Land & synir - 01.11.1999, Síða 15

Land & synir - 01.11.1999, Síða 15
Buckinghamhöll um Ungfrúna góöu og húsið GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR við tökur í Þýskalandi t.d. undirbúið sig vel fyrir atriðið í veð- urofsanum í Flatey og eiga sitt framlag í því. Annað dæmi er Hans, hann er meiri pervert í smásögunni. Við Reine Brynjolfsson ræddum mikið um hvernig ætti að túlka persónuna, við vildum gera hana sympatíska. Ég prófaði Hans meira að segja sem sögumann í einni handrits- gerðinni. Þegar Hans kíkir á glugga í myndinni fær hann ekkert út úr því en er bara að horfa á sitt sjónvarp, þetta er hans einmanaleiki við skjáinn. Að Iokum er hann sjálfur settur bak við glugga og fær bara að horfa á konuna sína. SJcrifaðirðu margar útgáfur af handritinu? - Já, þetta er nú búinn að vera svakalega langur undirbúningstími, fimm ár. Ég var komin af stað með myndina fyrir löngu þegar ákveðnar ástæður gerðu það að verkum að við þurftum að skila styrkn- um okkar aftur til Kvikmyndasjóðs og framkvæmdin tafðist. Ég gerði margar atrennur og reyndi mismunandi nálgun við söguefnið. í einni útgáfunni lét ég systurnar vera gamlar og rifja söguna upp en húsið vera ónýtt. í annarri lét ég piltinn sem var gefinn til Danmerkur koma til íslands og rekja söguna. í þeirri þriðju lét ég Rannveigu, ungfrúna sjálfa, vera aðalpersónuna en það reyndist of veikt. Svo þetta endaði á því að gera frekjudolluna Þuríði að aðalpersónu þótt sagan fjalli um Rannveigu og líf hennar. Þetta er svolítið líkt aðferðinni sem beitt var í Les dangerous liaisons. Reyndirðu að ná einhverri sérstakn Halldórs Laxness-stemmningu? - Sögurnar hans bjóða upp á íroníu þrátt fyrir sorg. Ég reyndi að ná þeim anda. Voru margir til ráðgjafar um handritið? - Já, fyrst og fremst gúrúinn minn, Ger- ald Wilson á Irlandi, gamli kennarinn minn frá því í kvikmyndaskólanum í London. Hann fór yfir þetta á flestum stigum og skammaði mig eins og hund. Það er nauðsynlegt að láta skamma sig eins og hund öðru hvom. Claire Downs á Englandi og fleiri lögðu líka sitt til mál- anna. En umhverfi, samstarfsfólk, leikarar og tæknilið, liafði það áhrif á úrvinnsluna á staðnum? - Ekki mikil, það var að langmestu leyti unnið eftir planinu og hándritið var alltaf skrifað með Flatey í huga. Það var samt mjög gott að starfa svona lokuð af í eynni heilan mánuð. Allir voru sífellt að hugsa um vinnuna. En þetta er samstarfsmynd nokkurra þjóða og erlendu aðilarnir lögðu til mikil- vægt starfsfólk sem setti sinn svip á verkið. Ég gaf listafólkinu yfirleitt alveg frítt spil. Búningahönnuðurinn er t.d. frá Litháen og þess vegna er ríka fólkið ekki í dæmigerðum íslenskum búningum held- ur Parísartískunni frá því um 1900. A prófastsheimilið setti leikmyndarhönnuð- urinn kaþólska gripi, róðukross og Kristslíkneski með hinu blæðandi allra- helgasta hjarta. Við tókum upp heilmikið efni og þurftum því að henda miklu. Láms Ymir Oskars- son fékk frjálsar hendur og klippti mynd- ina alveg í friði fyrir mér niður í um 2,5 klst., þá skar ég niður. Þetta er óvenju- legt, það vill svolítið verða þannig að leikstjórinn skipti sér of mikið af klipp- ingunni. Það er ekki rétt að handritshöf- undur og leikstjóri sé líka í klippingu, það verður of innhverft. Ég hef að vísu ekki verið of góð með þetta fyrr en núna. Ég heyri ekki í bílnum lengur. - Við erum stopp, komin í biðröðina við ferjuna í Rpdbyhavn. Við erum að aka um borð. GSM-sambandið hlýtur að slitna. Hvarfinn ég mynd afþér til að birta með viðtalinu? - Bara ekki birta viðbjóðslega mynd sem var tekin eftir að stelpurnar í sjónvarp- inu máluðu mig eins og mellu og þar að auki er ég brosandi. Ég er lítið fyrir að brosa á myndum. Land&synir 15

x

Land & synir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.