Land & synir - 01.11.1999, Qupperneq 16

Land & synir - 01.11.1999, Qupperneq 16
vettvangur fyrir slíka umræðu. En það vantar svolítið grunninn í alla kvik- myndaumræðu á íslandi og ég held að kvikmyndagerðarmenn hafi dálítið liðið fyrir það að aldrei hefur verið tekið al- varlega á kvikmyndagerð sem listformi og sem iðnaði.” Guðni segir að til að slík umræða fari af stað sé bráðnauð- synlegt að fólk, sem ekki starfar beint við iðnina, taki að sinna henni, og taka á henni alvarlega. “Hvernig ætli bók- menningin dafnaði ef hún færi aðeins fram meðal rithöfunda og enginn annar sýndi henni áhuga? Slík umræða gæti aldrei náð sérlega langt, og hér er ég ekki að gagnrýna þarft framlag rithöf- unda til menningarumræðunnar.” Telur Guðni að hér sé e.t.v. kominn kjarni málsins, “sumir þeir sem starfa í kvik- myndabransanum skilja ekki alveg til- ganginn með þessu, það sé hægt að lesa bækur á ensku eða finna efni á Netinu. En málið er að kúltúrinn er ekki al- mennilega kominn til landsins fyrr en við erum sjálf farin að taka á þessu og skrifa um þetta á íslensku. Það er ekki nóg að fara í bíó,” sagði Guðni Elísson. Meira um Heim kvikmyndanna í næsta blaði Islensk dagskrá á í októbermánuði síðastliðnum gekk sjónvarpsstöðin Skjár einn í endurnýjun lífdaga eftir að hafa verið í rekstri um nokkurn tíma og keyrt mest á gömlu efni s.s. Dallas og þess háttar. Skjár einn keyrir að miklu leyti á innlendri dagskrárgerð en vel yfir helmingur efnisins mun vera íslenskur. Þetta er nokkur nýlunda í hérlendum sjónvarpsrekstri. Þættirnir eru af ýmsum toga, umræðu-, skemmti-, spurninga- og spjallþættir, flestir sendir út beint með tiltölulega lítilli forvinnslu innslaga og þess háttar. Auk þess er stöðin með fréttatíma á virkum dögum. Markhópur stöðvarinnar mun vera yngri hluti fólks, frá unglingum til fertugra, en útsendingar- svæðið er bundið við suðvesturhornið nema þar sem aðgangur er að breiðbandinu. Skjá einum Skjár einn hefur farið ágætlega af stað, frísklegt og ungæðislegt yfirbragð er á stöðinni, áhersla er á tísku, tíðaranda og dægurmenningu. Hún virðist hafa fengið þokkalegar móttökur og allnokkuð áhorf en Ijóst má vera að samkeppni um auglýsingar er hörð. Sjónvarpsstjóri erÁrni Vigfússon og leiðir hann hóp athafna- manna sem eiga um helmings hlutí stöðinni en aðrir bakhjarlar eru meðal annars fjárhaldsfyrirtæki Sigurðar Gísla Pálmasonar og Páls Kr. Pálssonar. L&S lætur þá von í Ijós að tilkoma stöðvarinnar verði til að auka áherslu á innlenda dagskrárgerð almennt, Ijóst er að stöðin þarf sinn aðlögunartíma en eftir það verður spurt um erindið bak við erfiðið. ÍSLENSK KVIKMYNDA- SAGA ÞESSA Ijósmynd tók Magnós Ólafsson á árunum um 1920. Hér má sjá fólk fylgjast með manni setja niður þrífót með kvikmyndavél í opinn árabát framan við Bryggjuhúsið við Vesturgötu í Reykjavík. Ekki vitum við hver kvikmynda- tökumaðurinn er né hvað hann er að fara að mynda en allar upplýsingar frá lesendum L&S væru vel þegnar. Ný íslensk bók um kvikmynda- GUÐNI Elísson bókmenntafræðingur og kennari við Háskóla íslands segist lengi hafa gengið með þá hugmynd í kollinum að koma út kvikmyndafræðariti á ís- lensku, “því það gengur náttúrlega ekki að við séum svona algerlega bókalaus í þessum efnum.” Guðni, sem ritstýrir bókinni, segir hana vonandi aðeins vera upphafið að öðru og meira, og að það verði í framtíðinni skrifaðar miklu fleiri bækur á Islandi um kvikmyndafræðin. Heimur kvikmyndanna skiptist í fjögur meginefni. I fyrsta lagi svonefnd- ar kvikmyndagreinar (genres) þar sem verður gefið yfirlit yfir helstu greinar kvikmynda, allt frá vestrum og vega- myndum til dans og söngvamynda. í öðru lagi verður kvikmyndum hinna ólíku þjóðlanda gerð skil. Gefið verður eins konar yfirlit yfir kvikmyndasögu ólíkra landa, yfir bandaríska kvikmynda- gerð, sovéska, franska, ítalska, enska, þýska og kvikmyndir Norðurlanda svo eitthvað sé nefnt. “Svo fjallar einn hluti bókarinnar um samspil kvikmynda og samfélags,” segir Guðni, “en þar mun verða að finna greinar sem verða e.t.v. svolítið meira í fræðilegum dúr.” Má nefna ritgerðir þar sem kafað er ofan í kvikmyndaheim blökkumanna (black cinema), femínískar kvikmyndakenning- ar, hetjuímyndir karla, pólitík og kvik- myndir, áróðursmyndir og svo framveg- is. “Síðasti hluti bókarinnar fjallar síðan um íslenskar kvikmyndir,” segir Guðni. “Það má segja að þar sé um að ræða svona úrval greina, allt frá sögulegu yfir- liti yfir í afmarkaðri túlkun á einstaka myndum.” Aðspurður segir Guðni einfalt að svara því hver sé skírskotun þessarar bókar til kvikmyndagerðarinnar sjálfrar. “Kvikmyndafræðin og kvikmyndagerðin haldast miklu meira í hendur en kvik- myndagerðarmenn hafa kannski áttað sig á. Hér heima hefur þetta verið dálítið þannig að kvikmyndagerðarmenn hafa verið að skrifast á og ræða saman um hluti, er tengjast kvikmyndum, og Land og synir hefur einmitt reynst þarfur

x

Land & synir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.