Morgunblaðið - 13.09.2017, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 13.09.2017, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 ✝ Ingólfur fædd-ist 1. janúar 1960. Hann lést 1. september 2017. Foreldrar hans eru Aðalsteinn Ing- ólfsson, f. 19.5. 1941, d. 14.7. 2011, og Ingibjörg Sig- fúsdóttir, f. 24.6. 1942. Eiginkona Ingólfs er Eygló R. Sigurðardóttir, f. 19.8. 1966, og börn þeirra eru Snorri Þór, f. 16.2. 1994, Sigur- steinn Óli, f. 1.11. 1999, og Íris Arna, f. 12.12. 2003. Systkini Ing- ólfs eru Sigfús Aðalsteinsson og Valgerður Aðal- steinsdóttir. Ingólfur lærði bifvélavirkjun og starfaði lengst af á Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar á Smiðjuvegi. Útför Ingólfs fer fram frá Hjallakirkju í dag, miðvikudaginn 13. september, klukkan 15. Elsku Ingó minn, það er þyngra en tárum taki að missa þig, frumburð minn, í blóma lífs- ins. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varst þú kallaður á örskammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr en örlög þín ráðin; mig setur hljóða við hittumst ei aftur á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höfundur ókunnur.) Kærleikskveðja, mamma. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Héðan skal halda heimili sitt kveður heimilisprýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Þær voru þungbærar fréttirn- ar af sviplegu andláti þínu, kæri mágur og svili. Nú er komið að kveðjustund, allt allt of fljótt. Okkur fjölskyld- unni í Frederiksgård er efst í huga þakklæti fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum með þér og fjölskyldu þinni. Þær hafa verið ófáar stundirnar gegnum tíðina sem við fjölskyldurnar höf- um hist á ferðalögum víða um Evrópu. Allar ferðirnar ykkar um Evr- ópu þar sem ferðin hófst með við- komu og grillveislu í Frederiks- gård og svo hist á tjaldstæði í Þýskalandi, Frakklandi og víðar um Evrópu. Skíðaferðirnar okkar til Austurríkis að heimsækja ykkur, haustferðin til Toscana svo eitt- hvað sé nefnt. Fyrstu jólin okkar í Danmörku fyrir akkúrat 20 ár- um þegar þið mættuð til að fagna með okkur jólahátíðinni þar. Þær eru svo ótalmargar góðu minningarnar að ylja sér á og þær ber að varðveita. Þú hafðir alltaf gaman af að spjalla um heimsmálin og varst ákaflega fréttaþyrstur. Það var gott að leita ráða hjá þér og aldr- ei var keyptur bíll án þess að hringja í þig og fá upplýsingar um hvaða bíl væri best að kaupa. Þú varst einstaklega greiðvik- inn og góðhjartaður maður og vildir öllum það besta. Nú ert þú lagður af stað í þína hinstu ferð og við fjölskyldan kveðjum þig með virðingu og þökk fyrir samfylgdina. Guð styrki fjölskyldu þína í hennar miklu sorg. Elsku Eygló, Snorri, Sigursteinn og Íris, við sendum ykkur okkar innilegustu samúð- arkveðjur á þessum erfiðu tím- um. Hinsta kveðja frá fjölskyld- unni í Frederiksgård. Jóhann Hjálmarsson, Þóra Blomsterberg, Magnús, Gestur, Ólöf og Þóroddur Jóhannsbörn. Elskulegur systursonur okk- ar, Ingólfur, lést 1. september síðastliðinn. Okkur setti hljóðar og minningar leita á hugann. Ing- ólfur var fyrsta barnabarn for- eldra okkar og var mikil eftir- vænting hjá fjölskyldunni og gleði þegar hann fæddist á nýj- ársdag 1960. Hann var fyrsti drengurinn sem fæddist í fjöl- skyldu okkar en við erum þrjár systurnar. Faðir okkar sem er níutíu og níu ára kveður nú sitt elsta barnabarn sem hann var svo stoltur af. Sem barn var Ingólfur mikill fjörkálfur, kátur, stríðinn og allt- af hlæjandi. Oft var erfitt að hafa augu með honum því hann hafði gaman af að stinga okkur af, svo þegar hann loksins fannst þá tísti í honum. En fyrst og fremst var Ingólfur góður og ljúfur drengur sem ekkert illt mátti sjá. Ein af minningunum okkar var þegar Imba systir, móðir hans, keypti sér stóra Camy-sápu sem hún dásamaði á alla kanta og lof- aði endingu hennar, hún hefði gert svo góð kaup. Ending sáp- unnar var þó ekki löng því Ingó tók málin í sínar hendur og sturt- aði henni niður um klósettið. Við getum sagt margar svona sögur af Ingólfi en þær munu lifa í minningu okkar. Ingólfur eignað- ist bróður þegar hann var eins árs, Sigfús, og voru þeir bræður mjög samrýndir alla tíð. Þegar Ingólfur var tíu ára gamall bætt- ist svo systirin Valgerður í hóp- inn. Oft var komið saman hjá mömmu og pabba í Fossvoginum. Þar var oft glatt á hjalla og eiga börnin okkar góðar minn- ingar um stóra frænda sinn frá þessum tímum. Ingólfur gekk í fótspor afa síns og lærði bifvéla- virkjun og keypti síðar sitt eigið verkstæði sem hann rak ásamt öðrum þar til fyrir fáum árum. Eftirlifandi eiginkona Ingólfs er Eygló Sigurðardóttir og eignuð- ust þau þrjú börn; Snorra Þór, Sigurstein Óla og Írisi Örnu. Elsku Eygló og börn, Imba systir, Siffi, Valla og fjölskyldur, megi algóður Guð styrkja ykkur og umlykja í sorg ykkar. Kærleikskveðja, Guðný og Sigrún Sigfúsdætur. Við fengum skilaboð frá Eygló um að Ingólfur væri dáinn. Fyrstu viðbrögðin voru æ nei, það getur ekki verið rétt. En raunveruleikinn er annar, góður vinur er farinn. Leiðir okkar Ingólfs lágu fyrst saman þegar hann byrjaði í Hjálparsveitinni í Kópavogi. Það var fyrir meira en tuttugu árum, þegar hann kynntist Eygló, en hún var þá þegar starfandi í sveitinni. Alveg frá byrjun var mjög gott samband, farið í marg- ar góðar útilegur og fjallgöngur í góðum hópi vina. Ingólfur var alltaf hjálplegur og hugulsamur. Ef eitthvað var að, til dæmis í sambandi við bílana, var aldrei neitt vandamál, „komdu bara, við reddum þessu“. Svo komu þau tímamót að við fluttum til út- landa. Margir sögðust ætla að koma í heimsókn, en Ingó og Eygló stóðu við það og kíktu fljótt til okkar. Þau létu sig ekki heldur vanta þegar við giftum okkur hérna úti. Síðan þá hefur það ver- ið fastur liður á dagskrá að „kíkja“ við; hvort sem þau voru á ferðinni í Danmörku eða Austur- ríki var Holland alltaf í leiðinni. Það fyrsta sem hann sagði alltaf þegar hann kom inn um dyrnar var „jæja“. Það þýddi að setjast niður með bjór og ræða málin. Oft sneri hann umræðunni út í það hvað hann gæti gert til þess að hjálpa okkur þegar við værum í heim- sókn á Íslandi. Sem dæmi um það hjálpaði hann okkur oft að útvega bíl ef þörf var á þegar við vorum á landinu. Það var alltaf mjög gaman að fá þau í heimsókn, Ingó og Eygló fyrst tvö ein og síðar með Snorra sem smábarn, og eftir það með Sigurstein og Írisi. Það voru góð- ar stundir, við fórum oft saman að skoða nágrennið eða einhverja borg. Fastur liður á dagskrá heim- sóknarinnar var að fara út að borða og sérstaklega fyrir Ingó að fá sér almennilega steik. Við munum sakna hans mikils, vina- legur, traustur, hjálplegur félagi er fallinn frá. Elsku Eygló, Snorri Þór, Sigursteinn Óli, Íris Arna, okkar allra innilegustu samúðarkveðj- ur. Megi minningin um góðan dreng lifa. Sigríður, Snorri, Einar og Óskar. Ingólfur Aðalsteinsson Elsku amma, hvar skal byrja? Frá því ég man eftir hefur þú verið sú sem var mildin upp- máluð, ekki að þú hafir ekki sagt mér til syndanna, ójú svo sann- arlega gerðirðu það og ekki síst hin síðustu ár. Hve oft óskaði ég þess að það væri styttra á milli okkar, Aðaldalur – Patró, það var heljarinnar ferðalag að fara á milli. Það var því alltaf mikil til- hlökkun þegar ég vissi að þið Hanna væruð væntanlegar því þá var ýmislegt brallað sem ekki var möguleiki að fá mömmu og pabba til að gera. Minningarnar líða um huga minn, sumarpartarnir með þér í Króksfjarðarnesi og á Kambi eru með mínum dýrmætustu endur- minningum, í sumarbústaðnum þegar þú gast fussað og sveiað yfir okkur Hönnu þegar við lás- um bækurnar um Ísfólkið fram og til baka, þú „píndir“ mig átta ára til að lesa sjálf þannig að ég kom fluglæs heim, leyfðir mér að leigja Grease-spóluna tíu sinnum og lést mig fara með soðningu á steininn fyrir ofan Ráðagerði fyrir villikettina. Guðrún Fanney Halldórsdóttir ✝ Guðrún Fann-ey Halldórs- dóttir fæddist 3. mars 1922. Hún lést 15. ágúst 2017. Útförin fór fram 2. september 2017. Þegar ég gifti mig varst þú hjálparhella númer eitt í undirbúningn- um, þræddir hverja skóbúðina á fætur annarri með mér því auðvitað varð botn- inn á skónum að vera hvítur! Í veislunni varstu hörð á því að drekka ekki neitt áfengi en sast svo alsæl frammi í eldhúsi og borðaðir alla ávextina úr boll- unni. Hin seinni ár þegar við fjöl- skyldan komum vestur til þín þá voru það okkar mestu gæða- stundir. Við lúrðum fram eftir og spjölluðum langt fram eftir kvöldum, þú mataðir börnin mín á súkkulaði og á milli ykkar yngstu Eyjunnar þinnar mynd- aðist sterkur þráður og skilur hún ekkert í því hvar þú ert núna. „Mamma, hvað er amma á Patró eiginlega að gera uppi í skýjun- um?“ Amma mín, takk fyrir að vera mín „íslenska kona“. … Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf þér. Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan, sem ól þig og þér helgaði sitt líf. (Ómar Ragnarsson.) Þín Sigrún Fanney. Elsku Anna frænka er farin, ég og fjölskylda mín náðum að kveðja hana sem ég mun verða ævinlega þakklátur fyrir. Hugurinn ferðast á þessum tímamótum aftur í tímann og minnist ég hversu gaman og notalegt það var að koma til þeirra hjóna, Önnu og Kristjáns, á Hólmavík, ég dvaldi sumarpart heima hjá þeim þegar ég tók mín fyrstu skref í vinnu á frystihúsinu á Hólmavík. Mörgum árum síðar hýsti Anna okkur feðga þegar ég kom suður til að hitta son minn. Það voru alltaf kjötbollur í matinn Anna Jónsdóttir ✝ Anna Jóns-dóttir fæddist 26. apríl 1924. Hún lést 19. ágúst 2017. Útförin fór fram 31. ágúst 2017. þegar við komum, þetta eru enn þann dag í dag bestu kjöt- bollur sem ég hef smakkað. Hún Anna tók alltaf á móti manni með brosi og almennri góð- mennsku sem geisl- aði af henni, já- kvæðni og fullu borði af kræsingum, maður fór alltaf frá Önnu í góðu skapi. Anna, þú varst svo góð mann- eskja og skildir eftir svo mikið gott. Maður á alltaf að vera að læra og reyna að bæta sig á meðan maður er hér á þessu jarðríki og þú, elsku Anna, ert fyrirmynd í góðmennsku og jákvæðni, ég mun hugsa til þín þegar ég þarf að vera góður og jákvæður. Bless elsku Anna frænka, þú ert alltaf í huga mér. Þröstur. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær dóttir mín, systir, móðir, tengdamóðir og amma, DAGBJÖRT MICHAELSDÓTTIR sjúkraliði, Garðabæ, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 7. september. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju föstudaginn 15. september klukkan 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Ósk Guðmundsdóttir Sigurður Michaelsson Benja Darayen Michael S. Kristófersson María Sif Guðmundsdóttir Rúrik Nói Michaelsson Ástkær faðir okkar og afi, SIGURÐUR H. B. RUNÓLFSSON, Vesturgötu 7, Reykjavík, lést á Landspítalanum sunnudaginn 3. september. Útför hans verður gerð frá Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 19. september klukkan 13. Björgvin Sigurðsson Þóra Hermannsd. Passauer Sigríður M. Sigurðardóttir Kjartan Arnfinnsson og barnabörn Okkar ástkæri GUÐMUNDUR G. JÓNSSON, Holtsgötu 31, Ytri-Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 26. ágúst. Jarðarför fór fram í kyrrþey að ósk hans mánudaginn 4. september. Þóra Jónsdóttir Elísabet Guðmundsdóttir Víðir Tómasson Jón Þór Guðmundsson Rósa Björk Guðmundsdóttir Jóhannes Ólafsson Snorri Guðmundsson Ólöf Harpa Gunnarsdóttir Anna Meyvantsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkæri faðir minn og afi, GUÐMUNDUR A. STEINSSON, prentari og tónlistarmaður, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu á Droplaugar- stöðum þriðjudaginn 29. ágúst. Útförin fór fram í kyrrþey. Ellen Guðmundsdóttir og börn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.