Land & synir - 01.11.1999, Qupperneq 14

Land & synir - 01.11.1999, Qupperneq 14
Eins og skvísurnar í Ólafur H. Torfason ræðir við Guðnýju Halldórsdóttur (Dunu) fer með hlutverk Hlyns en með aðal kvenhlutverk fer hin kunna spænska leikkona Victoria Abril, sem er hvað þekktust fyrir hlutverk sín í myndum Pedro Almodovar. Hún hefur komið víða við á ferli sínum og leikur jafnt í spænsk- um sem frönskum myndum. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir frammistöðu sína og má þar nefna Silfurbjörninn á kvikmyndahátíðinni í Berlín árið 1991 fyrir Cambio de sexo eftir Vicente Aranda; tvisvar hefur hún hlotið verð- laun á kvikmyndahátíðinni í San Sebasti- an og árið 1996 fékk hún Goya-verðlaun- in í Cannes fyrir leik sinn í myndinni Nadie hablará de nosotras cuando hayamos muerto. Spennandi verður að sjá útkomuna á samleik þessara tveggja frambærilegu aðalleikara. Annað samstarf sem vekur athygli er kvikmyndatónlist þeirra Einars Arnar Benediktssonar, fyrrverandi Sykurmola, og Damon Albarn, forsprakka bresku hljómsveitarinnar Blur. Segja má að Ein- ar sé að heyja frumraun sína á þessu sviði en Albarn hefur þegar samið tónlist við kvikmynd Antoniu Bird, Ravenous, í slagtogi við tónskáldið þekkta Michael Nyman. Upptökur á myndinni fóru fram síð- astliðið sumar á svæði 101 í Reykjavík og á Snæfellsnesinu. Gerð myndarinnar er enn ekki lokið en tökur hennar tóku þrjá mánuði. Framleiðandi myndarinnar er 101 ehf en meðframleiðendur eru Zentropa, Tr-oika, Filmhuset, Libarator, Eurima- ges, NRW og Kvikmyndasjóður Islands. Myndin sem mun kosta 160 milljónir verður frumsýnd snemma á næsta ári. 101 REYKJAVÍK Leikstjóri og handrit Baltasar Kormákur Höfundurskáldsögu Hallgrímur Helgason Framleíðandi Ingvar Þórðarson Aðst. leikstjóri Þór Ómar Jónsson Annar aðst. leikstjóri Lísa Kristjánsdóttir Kvikmyndataka Peter Steuger Tónlist Einar Örn Benediktsson Damon Albarn Aðst. við kvikmyndatöku Markus Polus Hálfdán Theódórsson Aðst. við framleiðslu Rakel Garðarsdóttir Leikmyndahönnuður Árni Páll Jóbannesson Hljóðhönnuður Kjartan Kjartansson Búningahönnuður Þórunn Sveinsdóttir Leikmunameistari Atli Geir Grétarsson Brellur Eggert Ketilsson Förðun Ásta Hafþórsdóttir Ana Lozano Hár Manolo Garcia Helstu leikarar Hilmir Snær Guðnason Victoria Abril Hanna María Karlsdóttir Eyvindur Erlendssson Ólafur Darri Ólafsson Ég náði sambandi við Dunu í bíl sem Halldór Þorgeirsson, maður hennar og framleiðandi Ungfrúarinnar, stýrði 4. nóv. eftir E47 áleiðis frá Kaupmannahöfn til Lýbiku (Liibeck) í Þýskalandi. Þau höfðu verið að selja Norðmönnum og Sví- um Ungfrúna við svo góðar undir- tektir að Sandrews yfirbauð Nordisk Film International. Erindi Dunu til Lýbiku var dómgæsla á 41. nor- rænu kvikmyndadögunum í borg- inni, sem fulltrúi Norðurlanda við hlið Ijögurra Þjóðverja. Duna er vel ræmd þarna, hlaut verðlaunin „Filmlense” á hátíðinni 1989 fýrir Kristnihald undir jökli. Þetta er merjcishátíð... - Hátíðirnar í Lúbeck og Rouen í Frakk- landi eru þær einu þar sem einhver al- vörukeppni fer fram milli bíómynda frá Norðurlöndum. Á hátíðum í heimalönd- unum er alltaf verið að borast eitthvað. Hvemig gengur dreifing á Ungfrúnni er- lendis? - Hún verður ekki sett í dreifingu á Norðurlöndum fyrr en eftir Gautaborgar- hátíðina í lok janúar þar sem hún verður opnunarmyndin. Síðan fer hún beint til Berlínar í febrúar og við vonumst til að koma henni á einhvern stall þar. Hvemig líst útlendingum á? - Fólki þykir þetta að minnsta kosti mikil pródúksjón miðað við hvað hún kostaði. Þarna er heilt þorp og skip og mikið lagt í leikmynd og búninga. Flestir halda að við höfum látið smíða byggðina í Flatey, svona staði er óvíða að finna og erfitt að kvikmynda þar. Það eru hvergi annars staðar framleiddar períódumyndir fyrir svona litlar fjárhæðir. Blærinn á smásögunni Ungfrúin góða og húsið er dálítið í upptalningastíl, fað- ir þinn hefur ekki unnið ítarlega úr dramatísku atvikunum svo mann grun- ar að þetta hafi upprunalega verið punktasafn fyrir lengra verk sem ekkert varð af. - Þetta er rétt, „bókin er óskrifuð” sagði hann við mig, „þess vegna má gera úr þessu mynd”. Hann ritaði í inngangi að efniviðurinn væri sannar sögur sem reyndur embætt- ismaður hefði sagt honum. Veistu hver hann var? - Já, Þórhallur Vilmundarson. Ha? - Nei nei, faðir hans, Vilmundur Jónsson landlæknir. Og þetta gerðist í raun og veru nálægt aldamótunum á Islandi að kona stal barni systur sinnar og gaf það. Myndin er byggð upp með ákaflega skýru andstæðuspili, hlédræga góða systirin t hrokafulla vonda systirin, auð- ug yfirstétt tfátækt verkafólk, ísland / Danmörk. - Já, ég lagði einmitt áherslu á andstæð- urnar allan tímann, og hvernig Rannveig er eiginlega eins og fátæka fólkið en neydd til að vera fín. Skvísurnar sem giftast prinsunum í Buckinghamhöll hafa á sama hátt þjáðst fyrir það að vera pínd- ar til að hegða sér eins og fína fólkið, hafa ekki mátt vera þær sjálfar. / umfjöllun minni um myndina á R ÚV rás 2 hældi ég Ragnhildi Gísladóttur í hlutverki Rannveigar fyrir agaða og markvissa túlkun og nákvæmni í ýms- um smáatriðum í fasi og tali. En sum- um áhorfendum þykir hún ofdaufog lit- laus. - Það hefði verið ómögulegt að láta hana vera mjög sterka, og erfitt að láta eina persónu bera uppi sögu. Hún gat ekki verið töff kvenréttindakona með kjaft, hún er blúndugerðarkona, aðrir ráða yfir henni. Það eru margar konur svona enn því miður, það má ekki segja það, þær druslast ekki til að rísa upp, hafa ekki uppburði í sér til þess. Af hverju náði Rannveig ekki í barnið til Danmerkur? Hún lætur allt yfir sig ganga. En margar konur, hörkukonur, verða reiðar þegar þær sjá Rannveigu í myndinni, þeim sárnar þetta. Svo þetta erpólitísk mynd? - Svolítið. Lét Rannveig Andrés snikkara barna sig beinlínis til þess að hann yrði aðstoðað- ur til að yfirgefa plássið? Til að hjálpa honum að uppfylla drauminn um að komast til Ameriku? - Það má alveg skilja það þannig, hún sef- ur samt aðallega hjá honum til að ganga fram af systur sinni aftur. En hún vildi hjálpa þessum strák. Þú hefur lagt þig eftir því að kynna líf margra aukapersónanna. - Já, það var hugsað af ásettu ráði að gera aila að karakterum. Persónurnar eru ekki svo margar að það mátti nostra við þær. Og leikarar núna eru svo áhuga- samir og velmenntaðir að þeir höfðu allir með tölu eitthvað fram að færa varðandi túlkunina. Tinna og Ragnheiður höfðu 14 Lanð&syrár

x

Land & synir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.