Land & synir - 01.07.2002, Blaðsíða 3
•••••••
• • • • •
••••••••••••••••••••••
And Björk of course... verður
að sjónvarpsmynd
Lárus
Ýmir
Óskars-
son hefur
nýlokið
tökum á
sjónvarps-
mynd eftir
leikriti Þor-
valdar Þorst-
einssonar,
And Björk of
course... sem
gengið hefur í Borgarleikhúsinu f vetur.
Þorvaldur og Lárus Ýmir vinna saman
að handritinu en verkefnið er unnið í
samstarfi Borgarleikhússins, leik-
hópsins og Sjónvarpsins sem keypt
hefur sýningarréttinn.
Myndin er tekin upp með blandaðri
myndbandstækni og fóru upptökur
fram á aðeins þrettán dögum. Sömu
leikarar og í sýningu Borgarleikhúss-
ins fara með hlutverkin í myndinni.
r
Bíó Reykjavík:
Miðstöö
óháðra
kvikmynda
á íslandi
Bíó Reykjavík er
vettvangur fyrir
sýningar á allskyns
kvikmyndum þar sem
áhorfendur taka virkan þátt
með spjalli og kosningum
um bestu myndirnar.
Sýningar fara fram
mánaðarlega í Vesturporti
við Vesturgötu. Hópurinn kallar sig "miðstöð óháðra kvikmynda á Islandi" og hefur nú sent
Aðstandendur Bíá Reykjavík: Frá vinstri, Örn Einarsson, Hassan Harazi,
Jakob Halldórsson, DJ Kári, Ragnar Eyþórsson, Eio Shanger. Á myndina
vantar: Röggu Eestsdóttur, Freystein Alfreðsson og Eunnar Tynes.
frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu:
"Bíó Reykjavík er samvinnuhópur kvikmyndagerðamanna með það eitt að markmiði að
byggja upp nýtt samfélag kvikmyndagerðafólks á íslandi. Allir þeir sem hafa gert stuttmynd og
vilja koma henni á framfæri fá hana sýnda hjá Bíó Reykjavík. Bíó Reykjavík verður alltaf á
fýrsta þriðjudegi hvers mánaðar í húsnæði Leikhús Vesturports Vesturgötu 18.”
Allar frekari upplýsingar er að finna á vef hópsins, www.bioreykjavik.com.
ráinn Bertelsson kann að hafa áhyggjur af
slæmri stöðu íslenskra bíómynda, sbr.
nýlega Morgunblaðsgrein hans en á sama
tíma stefnir í algjört metár í frumsýningum þeirra.
Auk mikillar grósku í heimildarmyndum fyrir
kvikmyndahús (leyfðum og bönnuðum) eru líkur á
allt að tólf bíómyndafrumsýningum á árinu.
Myndirnar eru hinsvegar af öllum stærðum og
gerðum.
Þegar eru fjórar komnar fram Regína Maríu
Sigurðardóttur, Gemsar Mikaels Torfasonar, í
faðmi hafsins eftir Lýð Árnason og Jóakim Hlyn
Reynisson (sýnd hjá Filmundi og svo í
Sjónvarpinu) og Reykjavík Guesthouse-rent a bike
eftir Björn Thors, Unni Ösp Stefánsdóttur og Börk
Sigþórsson.
Þá eru væntanlegar með haustinu myndirnar
Nói albínói eftir Dag Kára Pétursson, Fálkar eftir
Friðrik Þór Friðriksson og Hafið eftir Baltasar
Kormák.
Fimm myndir unnar á stafrænt form eru einnig
væntanlegar á árinu. Til stendur að frumsýna
Maður eins og ég eftir Róbert Douglas í ágúst og í
kjölfarið koma svo Veðmálið eftir Sigurbjörn
Aðalsteinsson, Þriðja nafnið eftir Einar Þór
Gunnlaugsson, Konunglegt bros eftir Gunnar B.
Guðmundsson og 1. april eftir Hauk M. Hrafnsson.
Náist að klára allar þessar myndir stefnir í
mikla "frumsýningaþröng" á haustmánuðum,
sérstaklega ef framleiðendurnir eru að stíla inná
skilafrest Edduverðlaunanna sem er 31. október
n.k.
Kristbjörg Kjeld í Hafinu eftir Baltasar
Kormák, sem er ein þeirra mynda sem
væntanlegar eru í baust.
..
Stefnir í metfjöld
a armu
Nýr vefur um kvikmyndir og sjónvarp
Vefurinn
Ásgrímur.is
(www.asgrim
ur.is) er kominn í
loftið. Á vefnum
verður fjallað um
kvikmyndirog
sjónvarp frá ýmsum hliðum. Ritstjóri er Ásgrímur
Sverrisson kvikmyndagerðarmaður og ritstjóri Lands
& sona.
Á vefnum verða fréttir úr kvikmynda- og sjón-
varpsheiminum, bæði þeim íslenska og erlenda.
Vefurinn verður hlið að þessum heimi fyrir alla þá
íslendinga sem áhuga hafa á þessum málaflokki.
Pulsinn verður tekinn á þeim málum sem hæst bera
hverju sinni, bæði heima og annarsstaðar. Einnig
verður á vefnum vettvangur fyrir frjóa umræðu um
hvaðeina sem lýtur að kvikmyndum og sjónvarpi.
Fjölda eldri greina eftir ritstjórann er að finna á
vefnum, en hann hefur skrifað um þessi efni í yfir
tuttugu ár. Þá verður efni Lands & sona aðgengilegt
á Ásgrímur.is.
Vefurinn er opinn öllum þeim sem hafa eitthvað
til málanna að leggja um kvikmyndir og sjónvarp.
Markmiðið er að gera hann að ómissandi efnisveitu
fyrir þá fjölmörgu sem óska eftir vitrænni en jafn-
framt spennandi umfjöllun um þetta svið.
LAN D & SYNIR 3