Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.2018, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 12.04.2018, Blaðsíða 21
21MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 12. apríl 2018 // 12. tbl. // 39. árg. Heilbrigðismál eru sjálfsögð mannréttindi - Í tilefni fundar Öldungaráðs Suður- nesja í bíósal Duus húsa 6. apríl Við vinnslu fjárlaga fyrir árið 2018 sendi Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum inn umsögn þar sem bent var réttilega á að Suðurnesin hafa verið fjársvelt af hinu opin- bera. Þetta fjársvelti er óskiljan- legt þegar hafðar eru í huga þær staðreyndir, sem finna má í um- sögninni, að hlutfallsleg fjölgun íbúa er mest á Suðurnesjum eða allt að 8% á ári sem er langt um- fram landsmeðaltal. Ekkert bendir í þá átt að sú fjölgun verði minni á næstunni og ætti það að eitt að vera nóg til að viðeigandi ráðstafanir séu gerðar gagnvart íbúum svæðisins. Ef við skoðum hvaða áhrif þetta hefur haft á heilbrigðismál okkar bæjarbúa er nóg að skoða þær tölur sem við höfum m.a. um hjúkrunarrými fyrir íbúa Suðurnesja. Í október síðastliðnum kynnti Vel- ferðarráðuneytið nýja áætlun um fjölgun 155 hjúkrunarrýma. Athygli vekur að þrátt fyrir að hjúkrunar- rými eru færri á hvern íbúa á Suður- nesjum en í öðrum heilbrigðisum- dæmum er ekki gert ráð fyrir fjölgun rýma hér. Ef við berum saman fjölda rýma er heilbrigðisumdæmi Suður- nesja með 3,8 rými á hverja 1.000 íbúa, heilbrigðisumdæmi Austur- lands með 5,5 og heilbrigðisumdæmi höfuðborgarsvæðisins með 6,6 rými. Þá er heilbrigðisumdæmi Norður- lands með 9,4 rými á hverja 1.000 íbúa, heilbrigðisumdæmi Vestur- lands með 9,5 rými og heilbrigðisum- dæmi Suðurlands með flest rými eða 12 á hverja 1.000 íbúa. Skoðum líka fjárframlög til heilbrigðis- stofnanna hvers svæðis fyrir sig. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er úthlutað 387.000 kr á hvern íbúa, Heilbrigðisstofnun Austurlands 343.000, Heilbrigðisstofnun Vestur- lands 255.000, Heilbrigðisstofnun Suðurlands 194.000 á hvern íbúa, Heilbrigðisstofnun Norðurlands 153.000 og að lokum er Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja úthlutað 117.000 kr á hvern íbúa. Í málefnaskrá Pírata á Suðurnesjum er stefna okkar að koma heilbrigðis- málum svæðisins í betra horf. Að hafa eðlilegt aðgengi að heilbrigðis- þjónustu eru sjálfsögð mannréttindi, réttindi sem við búum ekki við nú- verandi ástandi. Nauðsynlegt er að aukinn þrýstingur sé settur á ríkið svo hægt sé að koma á breytingum fyrir íbúa Suðurnesja. Það þýðir að bæjarstjórn sem kosin er af okkur íbúunum taki upp gjallarhornið fyrir okkar hönd og láti heyra almennilega í sér og krefjist úrbóta. Guðmundur Arnar Guðmundsson sagnfræðingur PÍPULAGNINGAMENN ÍAV hf. | Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | s. 530 4200 | www.iav.is Verkefni ÍAV eru á öllum sviðum byggingariðnaðar hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, opinberar byggingar eða aðra mann- virkjagerð sem og jarðgangagerð og jarðvinnuframkvæmdir bæði hérlendis og erlendis. Við leggjum mikla áherslu á að ráða til okkar kraftmikla og framsækna einstaklinga, með góða hæfni í mannlegum samskiptum. Við bjóðum upp á góða starfsaðstöðu og erum stolt af starfsandanum og þeim metnaði sem hjá okkur ríkir. ÍAV er eina verktakafyrirtækið á Íslandi sem hefur bæði ISO 9001 gæðavottun og OSHAS 18001 öryggisvottun. Nánari upplýsingar veitir Einar Ragnarsson í síma 854 0045 Umsóknir óskast lagðar inn í gegnum heimasíðu ÍAV, www.iav.is Hjá ÍAV starfar góður og samheldinn hópur, aðstaða starfsmanna er til fyrirmyndar. Skilyrði umsóknar er menntun sem nýtist í starfi. Við leitumst eftir að stækka hópinn okkar og hvetjum við konur jafnt sem karla að sækja um hjá okkur. Vegna aukinna umsvifa og góðrar verkefnastöðu óskar ÍAV eftir að ráða pípulagningamenn, verkstjóra og nema á Suðurnesjunum. OHSAS 18001 Occupational Health and Safety Management OHS 606809 ISO 9001 Quality Management FM 512106 Við breytum vilja í verk „VONANDI ERUM VIÐ Á LEIÐ ÁFRAM“ ❱❱ sagði Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra á fundi í Reykjanesbæ. Greindi frá sjö nýjum dagdvalarrýmum „Ég vona að þessi fundur sé til þess að við marks um það að við séum á leiðinni eitthvað áfram. Það hafa lengi verið krefjandi verkefni á svæðinu, fordæmalaust atvinnuleysi og núna fordæmalaus íbúafjölgun. Suðurnesja- menn hljóta að vera langeygir eftir félagslegum stöðugleika. Ég fer fer með allar þessar athugsemdir og ábendingar í ráðuneytið til úrvinnslu,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra á fundi sem Öldungaráð Suðurnesja stóð fyrir í Duus-húsum sl. föstudag. Svandís fór yfir margvísleg mál í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum og víðar og svaraði spurningum fundarmanna en mjög góð mæting var á fundinn. Hún greindi frá því að umsókn um sjö ný dagdvalarrými í Reykjanesbæ hefði verið samþykkt, þar af fjögur vegna heilabilaðra og þrjú ný pláss á Nesvöllum. Svandís sagði vegna umræðu um mismun- andi framlög til heilbrigðisstofnana að samsetning á hverju svæði hefði áhrif varðandi framlög og því væri skýring á því af hverju framlög væru minni til Suðurnesja en t.d. Suður- lands og Vesturlands. Það væru fleiri heilbrigðisstofnanir þar en á Suðurnesjum og það kallaði á meiri kostnað en framlög réðust ekki ein- göngu vegna íbúafjölda. Hún sagði aðspurð um skurðstofur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að samkvæmt leiðbeiningum landlæknis þá væri ekki ástæða til að hafa hér starfandi opna skurðstofu. Hins vegar væri verið að skoða meira samstarf við Landsspítalann um um tilteknar aðgerðir til að minnka biðlista. Svan- dís sagði það mikið áhyggjuefni hvað þróunin væri slæm í fjölgun heil- brigðisstarfsfólks og þá sagðist hún vona að lausn væri í sjónmáli varðandi málefni ljósmæðra. Á fundinum voru flutt nokkur erindi sem lýsa vel erfiðri stöðu í heilbrigðis- og öldrunarmálum á Suðurnesjum. Í ályktun sem öldungaráð lagði fram, og var samþykkt, er þess krafist að fjárframlög til heilbrigðismála verði aukin verulega strax á næsta ári og heilbrigðisþjónusta í heimabyggð verði efld. „Það er vitlaust gefið,“ eru lokaorð ályktunarinnar. UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra á fundinum í Duus-húsum. VF-mynd/pket. Fjölmenni var á fundinum með heilbrigðisráðherra.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.