Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2018, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 12.04.2018, Blaðsíða 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M S U Ð U R N E S J A MAGASÍN fimmtudagskvöld kl. 20 á Hringbraut og vf.is AÐAL S ÍMANÚMER 421 0000 ■ AUGLÝS INGAS ÍM INN 421 0001 ■ FRÉTTAS ÍM INN 421 0002 SAMLOKUR & SALÖT MIKIÐ ÚRVAL, FÍNT Í HÁDEGISMATINN RJÚKANDI HEITT KAFFI NÝMALAÐ ILMANDI KAFFI BAKAÐ Á STAÐNUM KLEINUHRINGIR, RÚNSTYKKI OG FLEIRA HRINGBRAUT REYKJANESBÆ VIRKA DAGA HELGAR ALLTAF OPIÐ ALLTAF OPIÐ AFGREIÐSLUTÍMAR: Krossmóa 4 | Reykjanesbæ Opnunartími mán.–fös. frá 9–20 lau.–sun. frá 11–18 Meðalverð íbúða í fjölbýli í Reykjanesbæ síð- ustu þrjá mánuði samkvæmt söluskýrslum til Íbúðalánasjóðs eru 300 þúsund krónur á fermetrann. Meðalverð á öðrum eignum og eignum í heild á Suðurnesjum er um 250 þúsund krónur á fermetrann. Guðmundur Sigfinnsson, hagfræðingur hjá Íbúðalánasjóði, segir raunverð fasteigna á Suðurnesjum hafa náð nýjum hæðum. Guðmundur greindi frá þessu á framkvæmda- þingi sem Reykjanesbær stóð fyrir í Hljóma- höllinni í vikunni. Í máli hans kom m.a. fram að fasteignaverð hafi hækkað mun meira á Suðurnesjum en landsmeðaltal. Hækkanir hafa einnig verið mun meiri á endanlegu söluverði en ásettu verði á fasteignum á Suðurnesjum en höfuðborgarsvæðinu að því er fram kom í erindi Guðmundar. Leigumarkaðurinn í Reykjanesbæ er samkvæmt skýrslu Íbúðalánasjóðs sá virkasti á landinu og nemur hækkun undanfarinna tólf mánaða 27% en var 10% á höfuðborgarsvæðinu. Frá ársbyrjun 2015 til dagsins í dag er hækkunin í Reykjanesbæ 50% og fermetraverð komið í 1500 kr./m2. Stöðugur vöxtur hefur verið í Airbnb-útleigu en í júlí 2017 voru 150 íbúðir í Reykjanesbæ en 125 í febrúar 2018. Á framkvæmdaþinginu var farið yfir fram- kvæmdir hjá nokkrum af stórum aðilum sem standa í bygggingaframkvæmdum á Suður- nesjum. Gert er ráð fyrir í skipulagi bæjarins byggingu nærri þrjú þúsund íbúða í Keflavík og Njarðvík á næstu árum. Tvö þúsund íbúðir eru í nýtingu á Ásbrú og möguleiki á að fjölga þeim verulega. Miðað við þetta má búast við áframhaldandi eftirspurn á fasteignamark- aði en fasteignasalar sögðu við VF nýlega að markaðurinn hafi aðeins róast að undanförnu og eignir selst nálægt ásettu verði en ekki yfir því eins og raunin hafi verið á síðustu árum. Horfur eru, samkvæmt skýrslu ILS, á áfram- haldandi umframvexti í mannfjölda á Suður- nesjum. Möguleg sviðsmynd geri ráð fyrir því að árið 2021 verði íbúafjöldi í Reykjanesbæ komin í 21 þúsund manns og 25 þúsund árið 2030. Ljóst er að mannfjölgun er keyrð áfram af miklum drifkrafti í atvinnulífinu og þá sérstak- lega á Keflavíkurflugvelli en auk áframhaldandi vaxtar í ferðaþjónustunni er gríðarlegar fram- kvæmdir á teikniborðinu við flugstöðina fyrir tugi milljarða. Verktakar munu þurfa mikinn mannskap til að sinna þeim verkefnum á næstu árum og mun það ýta undir enn frekari íbúa- fjölgun á Suðurnesjum. – meðalverð í fjölbýli komið í 300 þús. kr. Meðalverð fasteigna í hæstu hæðum Mystery Boy er kómísk ástarsaga um ungt fólk sem, í leit sinni að sannleikanum og ástinni, lendir í furðulegu ferðalagi og óvæntum ævintýrum. Það er Leikfélag Keflavíkur sem setur söngleikinn á svið en frumsýning er föstudagskvöldið 13. apríl. Höfundur söngleiksins er listamaðurinn Gud- mundson sem er fóstraður af Smára Guðmunds- syni tónlistarmanni. Fríða Dís, systir Smára, fer með stórt hlutverk í verkinu. Nánar er fjallað um Mystery Boy á síðu sex í blaðinu í dag og einnig í Suðurnesja magasíni Víkurfrétta á sjónvarps- stöðinni Hringbraut á fimmtudagskvöld kl. 20:00. FRÍÐA DÍS Á LEIKSVIÐIÐ „Hesta- mennskan er minn lífstíll“ 12–13 fimmtudagur 12. apríl 2018 // 15. tbl. // 39. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.