Morgunblaðið - 13.09.2017, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 13.09.2017, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 Árni Matthíasson arnim@mbl.is 14. september ár hvert, á fæðingardegi dr. Sigurðar Nordals, gengst Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fyrir svo- kölluðum Sigurðar Nordals fyrirlestri. Að þessu sinni flytur Gunnþórunn Guðmunds- dóttir fyrirlesturinn, en hún er prófessor í al- mennri bókmenntafræði og forseti Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Á síðasta ári kom út ytra bók Gunnþór- unnar, Representations of Forgetting in Life Writing and Fiction sem Palgrave Macmillan gefur út. Í bókinni fjallar hún um það að gleyma og þá sérstaklega hvernig hægt er að rekja hið gleymda í frásögum og minningum. Hún segir að fyrirlesturinn fjalli um tengt efni. „Ég ætla að tala um arkívina, tala um fjölskylduarkívina og hvað gerist þegar hún verður stafræn, hvernig breytir það sambandi okkar við fortíðina. Ég ræði þetta líka í bók- inni, en á öðrum nótum.“ Átök við stafræna minnið - Þegar maður á aðeins eina mynd af barninu sínu segir sú mynd afskaplega mikla sögu, en þegar myndirnar skipta tugum þús- unda þá tekur myndin af barninu á sig allt aðra mynd. „Stafrænu minningarnar safnast saman og fólk verður kvíðið yfir öllu því sem það á, fyll- ist kvíða yfir því hvernig best sé að geyma hlutina og varðveita og glímir svo við sektar- kennd yfir því að skoða safnið aldrei. Við erum löngu hætt að sitja með fjölskyldunni að skoða myndaalbúm, en myndaalbúmin eru þó það sem fólk sér mest eftir þegar það stendur og horfir á heimili sitt brenna. Myndirnar eru líka eina heimildin sem fólk á í dag, enda eiga allir ljósmyndir af sjálfum sér, eða svo gott sem allir, en þeir eiga ekki lengur bréf eins og algengt var áður. Þegar Facebook segir manni frá því hvað maður sagði eða gerði á þessum degi fyrir tveimur árum þá eru það alls ekki okkar raun- verulegu minningar. Ég get ekki sagt frá því hvað ég gerði áttunda september 2015 eða hvað ég var að lesa þann dag og ég skil oft ekki þessa statusa sem birtast á Facebook – þetta er alls ekki okkar minni, þetta er Face- book-minni. Síðan eru þetta oft líka minningar sem við viljum ekki muna, minningar um veik- indi eða erfiðleika sem við viljum mjög gjarn- an gleyma, sem við viljum fá að vinna úr á okkar hraða. Við erum í smá átökum við staf- ræna minnið, það er núningur á milli þess hvernig okkar minni virkar og stafræna minn- isins og það er ekki síst vegna þess að við höldum að stafræna minnið sé rétta minnið. Mannkynið hefur viljað hafa fullkomið minni af því það var ákjósanlegt að muna sem mest og tengist lærdómi og þekkingu. Okkur hættir því til að líta á stafræna minnið sem lausn: nú getum við munað allt!“ Gleymskan er alltaf partur af minninu - Minnið er skeikult, enda er hausinn á okk- ur ekki geymsla heldur er hann vinnslustöð – við erum alltaf að laga til minningar og slípa. „Já, minnið er óáreiðanlegt en samt er það gríðarlega mikilvægt, enda er sjálfsmynd okk- ar búin til í minninu. Það sem ég ræði þó í bók- inni og einnig í fyrirlestrinum er að gleymskan er alltaf partur af minninu, hún er ekki and- stæða heldur hjálpar hún okkur til þess ein- mitt að sætta okkur við fortíðina og líka til þess að muna. Við þurfum á gleymskunni að halda en jafnframt erum við alveg á fullu að reyna að berjast á móti henni. Við viljum ekki tapa fortíðinni alveg, viljum til dæmis muna þá sem deyja alveg sérstaklega. Það er þó gott að gleyma en við verðum líka að passa að gera það í hófi og við þurfum líka að gæta að samfélagsminninu, þurfum til dæmis að passa okkur þegar stjórnvöld vilja að við gleymum hlutum eða stjórnmálamenn. Þá erum við á hættuslóðum, því vald og minni er vandmeðfarið.“ - Í bókinni ræðir þú um það hvernig menn nota minnið í ævisögum og viðlíka til að búa til nýja mynd af sjálfum sér. „Maður gerir þetta alltaf, maður er alltaf að segja sögur af sjálfum sér á mismunandi hátt í mismunandi samhengi, hvort sem það er þeg- ar maður kynnist nýju fólki, eða fer til nýs læknir – það kemur ný frásögn í hvert sinn. Hún breytist í gegnum tímann og mótast líka af fólki, af þínum minnishóp, sameiginlegt minni okkar. Fjölskylda okkar mótar mjög mikið hvernig við munum æskuna og við erum leiðrétt í sífellu, sérstaklega ef maður á eitt- hvað af systkinum,“ segir Gunnþórunn og hlær. Æskuminningarnar eru samstarfsverkefni „Æskuminningar okkar eru í raun sam- starfsverkefni og það eru ákveðnar minningar sem er ýtt að okkur og svo munum við ekki lengur hvort við séum að finna fyrir skynhrif- unum sem við fundum fyrir þá eða hvort við séum bara að muna söguna sem einhver sagði okkur. Frásögn er algjört lykilatriði í öllu sem tengist minni, því við erum alltaf að reyna að koma minningum í orð, og þá erum við að móta þær um leið, það er eins og við séum sag- an af okkur sjálfum. Frásögnin breytist líka í hvert sinn. Það sér maður til dæmis í sjálfs- ævisögulegum textum. Þegar menn hafa skrif- að nokkra slíka í gegnum ævina þá breytast þeir í hvert sinn, enda er ekkert upprunalegt og óbreytilegt í minninu heldur mótast það af umhverfi og aðstæðum.“ - Það má segja að eftir því sem maður kynn- ist betur heilastarfsemi okkar sér maður betur hvað við erum ófullkomin. „Og hvað við erum háð aðstæðum. Setningin „ég man“ fríar okkur þó að vissu leyti enda ætlast enginn til þess að það sé 100% staðreynd sem þú ert að fara að segja. Það er ætlast til þess að þú sért að segja frá því hvernig þú manst hlutina og áheyrandinn veit að þú ert sennilega ekki að segja alveg rétt frá, heldur að segja frá þinni útgáfu af því sem gerðist. Stundum skapar það árekstra, en oftast verður til sameiginleg saga.“ - Minnishópur, til að mynda fjölskylda, býr í sameiningu til minningu sem hún á sameigin- lega en niðurstaðan þarf ekki endilega að vera „rétt“. „Nei, en hún er sönn fyrir sjálfsmynd fjöl- skyldunnar. Svo getur eitthvað gerst, eins og til dæmis þegar eitthvert skelfilegt atvik er þaggað niður innan fjölskyldu. Þá verður allt miklu erfiðara og flóknara, því þá er ekki bara sannleikurinn að koma í ljós heldur er verið að eyðileggja sjálfsmynd fjölskyldunnar. Það er oft það sem er erfiðast þegar fólk er að segja frá einhverju misjöfnu mörgum árum síðar. Þá er verið að brjóta það niður sem sjálfs- mynd fólks hefur byggt á að einhverju leyti og það vekur hryggð og ótta. Fólki finnst að það sé að tapa einhverju, enda erum við alltaf að búa frásögnina til. Við týnum dögunum sam- stundis en höfum mikla þörf fyrir að tengjast þeim.“ Gleymska er partur af minni  Gunnþórunn Guðmundsdóttir ræðir minni og gleymsku í Sigurðar Nordals fyrirlestri Ljósmynd/Háskóli Íslands/Kristinn Ingvarsson Frásögn Gunnþórunn Guðmundsdóttir flytur Sigurðar Nordals fyrirlestur á fimmtudag. Hildur Loftsdóttir hilo@mbl.is Heimildarmyndin Skjól og skart eftir Ásdísi Thoroddsen verður frumsýnd í Bíó Paradís annað kvöld kl. 20. „Undirtitill myndarinnar er handverk og saga íslensku búninganna,“ segir leikstjór- inn, sem fylgdi hópi áhuga- samra sauma- kvenna á nám- skeiði hjá Heimilisiðnaðarfélaginu. „Þær segja frá sínu, hvers vegna þær eru að búa til þessa búninga sem eru svo sjaldan born- ir. Út frá samræðum þeirra á milli og við kvikmyndatökuvélina vakna spurningar og þá er leitað annað og út fyrir. Svo er líka farið í handverkið sem er af mjög mis- munandi tagi,“ útskýrir leikstjór- inn. Pólitík þjóðbúninganna „Þessi mynd kom til af því að einu sinni bjó ég til mynd um bátasmíðar á Norðurlöndum og fylgdi þá eftir hópi karla sem voru að smíða, og núna langaði mig að gera handverki kvenna skil,“ segir Ásdís. „Myndin varð samt svolítið öðruvísi því það er pólitískur flöt- ur á þessu. Búningurinn varð mjög táknrænn fyrir þá þjóðfrels- isbylgju sem fór um lönd á tímum 19. aldar. Hér á landi og víða um Evrópu tók fólk upp þjóðbúninga sem pólitískt tákn og hefur verið fram á 20. öld og það er svo spurning hvað maður tengir við það í dag.“ Ásdís segir að einnig komi fram í myndinni sú samræða hvort megi breyta búningunum eða ekki. „Það er alltaf spurning með menningararf, er hann lifandi eða óbreytanlegur? Á að setja hann upp á stall og bara virða hann fyr- ir sér? Eða á hann að vera hluti af okkar daglega lífi?“ Ömmurnar hafa áhrif Margskonar handverk er sýnt í myndinni og þar á meðal skart- smíðin fyrir búningana. „Þekktasti gullsmiðurinn sem gerir þjóðbúningaskart er Dóra Jónsdóttir í Gullkistunni á Frakkastígnum. Hún kemur fram í myndinni til að ræða um fald- búninginn sem er genginn í end- urnýjun lífdaga. Nýlega er fólk farið að sauma faldbúninga sem dóu út í upphafi 19. aldar. Þeir eru með miklum útsaumi neðst á pilsinu og með treyju, og höfuð- fatið sem var borið við búninginn krókfaldur eða spaðafaldur,“ út- skýrir Ásdís. „Ég er sjálf dóttir módernista og móðir mín, Ásdís Sveinsdóttir, var frumkvöðull í módern skart- gripasmíði. Samt sem áður fór hún út í þessa búningaskartsmíði vegna hefðar. Í upphafi módern- isma var borin mikil virðing fyrir góðu handverki,“ útskýrir Ásdís. „Amma mín, Theodóra Thorodd- sen, gekk alltaf í upphlut, út af pólitík, og það eru margar sem tengja við þessa búninga út af ömmum sínum.“ Ásdís segir að það virðist vera meiri áhugi fyrir þjóðbúningum í dag heldur en var. „Kannski hefur alþjóðavæðingin áhrif. Nú þegar heimurinn er orð- inn einsleitari fer fólk að leita róta sinna, upprunans,“ segir Ásdís og hvetur alla til að koma að sjá myndina Skjól og skart. „Það er heilmikill fróðleikur í henni.“ Margar hliðar þjóðbúningsins  Mynd um handverk og sögu ís- lensku þjóðbúninganna  Er menn- ingararfurinn óbreytanlegur?  Fólk leitar róta sinna og uppruna Handlagni Fjölmargar konur búa sér til íslenskan þjóðbúning. Stilla úr nýrri heimildarmynd Ásdísar. Ásdís Thoroddsen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.