Fréttablaðið - 16.04.2018, Blaðsíða 14
Pétur Marinó Jónsson er öllum íslenskum bardagaáhuga-mönnum vel kunnur, en hann
hefur rekið vefinn MMAFréttir.is
í tæp fimm ár og lýst UFC-við-
burðum á Stöð 2 Sport. Hann hefur
tryggt sér stöðu sem fremsti MMA-
sérfræðingur Íslands og unnið
mikilvægt starf við að vekja athygli
á íþróttinni og auka þekkingu og
viðurkenningu á henni.
Pétur hefur æft brasilískt jiu-jitsu
í um 10 ár og fylgst með MMA
af kappi jafn lengi. „Vinir mínir
byrjuðu í jiu-jitsu og þeim tókst að
sannfæra mig um að koma á æfingu
þegar við vorum í partíi og ég var
kominn á fjórða bjór, sem kom smá
hugrekki í mig,“ segir Pétur. „Mér
fannst þetta allt mjög skrítið fyrst
og var ekkert yfir mig hrifinn, en
ég hélt áfram að mæta og í Mjölni
kynntist ég MMA og smátt og smátt
byrjaði ég að fylgjast með. Þegar
ég fæ áhuga á einhverju þá verð ég
bara að vita allt um það, þannig að
ég byrjaði að lesa allt sem ég gat og
fylgjast vel með og þannig komst ég
inn í bardagaíþróttir.“
Vildi betri umfjöllun
um MMA
Pétur opnaði vefinn MMAFréttir.is
í október 2013. „Mér fannst frétta-
umfjöllun um MMA á Íslandi ekki
vera sinnt nægilega vel og langaði
að gera betur. Ég var líka með góð
tengsl í Mjölni og það var ýmislegt
sem mig langaði að gera öðru-
vísi, þannig að ég hellti mér bara í
þetta,“ segir Pétur.
„Vefurinn gengur ágætlega en það
er ýmislegt sem mig langar að gera
sem ég hef ekki endilega alltaf tíma
fyrir enda í fullri vinnu og í smá
námi með þessu. En þetta er alltaf
að stækka og lesturinn verður sífellt
meiri. Áhuginn á MMA hefur aukist
almennt og það er rosalega gaman
að sjá íþróttina stækka,“ segir Pétur.
„Núna vita allir hverjir Gunnar
Nelson og Conor McGregor eru,
sem er mjög skemmtilegt, því þetta
var algert jaðarsport sem enginn
pældi í.“
Vefurinn skapaði tækifæri
Vinnan við MMAFréttir hefur gefið
Pétri ýmis tækifæri. „Ég hef lýst
bardögum á Stöð 2 Sport, skrifað
um MMA á Vísi og farið út með
Gunna þegar hann berst til að fjalla
um það,“ segir Pétur. „Það er rosa-
lega gaman að fara út og vera eins
nálægt þessu og hægt er. Maður
hefur kynnst fullt af skemmtilegu
fólki og skapað frábærar minn-
ingar.“
Auk þess gerir Pétur hlaðvarps-
þáttinn Tappvarpið, vinnur stutta
þætti sem heita Leiðin að búrinu
fyrir MMAFréttir þegar Íslendingar
eiga atvinnumannabardaga og er
í sjónvarpsþáttunum Búrið, sem
eru sýndir á Stöð 2 Sport fyrir stóra
viðburði.
„Við byrjuðum á Búrinu fyrir
bardaga hjá Gunna en höfum svo
haldið þessu áfram,“ segir Pétur.
„Það var stressandi og óþægilegt að
vera á skjánum fyrst en mér finnst
þetta fáránlega gaman.
Það er líka mjög skemmtilegt
að gera Tappvarpið. Ég hef fengið
skemmtilega gesti, eins og sál-
fræðinginn Erlend Egilsson, en
við töluðum um íþróttasálfræði í
MMA,“ segir Pétur. „Mér finnst svo
gaman að gera Tappvarpið að mér
er eiginlega nokkuð sama hvort fólk
hlustar eða ekki.“
Hegðun Conors var neyðarleg
Í síðustu viku gerði Conor Mc-
Gregor árás á rútu sem var full af
UFC-bardagamönnum og slasaði
meðal annars tvo bardagamenn.
McGregor var kærður og er í
vondum málum eftir uppátækið.
Eðlilega var Pétur ekki ánægður
með hegðun hans. „Hann lét eins
og vitleysingur og það fannst mér
mjög leiðinlegt og bara neyðarlegt
fyrir íþróttina,“ segir Pétur. „En ég
held að það verði alltaf villtir gæjar
sem ná mjög langt í MMA. Ég held
að það sé svolítið kúrekaeðli í lang-
flestum bardagamönnum, þannig
að ég held að við verðum alltaf með
frábæra íþróttamenn að mestu leyti
en svo nokkra villta bardagamenn
sem eru með þeim allra bestu en
láta íþróttina stundum líta illa út,
sem er mjög leiðinlegt.
Mér finnst að hann ætti að fá eitt-
hvert bann og hann fær væntanlega
sekt, en ég held að UFC hafi sýnt
að ef þú ert maður eins og Conor
McGregor kemstu upp með næst-
um hvað sem er, sem er náttúrulega
svolítið leiðinlegt, en peningarnir
tala,“ segir Pétur. „Ég held að hann
fái bara eitthvert djókbann og UFC
finni einhverja afsökun til að láta
hann berjast sem fyrst, svo þetta
Pétur stofnaði MMAFréttir því hann vildi sjá betri umfjöllum um MMA hér á landi. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Pétur er ekki hrifinn af hegðun Conors McGregor í síðustu viku, en hann réðst
á rútu sem var að flytja UFC-bardagamenn. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Pétur telur að Gunnar Nelson geti orðið einn af þeim bestu í sínum þyngdarflokki. MYND/NOPRDICPHOTOS/GETTY
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Áhuginn á MMA
hefur aukist
almennt og það er rosa-
lega gaman að sjá íþrótt-
ina stækka.
Framhald af forsíðu ➛
hafi ekki áhrif á peningaflæðið til
fyrirtækisins. En ef þetta hefði verið
einhver annar hefði hann aldrei
fengið að berjast hjá UFC aftur.“
Gunnar gæti verið í hópi
þeirra allra bestu
Það styttist í næsta bardaga Gunn-
ars Nelson, en hann mætir Neil
Magny 27. maí næstkomandi í
Liverpool. „Mér líst mjög vel á
þennan bardaga. Mig hefur lengi
langað að sjá þá mætast. Neil
Magny er mjög flottur bardaga-
maður og hefur lengi verið á topp
tíu, en ég held að hann henti Gunna
vel,“ segir Pétur. „Ef Gunni vinnur
verður þetta flottasti sigur hans á
ferlinum og ég held að hann vinni
með uppgjafartaki í annarri lotu,
svona dæmigerður Gunna-sigur.
Ég held að Gunni hafi hæfileik-
ana til að vera meðal fimm bestu
í veltivigtinni. En þá þarf hann
að fá þá bardaga sem hann vill fá
og haldast heill og þetta byrjar
með því að hann sigri Magny,“
segir Pétur. „Margir hafa gagnrýnt
vörnina hans Gunna gegn höggum
og það er náttúrulega enginn bar-
dagamaður fullkominn, en hann er
frábær glímumaður og ég held að
höggtæknin sé alltaf að verða betri
og hann sé sífellt að finna vopnin
sín betur.“
Lögleiðing er erfiður slagur
Pétur segist sjá fyrir sér að MMA
verði löglegt á Íslandi, en telur að
það verði erfitt. „Það er fáránlegt að
við þurfum að senda fólk til útlanda
til að fá að keppa í sinni íþrótt.
Við viljum náttúrulega gera þetta
löglegt og gera það í samstarfi við
heilbrigðisyfirvöld til að gera þetta
eins öruggt og hægt er. Ég held að
það verði ekki auðveldur slagur,
en hann vinnist einn daginn,“ segir
Pétur. Hann er þó ekki bjartsýnn
á að UFC haldi viðburð á Íslandi.
„Kannski gerist þetta einn daginn
en ég veit ekki hvort það verði í tíð
Gunnars.“
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vil-
helmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson,
olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . A P R Í L 2 0 1 8 M Á N U DAG U R
1
6
-0
4
-2
0
1
8
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
7
6
-5
4
A
4
1
F
7
6
-5
3
6
8
1
F
7
6
-5
2
2
C
1
F
7
6
-5
0
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K