Víkurfréttir - 12.04.2018, Blaðsíða 17
17MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 12. apríl 2018 // 15. tbl. // 39. árg.
mikilvægt að breyta þeirri hugsun.
Það eru margir sem eru í þjónustu
hér en gætu samt alveg unnið og hafa
áhuga á því, þótt það væri ekki nema
hlutastarf. Í draumaheimi væru flestir
að vinna samhliða því að vera hér
hjá okkur en því miður er það ekki
þannig.“
PRENTSMIÐJA Á FRUMSTIGI
Fjölbreytt starf fer daglega fram hjá
Hæfingarstöðinni og eru starfsmenn
duglegir að gera daginn skemmtilegan
með fjölbreyttum uppákomum eins
og Boccia-mótum, föndri, skapandi
starfi, listaverkavinnu og fleira.
„Nýjasta viðbótin hjá okkur er prent-
smiðja, en Styrktarsjóður í minningu
Sigurbjargar safnaði fyrir verkefninu
með sölu á skrifstofuvarningi þar
sem ágóðinn fór í að kaupa tæki,
búnað og efni. Þau seldu pappír út
um allt land og notuðu ágóðann af
því til kaupanna. Þau eru búin að vera
ótrúlega dugleg að safna og núna er
verið að þróa þetta og vinna og prent-
smiðja Hæfó er farin af stað en er á
frumstigi ennþá.“
HÆGT AÐ PRENTA Á NÁNAST HVAÐ SEM ER
Hægt er að prenta á ýmsan varning
eða í raun og veru allt sem hægt er
að láta sér detta í hug. Í dag er hægt
að láta prenta á boli, peysur, bolla,
sundpoka, segla og fleira. „Við erum
að fikta okkur áfram. Í framtíðinni
verðum við með Facebook-síðu þar
sem að fólk getur pantað vörur hjá
okkur. Við munum sanngjarnt verð
og gefum okkur aðeins lengri tíma
í hlutina, þetta myndi efla atvinnu-
starfsemina okkar verulega. Þá yrðu
þetta verkefni sem eru atvinnutengd
og ágóðinn myndi renna í okkar eigin
sjóð sem fjármagnar það sem að
sveitarfélögin fjármagna ekki. Eins
og til dæmis árshátíð, sem er haldin
árlega, sem við fjármögnum með
vinnuverkefnum og sölu á vörum.
Við förum árlega í vorferð, gefum
öllum sem eru hérna páskaegg og
jólagjafir, líkt og tíðkast á flestum
almennum vinnustöðum.“
MARKMIÐIÐ ER AÐ HAFA GAMAN
Jón Kristinn segir að það sé mark-
mið þeirra að hafa gaman en í dag sé
töluverð rólegheit, þar sem að engin
vinnuverkefni frá fyrirtækjum séu
fyrir hendi. Allir sem dvelji á Hæf-
ingarstöðinni vilji vinna og hafa til-
gang með deginum.
„Við reynum að nýta veðrið og um-
hverfið á sumrin og gera það sem
okkur finnst skemmtilegt að gera en
það er markmið okkar, að hafa gaman.
Það skiptir öllu máli. Hér er líka frá-
bært starfsfólk sem vinnur gott og
ötult starf og sér til þess að starfsemin
sé fjölbreytt og skemmtileg.“ Hægt er
að skoða Facebook-síðu Hæfingar-
stöðvarinnar en þar má sjá starfsemi
þeirra og margt annað.
Frá barni til barns
– styrktartónleikar fyrir langveik börn
í Reykjanesbæ
Styrktartónleikarnir „Frá barni til barns” í þágu langveikra barna í Reykja-
nesbæ verða haldnir næstkomandi laugardag, 14. apríl, í Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar. Píanó-, harmonikku- og hljómborðsnemendur skólans
efna til sex stuttra tónleika sem hefjast kl. 11 og verða á hálfa og heila
tímanum til kl. 14. Tónleikarnir fara fram í Bergi, Hljómahöll.
Listmarkaður verður opinn meðan
á tónleikaröðinni stendur og rennur
allur ágóði af sölu listaverka, hvort
sem þau eru í orði, tónum, litum eða
öðru formi, óskert til málefnisins
sem stuðningur hinna fullorðnu við
framtak barnanna.
Listaverk eru byrjuð að berast á
markaðinn jafnt frá áhuga- og at-
vinnulistamönnum og er almenn-
ingur í Reykjanesbæ hvattur til
að skoða hvort þeir eigi í fórum
sínum frumsamið hugverk, hand-
verk, myndverk eða hvað annað af
þessum toga sem viðkomandi vill
gefa á listmarkaðinn til stuðnings
þessu mikilvæga málefni.
Slík framlög má tilkynna í síma Tón-
listarskólans 420 1400.
Að auki verður kaffihús á listmark-
aðnum þar sem flutt verður tónlist
af nemendum. Allur ágóði af sölu
veitinga rennur sömuleiðis óskertur
til málefnisins og eru allir hjartan-
lega velkomnir.
Hægt er að tryggja sér miða á tón-
leikana með frjálsum framlögum inn
á reikning nr. 0142-15-010366, kt.
3006584829, en einnig verða seldir
miðar við innganginn í Berg.
Söfnun beinna styrkja er hafin og
hægt er að leggja framlag til lang-
veikra barna í Reykjanesbæ inn á
ofangreint reikningsnúmer.
Reikningurinn verður opinn til
14. maí 2018.
UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM
Frumsýning Föstudaginn 13.apríl kl.20.00 -UPPSELT-
2. Sýning Sunnudaginn 15.apríl kl.20.00
3. Sýning Föstudaginn 20.apríl kl.20.00
4. Sýning Laugardaginn 21.apríl kl.20.00
Miðaverð 2.500 kr.-
Miðapantanir í síma 421-2540
eftir kl.14.00.
SÝNT Í FRUMLEIKHÚSINU VESTURBRAUT 17 / NÁNARI UPPLÝSINGAR INN Á WWW.LK.IS
Höfundur: Gudmundson
Leikstjóri: Jóel Sæmundsson
yfirnátturuleg ástarsaga
söngleikurinn