Víkurfréttir - 12.04.2018, Page 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
S U Ð U R N E S J A
MAGASÍN
fimmtudagskvöld kl. 20
á Hringbraut og vf.is
AÐAL S ÍMANÚMER 421 0000 ■ AUGLÝS INGAS ÍM INN 421 0001 ■ FRÉTTAS ÍM INN 421 0002
SAMLOKUR
& SALÖT
MIKIÐ ÚRVAL,
FÍNT Í HÁDEGISMATINN
RJÚKANDI
HEITT KAFFI
NÝMALAÐ
ILMANDI KAFFI
BAKAÐ Á
STAÐNUM
KLEINUHRINGIR,
RÚNSTYKKI OG FLEIRA
HRINGBRAUT
REYKJANESBÆ
VIRKA DAGA
HELGAR
ALLTAF OPIÐ
ALLTAF OPIÐ
AFGREIÐSLUTÍMAR:
Krossmóa 4 | Reykjanesbæ
Opnunartími
mán.–fös. frá 9–20
lau.–sun. frá 11–18
Meðalverð íbúða í fjölbýli í Reykjanesbæ síð-
ustu þrjá mánuði samkvæmt söluskýrslum
til Íbúðalánasjóðs eru 300 þúsund krónur
á fermetrann. Meðalverð á öðrum eignum
og eignum í heild á Suðurnesjum er um 250
þúsund krónur á fermetrann. Guðmundur
Sigfinnsson, hagfræðingur hjá Íbúðalánasjóði,
segir raunverð fasteigna á Suðurnesjum hafa
náð nýjum hæðum.
Guðmundur greindi frá þessu á framkvæmda-
þingi sem Reykjanesbær stóð fyrir í Hljóma-
höllinni í vikunni. Í máli hans kom m.a. fram
að fasteignaverð hafi hækkað mun meira á
Suðurnesjum en landsmeðaltal. Hækkanir hafa
einnig verið mun meiri á endanlegu söluverði
en ásettu verði á fasteignum á Suðurnesjum
en höfuðborgarsvæðinu að því er fram kom í
erindi Guðmundar.
Leigumarkaðurinn í Reykjanesbæ er samkvæmt
skýrslu Íbúðalánasjóðs sá virkasti á landinu
og nemur hækkun undanfarinna tólf mánaða
27% en var 10% á höfuðborgarsvæðinu. Frá
ársbyrjun 2015 til dagsins í dag er hækkunin
í Reykjanesbæ 50% og fermetraverð komið
í 1500 kr./m2. Stöðugur vöxtur hefur verið í
Airbnb-útleigu en í júlí 2017 voru 150 íbúðir í
Reykjanesbæ en 125 í febrúar 2018.
Á framkvæmdaþinginu var farið yfir fram-
kvæmdir hjá nokkrum af stórum aðilum sem
standa í bygggingaframkvæmdum á Suður-
nesjum. Gert er ráð fyrir í skipulagi bæjarins
byggingu nærri þrjú þúsund íbúða í Keflavík
og Njarðvík á næstu árum. Tvö þúsund íbúðir
eru í nýtingu á Ásbrú og möguleiki á að fjölga
þeim verulega. Miðað við þetta má búast við
áframhaldandi eftirspurn á fasteignamark-
aði en fasteignasalar sögðu við VF nýlega að
markaðurinn hafi aðeins róast að undanförnu
og eignir selst nálægt ásettu verði en ekki yfir
því eins og raunin hafi verið á síðustu árum.
Horfur eru, samkvæmt skýrslu ILS, á áfram-
haldandi umframvexti í mannfjölda á Suður-
nesjum. Möguleg sviðsmynd geri ráð fyrir því að
árið 2021 verði íbúafjöldi í Reykjanesbæ komin
í 21 þúsund manns og 25 þúsund árið 2030.
Ljóst er að mannfjölgun er keyrð áfram af
miklum drifkrafti í atvinnulífinu og þá sérstak-
lega á Keflavíkurflugvelli en auk áframhaldandi
vaxtar í ferðaþjónustunni er gríðarlegar fram-
kvæmdir á teikniborðinu við flugstöðina fyrir
tugi milljarða. Verktakar munu þurfa mikinn
mannskap til að sinna þeim verkefnum á næstu
árum og mun það ýta undir enn frekari íbúa-
fjölgun á Suðurnesjum.
– meðalverð í fjölbýli komið í 300 þús. kr.
Meðalverð fasteigna
í hæstu hæðum
Mystery Boy er kómísk ástarsaga um ungt fólk
sem, í leit sinni að sannleikanum og ástinni, lendir
í furðulegu ferðalagi og óvæntum ævintýrum. Það
er Leikfélag Keflavíkur sem setur söngleikinn á
svið en frumsýning er föstudagskvöldið 13. apríl.
Höfundur söngleiksins er listamaðurinn Gud-
mundson sem er fóstraður af Smára Guðmunds-
syni tónlistarmanni. Fríða Dís, systir Smára, fer
með stórt hlutverk í verkinu. Nánar er fjallað um
Mystery Boy á síðu sex í blaðinu í dag og einnig
í Suðurnesja magasíni Víkurfrétta á sjónvarps-
stöðinni Hringbraut á fimmtudagskvöld kl. 20:00.
FRÍÐA DÍS Á LEIKSVIÐIÐ
„Hesta-
mennskan
er minn
lífstíll“
12–13
fimmtudagur 12. apríl 2018 // 15. tbl. // 39. árg.