Land & synir - 01.11.1999, Síða 8

Land & synir - 01.11.1999, Síða 8
Listform hraðans Um hliöstæður i þróun rokks og kvikmynda NORSKUR kvikmyndaskríbent hefur bent á að kvikmyndin sé fyrsta kapítal- íska listgreinin, fyrsta listgreinin sem var sköpuð til þess eins að græða. Svip- að gildir um rokkið sem var fyrsta hreinkapítalíska tónlistarformið. Margt bendir til þess að rokkmúsikk sé ekki að öllu leyti sjálfsprottin heldur hafi verið „hönnuð” af tónlistariðnaðinum. Hann hafi verið að leita að tónlist sem samein- aði kántrí og tónlist blökkumanna. Sú síðarnefnda var litin hornauga af hvítum foreldrum, nú var um að gera að finna henni umgjörð sem foreldrarnir þoldu. Rokkararnir voru flestir hvítir en tónlist þeirra og taktar að miklu leyti svartrar ættar og iðnaðurinn stórgræddi. Tveggja manna borgaraleg bylting Það er kunnara en frá þurfi að segja að listræn sköpun hefur átt erfitt uppdrátt- ar bæði í kvikmynda- og rokkiðnaðinum. Þessvegna hefur nýstefnan (módernism- inn) átt undir högg að sækja í báðum listformum enda eru nýstefnuverk venjulega ekki söluvara. Þó má finna módernískar hneigðir í jafnt rokki sem kvikmyndum og hyggst ég sýna fram á að hvortveggju hafi átt sitt móderníska skeið, kvikmyndirnar u.þ.b. 1957-1980, rokkið 1967-1973. Nú kann einhver að malda í móinn og benda á að menn hafi gert tilraunamyndir allar götur frá því um 1920 og jafnvel fyrr. Minna má á hugmyndina um „hreinu myndina” (cinéma pure) sem ekki átti að segja sögu heldur vera abstrakt. Frægust hreinmynda er líklega Ballet mécanique sem Ferdnand Léger, móderískur mynd- listarmaður, gerði. Og ekki verða myndir Dalís og Bunuels kenndar við annað en nýstefnu, þær eru bullandi súrrealískar. Ég vil bæta við frá eigin brjósti að enn harðsoðnari súrrealisma má finna í teiknimyndum frá Hollívúdd á árunum upp úr 1940 en það er önnur saga. Eigin- lega er mín saga sú að þegar ég tala um kvikmyndir í þessari grein á ég við leiknar myndir í fullri lengd. Stuttmynd- in hefur verið vígi framúrstefnu, ekki langmyndin. Sú síðarnefnda lýtur venju- lega aldagömlum hefðum um hvernig segja skuli sögu, kenna má frásagnar- hefðir íslendingasagna, ævintýra og raunsæisbókmennta síðustu aldar í flest- um Hollívúddmyndum. Hollívúddmynd- irnar eiga það líka sammerkt með sögum frá því fyrir tíð borgaralegs skipulags að þær eru hópvinnuverk nafnlausra höf- unda líkt og íslendingasögurnar líklega voru. Segja má að gagnrýnendur Cahi- ers du Cinéma, þeir Francois Truffaut og Jean-Luc Godard, hafi framið tveggja manna borgaralega byltingu í heimi kvikmyndanna. 1) Nú var leikstjórinn dubbaður upp og kallaður „kvikmynda- höfundur”, jafnvel sum fjöldaframleidd verk báru höfundareinkenni. Þetta var sem sagt öðrum þræði afturvirk bylting rétt eins og byltingin í norrænum fræð- um þegar menn fundu upp höfund Njálu og gerðu hann að Goethe sinnar samtíð- ar. En bylting franska tvístirnisins var líka framvirk, árin 1957 til 1980 eru tím- ar kvikmyndahöfundarins og módern- ismans. Byltingin var ekki síst sjálfsköp- un Truffauts og Godards sem bjuggu til kvikmyndahöfunda úr sjálfum sér. 2) Þeir voru sem frægt er orðið forsprakkar hinnar rammmódernísku nýbylgju. Um framlag bæði Bergmanns og ýmissa ítala til nýstefnubyltingarinnar þarf ekki að fjölyrða en takið eftir að margir af þessum leikstjórum hófu feril sinn sem höfundar hefðbundinna mynda (Berg- man, Pasolini). Það voru nefnilega til kvikmyndahöfundar í Evrópu og Japan sem vissu að þeir voru höfundar, gagn- stætt átrúnaðargoðum Godards í Hollí- vúdd sem héldu að þeir væru iðnaðar- menn og voru það kannski. Líkja má for- módernísku kvikmyndahöfundunum evr- ópsku við rithöfunda nítjándu aldarinnar, bæði raunsæja og rómantíska. Þýsku ex- pressjónistarnir og Jean Cocteau eru rómantískir, mynd þess síðarnefnda, Orfeus, fjallar um hið erkirómantíska viðfangsefni, samband skáldsins og dauð- ans. Og expressjónistarnir gerðu myndir í ætt við gotneska hryllingsrómantík, það er ekki langur vegur frá skáldsögu Mary Shelley um Frankenstein til mynda Fritz Lang um dr. Mabuse. Ekki skorti nítjándualdarraunsæi hjá ítölsku nýrealistunum og ljóðræna raunsæið franska sameinar rómantík og realisma eins og mikið af bókmenntum nítjándu aldarinnar gerði. Þannig lifði borgaralegt raunsæi og rómantík við hlið hinna for- borgaralegu Hollívúddmynda. Tilvísunarárátta og frumleiki Mikið hefur verið rætt og ritað um hið stutta blómaskeið módernismans í kvik- myndum og hef ég litlu við það að bæta. Það er alla vega athyglisvert hversu fljótt póst-módernisminn tekur að láta á sér kræla. Upp úr 1970 fara endalausar tilvísanir í fyrri myndir að ríða (kvik- mynda)húsum, jafnt í Hollívúdd sem annars staðar. Menn taka að gera með- vitað inntaksrýrar myndir með glott á vör og rjúfa múrinn sem greindi hálist og afþreyingu. Tilvís- unaráráttan er skrít- in, það er einkenni- legt að jafn ung list- grein og kvikmyndin skuli vera svona upp- tekin af eigin sögu, vera sífellt að vísa til fortíðar sem engin er. Það er ekki síður at- hyglisvert að rokkið átti sér póstmóder- ískt skeið upp úr 1970. Rokkið komst allt í einu til meðvit- undar um eigin sögu eins og heyra má í sorgaróð Dons McLe- an um glataða rokk- bernsku í laginu The Day the Music Died. Póstmódernisminn sést enn skýrar í söngleiknum Rocky Horror Show þar sem vísað er til ým- issa tímabila í sögu rokksins. A árunum 1967-70 mátti ekki heyra á slíkt fortíðar- dekur minnst. Við, sem töldum okkur framúrstefnufólk, kröfðumst þess af rokkhetjum okkar að þær kæmu stöðugt með eitthvað nýtt og tækju framförum í spilamennsku. Við höfðum því módernískar hugmyndir um rokk án þess að vita það, en framfara- hyggja og frumleikakrafa eru einmitt að- alsmerki nýstefnunnar. Móderismi okkar birtist líka í úrvalshyggju, sannfæringu um að pöpullinn, sem hlustaði bara á slagara, hefði ekki vit á rokki. Hetjur okkar, framúrstefnumennirnir í rokkinu, vildu láta líta á sig sem listamenn, ekki skemmtikrafta á markaðstorgi hé- gómans. Var það mjög í módernískum anda því andúð á listrænni kaupmennsku er ein af meginstoðum módernismans. Framúrstefnurokkararnir frömdu ýmiss konar tilraunir, notuðu móderíska hljóma, sömdu löng og flókin verk, reyndu að skapa persónulegan stíl, reyndu m.ö.o. að vera módernistar. Margir textagerðarmenn lærðu af módernískum skáldum og voru þeir helstir Bob Dylan, Leonard Cohen og Skotinn Donovan. Rétt fyrir miðjan átt- unda tuginn verður breyting á, tilrauna- mönnum fækkar til muna, póst-móder- 8 lanð&symr

x

Land & synir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.