- vitað ákveðna kosti að þeir sém koma fram fyrir hönd stofnunarinnar - og eru þar með ábyrgir fyrir stefnu hennar út á við - geti komið beint að ákvörðanatök- unni, enda þótt konsúlentarnir hafi sem áður segir mest um það að segja. Að mörgu leyti er staða þeirra Camre og Stenderup á svipuðu sviði og fram- kvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs, þó að valdsviðið sé að einhverju leyti ólíkt. Finnland Finnar hafa búið við nokkuð óbreytt kerfi á undanförnum árum. Finnska kvikmyndastofnunin hefur þó haft úr auknu fjármagni að spila uppá síðkastið. Finnland eitt Norðurlandanna starfræk- ir sjálfstætt kvikmyndasafn, án nokk- urra fjárhags- legra tengsla við kvikmynda- stofnunina. Safnið er raunar afar stórt og öfl- ugt, með um 50 starfsmenn sem safna og skrá nánast allt sem hugsanlega tengist kvik- myndum, en það er önnur saga. Jouni Mykkánen er framkvæmda- stjóri Finnsku kvikmyndastofnunarinn- ar, en yfirmaður framleiðsludeildar er Erkki Astala. Ólíkt skandinavísku lönd- unum, er ekki beinlínis konsúlentakerfi í Finnlandi, heldur hefur Erkki nánast óskorðuð völd yfir því hvaða verkefni hljóta brautargengi. Hann hefur að vísu einhverja lesara með sér, en ber einn og óstuddur ábyrgð á styrkveitingum, sem hann þarf þó að fá samþykktar hjá fram- kvæmdastjóra og síðan í stjórn. Þetta er ekki ósvipað vinnulagi í Norræna sjóðn- um, þar sem framkvæmdastjórinn ræður einn ferðinni, en ræður sér lesara eftir þörfum. í sjálfu sér væri þetta fram- kvæmanlegt hér á land, svo fremi sem viðkomandi hlyti almennt traust í okkar smáa kvikmyndaheimi. Reyndar er umfangsmesta deildin fram- leiðslu- og alþjóðadeild, sem líkist allri starfsemi Kvikmyndasjóðs Islands ef Kvikmyndasafnið er undanskilið. Yfir- maður deildarinnar er Jan Erik Holst og hefur hann talsvert um úthlutanir að segja, enda þótt á vegum hans starfi konsúlentar, reyndar aðeins einn á sviði leikinna kvikmynda og annar á sviði stuttmynda og heimildarmynda. Norðmenn höfðu til lengri tíma úthlut- unarnefnd, með svipuðu sniði og hér á landi, en allan þennan áratug hafa konsú- lentar ráðið ferðinni. Ráðnir hafa verið menn með reynslu í kvikmyndafram- leiðslu og hefur ekki verið deilt á hugs- anlega hlutrægni þeirra, jafnvel þótt norski kvik- myndaheimurinn sé ekki stór í snið- um. A þessu ári hafa Norðmenn lent í miklum þrengingum vegna svokallaðra eftir-á-styrkja. Þeir greiðast í réttu hlut- falli við aðsókn, þannig að framleiðandi vinsællar kvikmyndar hlýtur ekki aðeins fjármuni úr bíódreifingunni, heldur umb- unar ríkið honum til viðbótar með ákveð- inni fjárhæð fyrir hvern seldan bíómiða. Þetta kann að hljóma undarlega í fyrstu, en er gert til að hvetja framleiðendur til að gera kvikmyndir fyrir áhorfendur og markaðssetja þær með árangursríkum hætti (í stað þess að gera mynd á 100% styrkjum og vera alveg saman hvort nokkur komi að sjá myndina). Norðmenn lentu semsé í þeirri óþægi- legu stöðu, að gera of vinsælar kvik- myndir á síðasta ári! Fyrir vikið lækk- uðu styrkir til nýrra kvikmynda á þessu ári um 20%. A hinn bóginn hefur þetta fé vissulega farið til framleiðenda, sem ættu þá að vera í góðri aðstöðu til að halda áfram starfsemi af fullum krafti. Noregur Uppbygging Norsku kvikmyndastofnun- arinnar er ekki ósvipuð þeirri dönsku, þ.e. skipting í þrjár megin deildir. Svíþjóð Þær óvæntu fréttir bárust frá Svíþjóð á dögunum, að Áse Kleveland hefði verið ráðin FRAMHALD Á NÆSTU SÍÐU Land og synir fjalla um það sem stundum er kallað konsúlantakerfi. Þar sjá konsúlantar (sjóðsstjórar) um úthlutanir fjár úr kvikmyndasjóðum í stað úthlutunarnefnda. Land&symr 3

x

Land & synir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.