Land & synir - 01.11.1999, Síða 11
Fyrst og fremst ævintýramennska
Ámi Ólafur Ásgeirsson er að Ijúka námi í kvikmyndaleikstjóm við kvikmyndaskólann í Lódz í Póllandi
ÁRNI Ólafur Ásgeirsson lýkur á næst-
unni námi í kvikmyndaleikstjórn frá
kvikmyndaháskólanum í Lódz í Póllandi
en þar hefur hann verið undanfarin
fimm ár. Árni sker sig auðvitað nokkuð
úr þeim fjölda kvikmyndagerðarmanna
sem stundað hafa nám við erlenda kvik-
myndaháskóla á undanförnum árum
enda hefur straumurinn legið vestur um
haf eða til nágrannalandanna.
“Ég er búinn að svara þessari spurn-
ingu svo ofboðslega oft,” sagði Árni þeg-
ar blaðamaður Lands og sona spurði
hann hvernig það hefði komið til, að
hann hélt til Póllands í nám. “Fyrst
langaði mig auðvitað til Ameríku en svo
hætti ég við það þegar ég var kominn að
þeirri niðurstöðu að ég hefði meiri áhuga
á evrópskri kvikmyndagerð.” Kveðst
Árni aukinheldur hafa heyrt misjafnar
sögur af kvikmyndaskólunum í Banda-
ríkjunum.
“Fyrst ætlaði ég til Ítalíu, síðan til
Frakklands, svo Englands, Kaupmanna-
hafnar og svo framvegis og framvegis og
framvegis. í kjölfarið horfði ég alltaf á
fleiri og fleiri kvikmyndir og svo ein-
hvern veginn ákvað ég bara að “fara alla
leið”. Það er nefnilega þannig að maður
er uppalinn við þessa vestrænu kvik-
myndahefð og mig langaði bara að
kynna mér eitthvað annað,” segir Árni.
“En auðvitað er þetta fyrst og fremst
ævintýramennska.”
Lódz er næst stærsta borgin í Pól-
landi og þar býr um milljón manns.
Borgin er í miðju Póllandi og að sögn
Árna er þetta iðnaðarborg. Kvikmynda-
skólinn þar ku hins vegar njóta mikillar
virðingar.
Fór út einmitt þegar frægð-
arsól Kieslowskis reis hæst
Aðspurður viðurkennir Árni að það hafi
vissulega haft áhrif á sig, þegar hann
valdi um hvort hann sækti um inngöngu
í kvikmyndaháskólana í Lódz, Búdapest,
Prag eða Moskvu að pólski kvikmynda-
gerðarmaðurinn Krystof Kieslowski
hafði þá einmitt nýlega slegið í gegn
með mynd sína “Tvöfalt líf Veroniku”. í
kjölfarið kom litatrílógía Kieslowskis.
“Mig minnir að fyrsta myndin, “Blár”
hafi einmitt komið út árið sem ég fór út.
Auðvitað hafði þetta áhrif á mig,
Kieslowski var eina stjarnan frá Austur-
Evrópu.”
Um þær mundir sem Árni hóf nám í
Lódz var í bígerð að Kieslowski hæfi þar
kennslu og Árna hefði því gefist tæki-
færi til læra undir hans stjórn hefði
Kieslowski ekki skyndilega fallið frá.
“Því miður rétt missti ég af tækifærinu
ÁRNI ÓLAFUR ÁSGEIRSSON
til að stunda nám undir hans stjórn,”
segir Árni.
Eftir að hafa fengið inngöngu í skól-
ann þurfti Árni að eyða einu skólaári í
tungumálanám en að því loknu tók við
hið eiginlega kvikmyndagerðarnám.
Strax í upphafi hafði hann valið sér að
nema leikstjórn, en reglur skólans geri
einmitt kröfu til þess að menn velji
snemma hvaða hlið kvikmyndagerðar-
innar þeir hyggjast leggja fyrir sig,
kvikmyndatöku, leikstjórn, framleiðslu
eða handritagerð.
Árni segir það einn stærsta kost
skólans í Lódz að menn fái raunverulega
að prófa sig áfram. Gerð sé krafa um að
menn geri tvær myndir strax á fyrsta
ári, eina leikna mynd á vídeó og eina
heimildarmynd á filmu. Á öðru ári geri
menn aftur tvær myndir en nú sé heim-
ildarmyndin gerð á vídeó og leikna
myndin á filmu. Á þriðja ári sé mönnum
hins vegar gefnar frjálsar hendur.
“Fyrstu tvö árin eru rosalega stíf. Sí-
felldur lærdómur alveg frá morgni til
kvölds, ég held ég hafi verið í fjórtan
fögum og það var allt frá kvikmynda-
sögu til kvikmyndakenninga, handrita-
gerð, kvikmyndatöku, vinnu með leikur-
um og svo framvegis.”
Á þriðja ári geti menn hins vegar
valið, gert aftur eina heimildarmynd og
eina leikna eða þá tekið einhvern annan
kost. “Og það sem ég ákvað að gera var
að taka allt “budgetið” sem ég fæ frá
skólanum á tveimur skólaárum, og setja
það saman í eitt. Það verður lokaverk-
efnið mitt.”
Árni segir allt tilbúið fyrir gerð loka-
verkefnisins og að hann muni hefjast
handa við kvikmyndatökur er hann
heldur aftur út til Póllands í september.
“Ég er búinn að skrifa handritið. Það er
búið að redda leikurum og gera alla
undirbúningsvinnu.” Myndin verður
stuttmynd upp á um tuttugu mínútur,
hefðbundin ástarsaga, “söguþráður úr
brasilískri sápuóperu,” segir Árni. “Ég
er svo sentimental, maður!”
Pólsk kvikmyndagerð á
villigötum
Þeir Roman Polanski, Kieslowski og
Andrejz Wadja er sjálfsagt þekktastir
allra pólskra kvikmyndagerðarmanna
en Árni segir litla grósku vera í kvik-
myndagerðinni þar í landi um þessar
mundir. Hann segir að á tímum komm-
únista í Póllandi hafi sennilega verið
frábært að stunda þar kvikmyndagerð.
Landið hafi verið tiltölulega frjálst og
opið, miðað við önnur austantjaldsríki,
og kvikmyndagerðarmenn hafi nokkurn
veginn fengið að gera það sem þeir
vildu. Og ríkið hafi styrkt listir svo um
munaði.
Annað sé uppi á teningnum núna,
gróðasjónarmið ráði öllu og því séu að-
eins gerðar kvikmyndir fyrir tiltekna
markhópa, myndir sem vitað er að skili
gróða. Sköpunargleðinni sé í hóf stillt
vegna þessa. “Á tímum kommúnistanna
þurftu kvikmyndagerðarmenn ekkert
að gera myndir sem skiluðu hagnaði,
þeir gerðu bara það sem þeir vildu. Með
falli kommúnismans hrundi þetta allt.
Allir opinberir sjóðir voru fyrir bí og
menn þurftu að fara taka þetta öðrum
tökum.”
FRAMHALD Á NÆSTU SÍÐU
Lanð&synir \ \