Víkurfréttir - 12.04.2018, Blaðsíða 6
6 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 12. apríl 2018 // 15. tbl. // 39. árg.
Suðurnesjamagasín
Lumar þú á ábe
ndingu
um áhugavert ef
ni?
Á trúnó um Rúnar Júlíusson
Mystery Boy föstudaginn 13. List án landamæra
Árnafréttir á opnum flugdegi í Keili
fimmtudagskvöld kl. 20:00 á Hringbraut og vf.is
Mystery Boy er kómísk ástarsaga um ungt
fólk sem í leit sinni að sannleikanum og ást-
inni lendir í furðulegu ferðalagi og óvæntum
ævintýrum. Það er Leikfélag Keflavíkur sem
setur söngleikinn á svið en frumsýning er
föstudagskvöldið 13. apríl. Höfundur er lista-
maðurinn Gudmundson sem er fóstraður
af Smára Guðmundssyni tónlistarmanni.
Leikstjóri er Jóel Sæmundsson. Tónlistin er
samin af Gudmundson og Tósa Ljósár. Tón-
listarráðgjafi er Stefán Örn Gunnlaugsson.
„Þetta er sett upp sem kómísk ástarsaga um
ungt fólk sem í leit sinni af sannleikanum og
ástinni lendir í furðulegu ferðalagi og óvæntum
ævintýrum. En þrátt fyrir að viðfangsefnið sé
alvarlegt er mikilvægt að koma auga á spaugi-
legu hliðarnar og hafa gaman,“ sagði Smári
Guðmundsson í viðtali við Víkurfréttir fyrir
um mánuði síðan þegar ákveðið var að ráðast
í verkefnið.
Smári hefur lært upptökustjórn en hafði ekki
mikla reynslu af söngleikjum þegar hugmyndin
kviknaði en áhuginn jókst eftir því verkinu
miðaði áfram.
„Ég fór af stað í þetta verkefni með litla sem
enga vitneskju í farteskinu nema þá reynslu
sem ég hef úr tónlistinni. Því lengra sem ég fór
inn í verkið fór áhuginn minn fyrir söngleikjum
og handritagerð að aukast. Ég fór að hafa þrá-
hyggju fyrir þeim sem ég tel vera af hinu góða
því ef á að gera hluti vel þarf að fá kafa djúpt í
viðfangsefnið. Ég sökkti mér í allar bækur um
söngleiki og handritagerð sem ég komst yfir og
sótti einnig námskeið,“ sagði Smári.
Smári fékk með sér stórskotalið af geggjuðu
fólki í söngleikjagerðina eins og hann segir
sjálfur. Stefán Örn Gunnlaugsson (Íkorni) er
sérstakur tónlistarráðgjafi Mystery Boy en
hann hefur m.a. sett upp söngleik á Broadway.
„Með honum kemur inn gífurleg reynsla og
erum við afar þakklát að fá hann inn í verk-
efnið. Auk Stefáns nýt ég krafta Ástþórs Sindra
Baldurssonar við að setja upp tónlistina með
mér. Fleiri hafa komið nálægt tónlistinni og
má þar nefna Björgvin Ívar bróðir Ástþórs og
stórfrænda þeirra Gunnar Skjöld. Fríða systir
er svo að aðstoða við söngtextana“.
Fríða Dís gerir reyndar aðeins meira en að að-
stoða við söngtextana því hún fer með eitt af
stóru hlutverkunum í söngleiknum. Nánar er
fjallað um Mystery Boy í Suðurnesjamagasíni
Víkurfrétta á fimmtudagskvöld á sjónvarps-
stöðinni Hringbraut og á vf.is.
MYSTERY BOY FÖSTUDAGINN ÞRETTÁNDA
- Leikfélag Keflavíkur frumsýnir nýjan söngleik eftir Gudmundson föstudagskvöldið 13. apríl í Frumleikhúsinu