Land & synir - 01.11.1999, Page 11

Land & synir - 01.11.1999, Page 11
Fyrst og fremst ævintýramennska Ámi Ólafur Ásgeirsson er að Ijúka námi í kvikmyndaleikstjóm við kvikmyndaskólann í Lódz í Póllandi ÁRNI Ólafur Ásgeirsson lýkur á næst- unni námi í kvikmyndaleikstjórn frá kvikmyndaháskólanum í Lódz í Póllandi en þar hefur hann verið undanfarin fimm ár. Árni sker sig auðvitað nokkuð úr þeim fjölda kvikmyndagerðarmanna sem stundað hafa nám við erlenda kvik- myndaháskóla á undanförnum árum enda hefur straumurinn legið vestur um haf eða til nágrannalandanna. “Ég er búinn að svara þessari spurn- ingu svo ofboðslega oft,” sagði Árni þeg- ar blaðamaður Lands og sona spurði hann hvernig það hefði komið til, að hann hélt til Póllands í nám. “Fyrst langaði mig auðvitað til Ameríku en svo hætti ég við það þegar ég var kominn að þeirri niðurstöðu að ég hefði meiri áhuga á evrópskri kvikmyndagerð.” Kveðst Árni aukinheldur hafa heyrt misjafnar sögur af kvikmyndaskólunum í Banda- ríkjunum. “Fyrst ætlaði ég til Ítalíu, síðan til Frakklands, svo Englands, Kaupmanna- hafnar og svo framvegis og framvegis og framvegis. í kjölfarið horfði ég alltaf á fleiri og fleiri kvikmyndir og svo ein- hvern veginn ákvað ég bara að “fara alla leið”. Það er nefnilega þannig að maður er uppalinn við þessa vestrænu kvik- myndahefð og mig langaði bara að kynna mér eitthvað annað,” segir Árni. “En auðvitað er þetta fyrst og fremst ævintýramennska.” Lódz er næst stærsta borgin í Pól- landi og þar býr um milljón manns. Borgin er í miðju Póllandi og að sögn Árna er þetta iðnaðarborg. Kvikmynda- skólinn þar ku hins vegar njóta mikillar virðingar. Fór út einmitt þegar frægð- arsól Kieslowskis reis hæst Aðspurður viðurkennir Árni að það hafi vissulega haft áhrif á sig, þegar hann valdi um hvort hann sækti um inngöngu í kvikmyndaháskólana í Lódz, Búdapest, Prag eða Moskvu að pólski kvikmynda- gerðarmaðurinn Krystof Kieslowski hafði þá einmitt nýlega slegið í gegn með mynd sína “Tvöfalt líf Veroniku”. í kjölfarið kom litatrílógía Kieslowskis. “Mig minnir að fyrsta myndin, “Blár” hafi einmitt komið út árið sem ég fór út. Auðvitað hafði þetta áhrif á mig, Kieslowski var eina stjarnan frá Austur- Evrópu.” Um þær mundir sem Árni hóf nám í Lódz var í bígerð að Kieslowski hæfi þar kennslu og Árna hefði því gefist tæki- færi til læra undir hans stjórn hefði Kieslowski ekki skyndilega fallið frá. “Því miður rétt missti ég af tækifærinu ÁRNI ÓLAFUR ÁSGEIRSSON til að stunda nám undir hans stjórn,” segir Árni. Eftir að hafa fengið inngöngu í skól- ann þurfti Árni að eyða einu skólaári í tungumálanám en að því loknu tók við hið eiginlega kvikmyndagerðarnám. Strax í upphafi hafði hann valið sér að nema leikstjórn, en reglur skólans geri einmitt kröfu til þess að menn velji snemma hvaða hlið kvikmyndagerðar- innar þeir hyggjast leggja fyrir sig, kvikmyndatöku, leikstjórn, framleiðslu eða handritagerð. Árni segir það einn stærsta kost skólans í Lódz að menn fái raunverulega að prófa sig áfram. Gerð sé krafa um að menn geri tvær myndir strax á fyrsta ári, eina leikna mynd á vídeó og eina heimildarmynd á filmu. Á öðru ári geri menn aftur tvær myndir en nú sé heim- ildarmyndin gerð á vídeó og leikna myndin á filmu. Á þriðja ári sé mönnum hins vegar gefnar frjálsar hendur. “Fyrstu tvö árin eru rosalega stíf. Sí- felldur lærdómur alveg frá morgni til kvölds, ég held ég hafi verið í fjórtan fögum og það var allt frá kvikmynda- sögu til kvikmyndakenninga, handrita- gerð, kvikmyndatöku, vinnu með leikur- um og svo framvegis.” Á þriðja ári geti menn hins vegar valið, gert aftur eina heimildarmynd og eina leikna eða þá tekið einhvern annan kost. “Og það sem ég ákvað að gera var að taka allt “budgetið” sem ég fæ frá skólanum á tveimur skólaárum, og setja það saman í eitt. Það verður lokaverk- efnið mitt.” Árni segir allt tilbúið fyrir gerð loka- verkefnisins og að hann muni hefjast handa við kvikmyndatökur er hann heldur aftur út til Póllands í september. “Ég er búinn að skrifa handritið. Það er búið að redda leikurum og gera alla undirbúningsvinnu.” Myndin verður stuttmynd upp á um tuttugu mínútur, hefðbundin ástarsaga, “söguþráður úr brasilískri sápuóperu,” segir Árni. “Ég er svo sentimental, maður!” Pólsk kvikmyndagerð á villigötum Þeir Roman Polanski, Kieslowski og Andrejz Wadja er sjálfsagt þekktastir allra pólskra kvikmyndagerðarmanna en Árni segir litla grósku vera í kvik- myndagerðinni þar í landi um þessar mundir. Hann segir að á tímum komm- únista í Póllandi hafi sennilega verið frábært að stunda þar kvikmyndagerð. Landið hafi verið tiltölulega frjálst og opið, miðað við önnur austantjaldsríki, og kvikmyndagerðarmenn hafi nokkurn veginn fengið að gera það sem þeir vildu. Og ríkið hafi styrkt listir svo um munaði. Annað sé uppi á teningnum núna, gróðasjónarmið ráði öllu og því séu að- eins gerðar kvikmyndir fyrir tiltekna markhópa, myndir sem vitað er að skili gróða. Sköpunargleðinni sé í hóf stillt vegna þessa. “Á tímum kommúnistanna þurftu kvikmyndagerðarmenn ekkert að gera myndir sem skiluðu hagnaði, þeir gerðu bara það sem þeir vildu. Með falli kommúnismans hrundi þetta allt. Allir opinberir sjóðir voru fyrir bí og menn þurftu að fara taka þetta öðrum tökum.” FRAMHALD Á NÆSTU SÍÐU Lanð&synir \ \

x

Land & synir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.