Morgunblaðið - 13.09.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.09.2017, Blaðsíða 12
Á toppnum Helga lengst til hægri með íslenska fánann á toppi fjallsins Halti í Lapplandi. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þetta var mjög frumstætt ogskemmtilegt og maðurkemur á einhvern háttbetri manneskja úr svona ferðalagi. Maður lærir að umgang- ast náttúruna með virðingu, sem veitir ekki af í neyslubrjálæði nú- tímans. Við gengum um tuttugu kíló- metra á dag á milli kofa sem eru al- gjörlega sjálfbærir, enginn sér um þá svo gestir á göngu taka fulla ábyrgð á öllu. Ekkert rennandi vatn er í kofunum svo við þurftum að sækja vatn út í nærliggjandi læki, og við kofana eru útikamrar sem fólk setur trjávið yfir þegar það hefur gert þarfir sínar. Fólki ber skylda til að höggva eldivið þegar það yfirgef- ur kofana, svo næstu gestir hafi nægan eldivið. Við þurftum að taka allt rusl með okkur til baka og við bárum líka allan mat með okkur, tjöld, dýnur og svefnpoka, en þetta er mjög afskekkt og engir vegir fyrir trússbíl. Þetta er mjög norðarlega og ekkert ósvipað íslenskri náttúru, fyrir utan hreindýrin sem mikið er af á þessum slóðum. Þau gengu með okkur,“ segir Helga Viðarsdóttir sem gekk á fjallið Halti í Lapplandi í sumar ásamt sex félögum sínum. Bændur notuðu alphorn til að hafa samskipti sín á milli „Við tókum með okkur fornt blásturshljóðfæri, alpahorn, sem bændur notuðu í Ölpunum í Aust- urríki hér áður fyrr til að hafa sam- skipti sín á milli þar sem miklar vegalengdir skildu að. Alpahorn er risastórt hljóðfæri svo við skiptum því niður í bakpokana okkar og bár- um það alla leið upp á topp, þar sem við blésum svo kveðju yfir hin Norð- urlöndin. Það er hægara sagt en gert að blása í alpahorn, en við æfð- um okkur á leiðinni og fyrir vikið fannst Finnunum sem við mættum við vera svolítið klikkuð. En þetta gaf ferðinni sérstakan tón og sýnir ákveðna samstöðu; að við getum far- ið saman hópur af fólki sem þekkist lítið og borið þetta hljóðfæri saman alla leið upp. Það var sérstök og táknræn tilfinning að blása svo öll í það á toppnum.“ Helga segir að þau hafi ákveðið að ganga á Halti af því Finnland fagnar nú 100 ára sjálfstæðisafmæli. „Það er svo sérstakt að síðustu metrarnir á hæsta tindi Halte til- heyra Noregi. Ég veit að það var til umræðu í norska þinginu að gefa Finnlandi þessa metra í tilefni af aldarafmæli sjálfstæðis þeirra, en það reyndist of flókið og fór ekki í gegn.“ Næst verður það hið íslenska Snæfell, á lýðveldisafmælinu Helga segir að þau sjö sem gengu upp á Halti hafi verið af fimm þjóðernum og hún hafi verið eini Ís- lendingurinn og eini Norðurlanda- búinn. „Við erum hluti af hópi sem setti af stað verkefni um að ganga á fimm hæstu fjöll Norðurlandanna, utan jökla. Þetta er fólk sem hefur unnið mikið í útivistargeiranum, blaðamenn, ljósmyndarar og fólk sem starfar í ferðamennsku. Þetta er í raun gæluverkefni Þjóðverjans Matthias Assmanns, hann setti þetta af stað af því honum finnst vanta at- hygli á þennan hluta Evrópu, Norð- urlöndin. Við viljum vekja athygli á nátt- úru Norðurlandanna, við eigum fal- leg fjöll og háa tinda og margar áhugaverðar gönguleiðir. Himmel- bjerget er ekki nema 147 metra hátt, en engu að síður hæsta fjall eða hóll í Danmörku. Þó svo að Danmörk hafi Gengu með hrein- dýrum í Lapplandi Þau vilja vekja athygli á náttúru Norðurlandanna og settu því af stað verkefni um að ganga á fimm hæstu fjöll Norðurlandanna, utan jökla. Þau byrjuðu á að ganga á Halti í Lapplandi og báru með sér risastórt fornt hljóðfæri til að blása kveðju. Þau gistu í frumstæðum kofum með engu rennandi vatni og útikömrum. Táknrænn gjörningur Hér tekur einn úr hópnum að sér að blása í alpahorn, fornt hljóðfæri sem þau báru með sér upp á fjallstindinn. Bjálkar Hér reima þau á sig gönguskó utan við einn af kofunum frumstæðu. Það er hægara sagt en gert að blása í alpahorn, en við æfðum okkur á leiðinni og fyrir vikið fannst Finnunum sem við mættum við vera svolítið klikkuð. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 Lukkutröllin eru tákn hamingju og lukku. Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is Lukkutröllin komin Verð 8.590.- Verð 8.590.- Verð 8.590.- Verð 8.590.- 5.590.- NÝTT Verð Í amstri dagsins er gott að finna at- hvarf, slaka á og lifa í þögninni. Í Skálholti gefst tækifæri til þess á kyrrðardögum. Kyrrðardagar kvenna eru samvera fyrir konur, sem vilja njóta nærveru Guðs í einingu og friði. Rækta mennskuna og næra andlegt líf og trú. Kyrrðardagar kvenna fara fram í Skálholti í næstu viku. Þeir hefjast fimmtudaginn 21. september kl. 18 og lýkur með messu í Skál- holtskirkju, sunnudaginn 24. sept- ember kl. 11. Kyrrðardagar hafa verið haldnir í Skálholti frá árinu 1989. Umhverfi Skálholts er talið tilvalið til hvíldar, kyrrðar, næðis og næringar fyrir lík- ama sál og anda. Þögn í rúma tvo sólarhringa Kyrrðardagar kvenna hefjast eins og allir aðrir kyrrðardagar með kvöld- söng kl. 18. Því næst er kvöldverður og kynningarstund. Þögnin gengur í garð kl. 21 og henni er aflétt um há- degisbil á sunnudag. Hugleiðingar, samverur, söngur, fyrirbænir, göngur og helgihald eru meðal þess sem í boði er á kyrrðardögunum. Sígild tónlist er leikin á matmálstímum sem að öðru leyti fara fram í þögn. Umsjónarmenn kyrrðardaga kvenna eru Anna Stefánsdóttir, Ást- ríður Kristinsdóttir, Bergþóra Bald- ursdóttir og Þórdís Klara. Eintaklingurinn í fyrirrúmi Í tilkynningu kemur fram að góð aðstaða sé í Skálholti. Í boði eru sér- herbergi með snyrtingu, einbýli eða tvíbýli, uppbúin rúm og fullt fæði. Á heimasíðu Skálholts kemur fram að kyrrðardagar séu hugsaðir fyrir ein- staklinginn þó að hann mæti í hóp með fleirum. Þátttakendur í kyrrðar- dögum ráða hvernig þeir verja tíma Konum býðst að rækta andann á kyrrðardögum í Skálholti Hvíld, kyrrð, næði og nær- ing fyrir konur Kyrrð Aðstaða í Skálholti er góð til íhugunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.