Land & synir - 01.07.2002, Blaðsíða 16
Tinna Eunnlangsdóttir formaður BÍL afhendir Tómasi
Inga Olrich menntamáiaráðherra skýrslu Aflvaka á
samkomu á Listasafni Reykjavíkur þann 26. jóní s.l.
Menntamálaráðherrajákvœður
gagnvart nýjum hugmyndum
um leikið efni ísjónvarpi
Forsvarsmenn hagsmunafélaga kvik-
myndagerðarmanna og Bandalags
íslenskra listamanna eru vongóðir um
að stjórnvöld bregðist jákvætt við þeim
tillögum sem fram koma í nýrri skýrslu um
leikið efni í íslensku sjónvarpi. Skýrslan var
unnin af Sigurði Valgeirssyni, fýrrum dag-
skrárstjóra Sjónvarpsins, fyrir Aflvaka að
tilhlutan BlL, Kvikmyndasjóðs og kvik-
myndafélaganna. Skýrslan var kynnt opin-
berlega þann 26. júní að viðstöddum
Tómasi Inga Olrich menntamálaráðherra,
sem hafði áður kynnt sér efni hennar og var
á honum að skilja að fengur væri að henni
og þeim hugmyndum sem þar koma fram.
I skýrslunni eru færð rök fyrir því að
stofna ætti sjóð sem úthlutaði styrkjum til
gerðar leikins efnis fyrir sjónvarp. Hug-
myndin er að sjálfstæðir framleiðendur
sækji um í sjóðinn með þátttöku sjón-
varpsstöðvanna. Bent er á að fáist 300
milljóna króna árlegt framlag í sjóðinn frá
stjórnvöldum geti það skilað um hálfum
milljarði samtals í veltu vegna þessa
málaflokks með þátttöku erlendra fjárfesta
og innlendra. Störfum í greininni gæti
fjölgað um 117 við þetta. Ljóst er að nái
þessar tillögur fram að ganga mun það
gerbylta því starfsumhverfi sem íslenskir
kvikmyndagerðarmenn búa við, auk þess
sem þjóðin myndi fá aðgang að stórauknu
leiknu innlendu sjónvarpsefni.
Á bls. 6 og 7 er birt ítarleg samantekt á efni
skýrslunnar sem og dærni úr henni um
hverskonar efni hægt væri að framleiða fýrir
þetta fé og hvaðan það gæti komið. L&S
mun á næstu mánuðum íjalla ítarlegar um
efni skýrslunnar, birta viðbrögð málsaðila
við henni og vera vettvangur umræðna og
vangaveltna um þær leiðir sem mögulegt
væri að feta til að ná þessum markmiðum.
Björn Br Björnsson formaður FK afhendir Böðvari Bjarka
Péturssyni framleiðenda Orekans fjárstuðning frá Fétagi
kvikmyndagerðarmanna.
Drekinn studdur
Stjórn Félags kvikmyndagerðarmanna samþykkti.
einróma eftirfarandi ályktun vegna heimildar-
myndarinnar í skóm drekans.
"Félag kvikmyndagerðarmanna lýsiryfir stuðningi við
framleiðenda heimildarmyndarinnar í skóm drekans.
Það er með ólíkindum að hægt sé að stöðva sýningu
myndarinnar með þvf að leggja fram einnar miljón króna
tryggingu. Þessi lága upphæð er í engu samræmi við þá
fjárhagslegu hagsmuni sem i húfi eru. Það er mikilvægt
fyrir starfsumhvefi kvikmyndagerðarmanna að fá fram
efnislegan dóm þar sem skorið verður úr því hvort
umrædd mynd brjóti gegn friðhelgi einkalífs. Því vill
Félag kvikmyndagerðarmanna styðja framleiðanda
myndarinnar í málaferlunum enda er það skoðun
stjórnar félagsins að heimildarmyndin í skóm drekans
brjóti ekki gegn friðhelgi einkalifs þáttakenda í
fegurðarsamkeppninni Ungfrú ísland.is."
eet'/i' f'ai/Hi'í/ff
VERKEFNI [ UNDIRBÚNINGI, TÖKUM OG EFTIRVINNSLU.
SENDIÐ UPPLÝSINGAR Á asisv@simnet.is
(nýskráð verkefni með hástöfum).
B í Ó M Y N D I R :
HAFIÐ: Fjölskyldudrama í sjávarplássi úti á landi; barátta um
gömul og ný gildi. Handrit: Baltasar Kormákur og Ólafur
Haukur Símonarson. Leikstjóri: Baltasar Kormákur. Fram-
leiðendun Baltasar Kormákur (Sögn ehf.), Jean-Francois
Fonlupt (Emotion Pictures, Paris) og Egil 0degárd (Filmhuset
AS, Oslo). STAÐA: í eftirvinnslu, frumsýning áætluð í haust.
THEWAGER (Veðmálið); Tveir kvikmyndaframleiðendur í
Hollywood, annar ungur og upprennandi framleiðandi óháðra
mynda, hinn reyndur jaxl hjá einu kvikmyndaveranna, veðja
um hvort sá fyrrnefndi geti gert bíómynd á þremur dögum.
Leikstjórn og handrit: Sigurbjörn Aðalsteinsson. Framleiðend-
ur: Kristín Gísladóttir og íslenska kvikmyndasamsteypan.
STAÐA: I eftírvinnslu, frumsýning óákveðin.
1.0: Framtíðartryllir um tölvuvírusa sem herja á byggingu
fulla af furðufuglum. Handrit og leikstjórn: Jeff Renfrowe og
Marteinn Þórsson. Framleiðendur: ZentAmerica Entertainment
(US), Zentropa (Danmörk) og íslenska kvikmynda-
samsteypan. STAÐA: ( undirbúningi, upptökur hefjast síðla
sumars í Kanada.
THE THIRD NAME: Spennumynd um ungan og öran mann sem
heldur skipsáhöfn og farþegum í gíslingu við höfn lítils
sjávarpláss og krefst þess að fá að hitta meinta unnustu
sína. Stúlkan vill hinsvegar ekkert við manninn kannast.
Handrit og leikstjórn: Einar Þór Gunnlaugsson. Framleiðandi:
Einar Þór ásamt lan Bang. STAÐA: í eftirvinnslu. Frumsýning í
haust.
Nói albinói: STAÐA: í eftirvinnslu. Frumsýning jól 2002.
Fálkar: STAÐA: í eftirvinnslu. Frumsýning óákveðin.
1. apríl: STADA: [ eftirvinnslu. Frumsýning óákveðin.
Maður eins og ég: STAÐA: f eftirvinnslu: Frumsýning íágúst.
SJÓNVARPSMYNDIR:
OPINBERUN HANNESAR: Opinber starfsmaður lendir í
vandræðum þegar tölvunni hans með viðkvæmum
upplýsingum er stolið. Handrit: Davíð Oddsson og Hrafn
Gunnlaugsson. Leikstjóri og framleiðandi: Hrafn
Gunnlaugsson. STAÐA: Tökur hefjast í september.
AND BJÖRK0F C0URSE...: Eftir samnefndu leikriti Þorvaldar
Þorsteinssonar um fólk á sjálfshjálparnámskeiði. Handrit:
Þorvaldur Þorsteinsson og Lárus Ýmir Óskarsson. Leikstjóri:
Lárus Ýmir Óskarsson. Framleiðandi: Sjónvarpið. STAÐA: í
eftirvinnslu.
HEIMILDARMYNDIR:
HREIN & BEIN (vinnuheiti): 2x25 mín. mynd um þau tilfinn-
ingalegu og félagslegu vandamál sem ungt fólk stendur
frammi fyrir á íslandi (dag þegar það reynir að taka ákvörðun
um að opinbera samkynhneygð sína. Framleiðandi: Krumma
kvikmyndir, Hrafnhildur Gunnarsdóttir fyrir Stöð 2. Umsjón:
Þorvaldur Kristinsson og Hrafnhildur Gunnarsdóttir. STAÐA: (
eftirvinnslu, á dagskrá í sumar eða haust.
AFLEGGJARAR: Þorsteinn Joð fer sem fyrr ótroðnar slóðir í
þessari nýju þáttaröð og lætursérekki nægja aðtaka íslenska
afleggjara: óvenjulegur, skrýtinn og skondinn. Framleiðandi:
Stöð 2. Umsjón: Þorsteinn J. Vilhjálmsson. STAÐA: (vinnslu, á
dagskrá í sumar.
VEIÐIKLÆR: 2 x 52 mín. þættir um hefðbundnar veiðar
íslendinga, þe. fugla- og hreindýraveiðar. Stjórn og
framleiðsla: Dúi Landmark fyrir Landmark kvikmyndagerð.
STAÐA: (eftirvinnslu, verða sýndir á Seasons sjónvarps-
stöðinni í Frakklandi ((eigu Canal+) og á Sýn.
SÆLUGAUKUR [ SU0RI: 1 x 26 mín. þáttur um hrossagaukinn,
sérkenni hans og lífshlaup. Stjórn og framleiðsla: Dúi
Landmark fyrir Landmark kvikmyndagerð, í samvinnu við
Emmson Film og Eliotcom (Frakklandi. STAÐA: í undirbúningi,
tökur hefjast í lok apríl. Verður sýnd á RÚV og Seasons í
Frakklandi.
VÍKINGAR - DNA SLÓÐIN RAKIN: 3x28 mín. þættir fyrir
sjónvarp. Fylgst er með framvindu alþjóðlegs verkefnis þar
sem rekja á ferðir norrænna manna frá meginlandi til
Grænlands og Norður-Ameríku á árabilinu 800-1500. Meðal
annars á að kanna með DNA-athugunum hvort norrænir menn
hafi flust frá Grænlandi til Kanada og blandast þar inúítum.
Þar koma m.a. við sögu "hvítir inúítar" sem búa á Victoria eyju
i Nunavut. Handritsgerð: Ari Trausti Guðmundsson og
Valdimar Leifsson. Stjórn:Valdimar Leifsson. Framleiðandi:
Lífsmynd ehf. STAÐA: Tökur hófust í Kanada í apríl. Þættirnir
verða sýndir á RÚV 2003.
Rúnturinn: STAÐA: (eftirvinnslu.
Tuttugu bit: STAÐA: í eftirvinnslu.
Heita vatnið: STAÐA: í eftirvinnslu.
Á nyrstu nöf: STAÐA: Eftirvinnslu að Ijúka.
Frosiö heimsveldi: STAÐA: í eftirvinnslu.
STUTTMYNDIR:
ÁNTITILS. Stuttmynd. Handrit og leikstjórn: Lars Emil
Árnason. Framleiðandi. Júlíus Kemp fyrir Kvikmyndafélag
íslands. STAÐA: í eftirvinnslu. Frumsýning óákveðin.
KARAMELLUMYNDIN: Um mann sem býr til sprengjur úr
karamellum. Handrit og leikstjórn: Gunnar B. Guðmundsson.
Framleiðandi Óskar Þór Axelsson fyrir Þeir tveir ehf. STAÐA: (
undirbúningi, tökuríjúlí.