Víkurfréttir - 22.03.2018, Side 28
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Blankur bæjarsjóður
gæti reynt að grafa eftir
rafmynt á Fitjum ...
Hann er kominn til landsins og tilbúinn í ævintýrin með þér; nýr KAROQ – með snjallar lausnir og
tækninýjungar sem gera aksturinn öruggari og skemmtilegri. Komdu og sjáðu nýjan ŠKODA KAROQ
og endurnýjaðu tengslin við það sem drífur þig áfram í lífinu. Hlökkum til að sjá þig!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is www.skoda.is
KAROQ OPNAR ÞÉR
NÝJAR LEIÐIR Í LÍFINU
NÝR ŠKODA KAROQ KEMUR SKEMMTILEGA Á ÓVART.
ŠKODA KAROQ frá:
3.890.000 kr.
Mikill áhugi virðist vera fyrir því að fjölga
gagnaverum hér á Suðvesturhorninu en á
fundi Umhverfis og skipulagsráðs Reykjanes-
bæjar sem haldin var 13. mars voru tvö erindi
þess efnis tekin fyrir þar sem félögin K16
ehf. og Airport City ehf. sóttu um lóðirnar
Hvalvík 14 annars vegar og Selvík 23 hins
vegar sem staðsettar eru í Helguvík.
Var þeim erindum hafnað á þeim forsendum
að nú þegar hefur verið sérútbúið svæði fyrir
gagnaver á Fitjum nánar til tekið við Sjónar- og
Vogshól en þar eru lausar lóðir.
Hafa félögin K16 ehf. og Airport City ehf. ekki
áður sótt um lóð fyrir slíka starfsemi.
Mikil gróska hefur verið í uppbyggingu
gagnavera í Suðurnesjum og eru núna starf-
rækt a.m.k. þrjú slík, Verne Global á Ásbrú
og Advania og Borealis Data Center ehf. á
Fitjum í Njarðvík.
Suðurnes ákjósanleg
fyrir gagnaver
Hafna gagnaverum í Helguvík og beina þeim á Fitjar
Gagnaveragarðurinn á Fitjum í Reykjanesbæ. Þar er talsverð uppbygging um þessar mundir og húsum undir ofurtölvur
fjölgar með hverjum mánuðinum sem líður. VF-mynd: Hilmar Bragi
Sjálfstæði Suðurnesja
„Suðurnesin sitja ekki við sama borð og önnur
svæði á landinu þegar kemur að fjárveitingum
ríkisins. Það er alveg sama hvert litið er, Heil-
brigðisstofnunin, Fjölbrautaskólinn, vegakerfið
(Reykjanesbrautin og Grindavíkurvegurinn),
lögreglan og svo mætti lengi telja, búa öll við
mun lægri fjárframlög pr. íbúa en annars staðar
á landinu.“ Þetta ritaði okkar ágæti bæjarstjóri
Kjartan Már Kjartansson á fésbókarsíðu sína í
vikunni og tilefnið var lækkun fjárframlaga rík-
isins til Markaðsstofu Reykjaness 2018 á meðan
aðrar markaðsstofur landsins hafa hækkað í
framlögum. Afsökun ríkisin var sú að vegna
nálægðar við flugvöllinn þurfum við ekki að
markaðssetja Suðurnesin, þetta kemur bara að
sjálfum sér álykta þessir snillingar. Ég hef skrifað
um þetta áður og hljóma eins og rispuð plata
en þetta er enn ein köld tuskan í andlit okkar
Suðurnesjamanna frá ríkisvaldinu. Spurningin
er hvenær sé komið nóg? Það er alveg sama þótt
ráðamenn séu boðaðir hingað á fundi, ekkert
batnar og í raun og veru bara versnar. Þingmenn
svæðisins virðast svo ekkert vægi hafa alveg sama
í hvaða flokk þeir eru. Samstaða okkar hér fyrir
sunnan er heldur ekkert svo sérstök, það tuðar
hver í sínu horni en fátt markvert gerist. Þann
11. desember árið 2000 lokaði hópur Suðurnesja-
manna Reykjanesbraut í þrjá og hálfan tíma til
þess að vekja athygli á öryggismálum á brautinni
og að flýta framkvæmdum við tvöföldun hennar.
Aðgerðirnar voru umdeildar á meðal ráðamanna
en hér á meðal fólksins á svæðinu var víðtækur
stuðningur enda höfðu yfirvöld hunsað ábend-
ingar og kröfur fólksins alltof lengi. Þegar það
kom svo að enn einu hörmulega banaslysinu
fékk fólk algjörlega nóg og ráðist var í þessar rót-
tæku mótmælaaðgerðir. Þær skiluðu þó sínu og
ráðamenn virtust rumska aðeins við sér og urðu
að bregðast við. Reyndar núna 18 árum seinna
hefur þó ekki ennþá verið lokið við að tvöfalda
brautina sem er með algjörum ólíkindum. Þrátt
fyrir það þá er það mín skoðun að þessi tiltekna
mótmælaaðgerð hafi skilað okkur hvað mestu í
þessari áralöngu baráttu okkar Suðurnesjamanna
gegn vanrækslu ríkisins hér á okkar svæði. Það
er þörf á róttækum aðgerðum núna að mínu
mati til þess að senda ráðamönnum skýr skila-
boð um að þessi vanræksla í garð okkar sé ekki
liðin mikið lengur. Efa það reyndar að lausnin
núna sé að loka brautinni en ætla hér með að
skora á sveitarstjórnarfólkið okkar og þingmenn
svæðisins í að sameina krafta sína (vinna saman
svona einu sinni) og mótmæla þessu kröftuglega
og krefjast úrbóta. Það er gríðarlegur vöxtur á
svæðinu okkar og það er íslenska hagkerfinu
gríðarlega mikilvægt, ríkið þarf að sýna það í
verki að það séum við íbúarnir líka. Ef þetta
gengur ekki þá ættu Suðurnesin í raun að sækja
bara um sjálfstæði frá íslenska ríkinu. Svona
lítil Katalónía. Við tuðum um það sama ár eftir
ár, hversu mikið á okkur hallar en nú er kominn
tími á einhverjar aðgerðir. Boltinn er hjá sveitar-
stjórnarfólkinu okkar og þingmönnum, kannski
ekki jafn róttækar aðgerðir og á brautinni 11.
desember árið 2000 en eitthvað sem ráðamenn
taka eftir og hlusti á okkur í eitt skipti fyrir öll.
LOKAORÐ
ÖRVAR Þ. KRISTJÁNSSON