Víkurfréttir - 18.04.2018, Blaðsíða 15
15MANNLÍF Á SUÐURNESJUM miðvikudagur 18. apríl 2018 // 16. tbl. // 39. árg.
,,Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi
Tinnabókanna og hef síðust ár verið
að grúska í bókum sem hafa komið út
um höfundinn Hergé og þetta merki-
lega sköpunarverk hans. Þannig að
ég lagði bara til við dagskrárstjóra
Rásar 1 að ég tæki sumarfríið mitt
í fyrra í að gera þessa þætti, og það
varð úr. Verkefnið vatt að vísu mikið
upp á sig, þannig að þættirnir urðu
fleiri og viðameiri en stefnt var að.“
Aðdáun Gísla Marteins hefur ekkert
minnkað á fullorðinsárum og við
undirbúning þáttanna þótti honum
skemmtilegast að fara í gegnum bæk-
urnar sem hann átti ekki en undir-
búningurinn krafðist gífurlegrar
rannsóknarvinnu.
,,Ég keypti mér allar þær bækur sem
eru til um Hergé og Tinna, sem eru all
nokkrar. Það liggur gríðarlega mikil
vinna á bakvið svona þætti. Ég eyddi
meiri tíma í rannsóknir og skrif á
þessu efni en til dæmis í meistararit-
gerðina mína í Edinborgarháskóla!“
Aðspurður um það sem kom honum
mest á óvart við gerð þáttanna er Gísli
ekki lengi til svars:
,,Hversu mikil áhrif heimsmálin
höfðu á skrif Hergé, hversu pólitískar
bækurnar eru og hvað Hergé hefur
verið eftirgefanlegur gagnvart ráðandi
öflum.“
Það sem Gísli Marteinn kemur til
með að fjalla um í Bókasafni Reykja-
nesbæjar miðvikudagskvöldið 18.
apríl eru einmitt nokkur þemu og eitt
þeirra er Tinni og dularfullu stjórn-
málaskoðanirnar.
,,Ég ætla að stikla á stóru í því efni
sem ég var að fjalla um í þáttunum
mínum og reyna að fara skrefi lengra
en bara að kynna Tinna fyrir hlust-
endum. Mig langar að ræða um þau
þemu sem ég tók fyrir í þáttunum,
sem var ‘Tinni og dularfullu stjórn-
málaskoðanirnar’, ‘Tinni og leyndar-
dómar kynjahlutverkanna’ og ‘Tinni
í fylgsnum fordómanna’. Undir öllum
þessum fyrirsögnum eru svo dæmi og
sögur sem ég vona að sé áhugavert
að heyra.“
Uppáhaldspersóna Gísla úr Tinna
bókunum er Tinni sjálfur.
,,Tinni er auðvitað með afbrigðum
dyggðug persóna. Hann hefur í raun-
inni enga galla, er alltaf hjálpsamur og
vill aðstoða þá sem minna mega sín.
Hann fer ekki í manngreinarálit. Hann
er í raun táknmynd góða skátans - og
ég held að það sé gott að vera alltaf
tilbúinn að hjálpa öðrum.“
Gísli Marteinn býst ekki við því að
miðla meira efni um Tinnabækurnar
en heimili hans var undirlagt af Tinna
- rannsóknum í rúmt hálft ár. Núna
hefur hann sett bækurnar upp í hillu
og einbeitir sér að sínu aðalstarfi; gerð
sjónvarpsþáttanna Vikan með Gísla
Marteini sem sýndir eru á föstudags-
kvöldum í Ríkissjónvarpinu.
Að lokum er Gísli spurður hvort hann
myndi kalla sjálfan sig sérfræðing í
Tinna bókunum.
,,Ég myndi ekkert titla mig þannig
í símaskránni, en ég veit orðið ansi
mikið um þennan ágæta belgíska
blaðamann“ segir Gísli kíminn.
Miðvikudagskvöldið 18. apríl
klukkan 20.00 kemur Gísli Marteinn
Baldursson og fjallar um Tinna-
bækurnar í Bókasafni Reykjanes-
bæjar. Aðgangur er ókeypis og allir
hjartanlega velkomnir í Bókasafn
Reykjanesbæjar.
HEIMILIÐ UNDIRLAGT AF TINNA
- rannsóknum í rúmt hálft ár
Gísli Marteinn var mikill aðdáandi Tinnabókanna
á sínum yngri árum og las bækurnar sem hann
átti sem barn upp til agna. Útvarpsþáttasería um
Tinna bækurnar undir stjórn Gísla Marteins hefur
nú verið flutt á Rás 1 og notið mikilla vinsælda.
www.volkswagen.is
Við látum framtíðina rætast.
5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd
HEKLA · Njarðarbraut 13 · Reykjanesbæ · Sími 590 5090 · heklarnb.is
Nýr T-Roc. Fjórhjóladrifinn
og fæddur til að skara fram úr.
Nýr T-Roc geislar af öryggi og akstursgleði, fæst bæði fjórhjóla- og framhjóladrifinn, beinskiptur og
sjálfskiptur. Hann er búinn nýjustu tækni og búnaði sem breytir akstrinum í eitthvað ómótstæðilegt.
Komdu og í reynsluakstur á Volkswagen T-Roc sem gerir allt vitlaust hvar sem hann kemur.
Komdu og prófaðu nýjustu stjörnuna frá Volkswagen.
Volkswagen T-Roc
3.290.000 kr.
Verð frá aðeins