Víkurfréttir - 12.04.2018, Síða 2
2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 12. apríl 2018 // 15. tbl. // 39. árg.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a,
4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
// Blaðamaður: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, sími 421 0002, rannveig@vf.is //
Auglýsingastjóri: Andrea Sif Þorvaldsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit & um-
brot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421
0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag:
9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00
á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga
er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur
þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er
dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur
frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á
vefsíðum Víkurfrétta.
FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
MANNLÍF Á SUÐURNESJUM
VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM
ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM
UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
„FRÁ BARNI TIL BARNS“
STYRKTARTÓNLEIKAR
Hljómborðsdeild skólans stendur fyrir styrktartónleikum
fyrir langveik börn í Reykjanesbæ n.k. laugardag
þann 14. apríl frá kl.11 til 14.
Kaffihús – Listmarkaður.
Allur ágóði rennur óskiptur til verkefnisins.
Sjá nánar í fréttatilkynningu hér í blaðinu.
Skólastjóri
Í síðustu viku skrifuðu Kjartan Már
Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanes-
bæjar, og Erling Freyr Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Gagnaveitu
Reykjavíkur, undir samkomulag
þess eðlis að Ljósleiðarinn verði
kominn í öll hverfi Reykjanesbæjar
fyrir árslok 2021.
Það þýðir að heimilum mun standa
til boða Eitt gíg. „Ljósleiðarinn mun
ekki einungis færa heimilum bæjarins
öflugt netsamband. Hann mun einn-
ig eiga þátt í því að smyrja hjól at-
vinnulífsins með því að styrkja stoðir
nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs.
Reykjanesbæjar bíður björt framtíð og
enn frekar með traustum innviðum,“
segir Kjartan Már.
Samstarf um uppbygginguna
Samhliða samkomulaginu við Reykja-
nesbæ hefur Gagnaveita Reykjavíkur
auglýst eftir samstarfsaðilum. Sam-
starfið getur verið meðal annars:
Að selja Gagnaveitu Reykjavíkur fjar-
skiptalagnir sem fyrir eru í sveitar-
félaginu og nýst geta við ljósleiðara-
væðinguna, eða með samnýtingu
framkvæmda með öðrum veitufyrir-
tækjum, fjarskiptafyrirtækjum eða
sveitarfélaginu sjálfu.
Gagnaveita Reykjavíkur auglýsir eftir
samstarfsaðilum í þessa veru og geta
áhugasamir aðilar kynnt sér málið
frekar á ljosleidarinn.is/samstarf
Eitt gíg í boði
Heimilum í þessum byggðarkjörnum
mun standa til boða Eitt gíg gæða-
samband Ljósleiðarans. Hann gefur
kost á 1000 megabitum bæði til og
frá heimili.
Flest stærstu fjarskipta- og af-
þreyingarfyrirtæki landsins bjóða
þjónustu sína um Ljósleiðarann.
Viðskiptavinum stendur til boða
val á milli fjölmargra þjónustuleiða
Vodafone, Nova, 365, Hringdu og
Hringiðunnar.
Lengi haft augastað
á Reykjanesbæ
„Við höfum lengi haft augastað á
ljósleiðaravæðingu Reykjanesbæjar.
Nýlega lögðum við stofnstreng suður
eftir sem opnar á stækkun þjónustu-
svæðis Ljósleiðarans á Reykjanesi.“
segir Erling Freyr Guðmundsson
framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykja-
víkur.
Nú þegar eru um 89 þúsund heimili
tengd opnu neti Ljósleiðarans. Það
eru um 65% allra heimila í landinu.
Áætlað er að sex þúsund heimili bæt-
ist við á þessu ári. Stefnt að því að
tengingum með samkomulaginu við
Reykjanesbæ og nýlegu samkomulagi
við Árborg verði lokið árið 2021. Þá er
reiknað með að um 113 þúsund heimili
eigi kost á þjónustu Ljósleiðarans.
Ljósleiðarinn í Reykjanesbæ
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Gagnaveitu Reykjavíkur við undirskrift samningsins.
Svo gæti farið að kúlur sjáist að nýju í Rockville en fyrirtækið
Útvör ehf óskar eftir stöðuleyfi fyrir uppblásin kúluhús á
Rockville-svæðinu fyrir ferðaþjónustutengda starfssemi.
Húsnæðis-, skipulags- og byggingaráð Sandgerðisbæjar telur
erindið ekki samræmast þeim hugmyndum sem höfð voru að
leiðarljósi við nýtingu svæðisins í tillögu að deiliskipulagi sem
unnið var fyrir svæðið á árinu 2008. Þó svæðið yrði heimilað
til þeirra nota tímabundið sem umsækjandi óskar eftir er að-
eins heimilt að veita stöðuleyfi til eins árs í senn og því aldrei
hægt að verða við stöðuleyfi til tíu ára eins og óskað er eftir.
Kadeco er með leigusamning við landeigendur um umrætt
land og því verður landinu ekki ráðstafað án samráðs við þá.
Erindi vísað til bæjarráðs/bæjarstjórnar til umsagnar. Þar
lagði Daði Bergþórsson til að erindinu verði vísað til skoðunar
í bæjarráði, sem var samþykkt samhljóða.
Aftur kúlur í Rockville?