Morgunblaðið - 13.09.2017, Blaðsíða 27
Hvammi, fyrst í félagsbúi við foreldra
sína, 1962, og var síðar í félagi við
bróður sinn með kúabúskap fram til
1980: „Þróunin í Hvammi varð sú að
hefðbundinn búskapur vék smám
saman fyrir garðyrkjunni.“
Kjartan sat í sýslunefnd Árnessýslu
1966-88, var hreppstjóri Hrunamanna-
hrepps frá 1970 og þar til embætti
hreppstjóra var lagt af. Hann sat í
hreppsnefnd 1982-94.
Kjartan var formaður Ungmenna-
félags Hrunamanna, tók virkan þátt í
leiklistarfélagi sveitarinnar og lék
nokkur hlutverk, m.a. hlutverk morð-
ingjans í Músagildrunni sem félagið
setti upp veturinn 1965.
Kjartan hefur sungið í nokkrum
kórum, þ.á m. í kirkjukór Hruna-
kirkju, Flúðakórnum og syngur nú
með kórnum Tvennir tímar, sem er
kór eldri borgara í uppsveitum Árnes-
sýslu.
Þau hjónin hafa ferðast talsvert hér-
lendis og erlendis og fóru m.a. árlega í
hestaferðir með hópi sveitunga sinna.
Nú eru þau nýkomin úr ferð til Eng-
lands þar sem þau fóru á söguslóðir
þarlendra heiðursmanna.
Fjölskylda
Kjartan kvæntist 4.3. 1967 Björgu
Björnsdóttur, f. 10.11. 1943, kennara.
Hún er dóttir Björns Laxdals Jóns-
sonar og Kristjönu Kristjánsdóttur.
Börn Kjartans og Bjargar eru: 1)
Kristjana, f. 30.10. 1962, gæðastjóri
hjá Orkuveitu Reykjavíkur, gift Oddi
Má Gunnarssyni, skrifstofustjóra
Matís, en þau búa í Kópavogi og eiga
þau Björgu Maríu, f. 1989, Hrafn
Valtý, f. 1991, og Bryndísi Bergmann,
f. 2002; 2) Bryndís, f. 10.4. 1967,
sendifulltrúi hjá utanríkisráðuneyt-
inu, en sonur hennar er Kjartan Ás-
geirsson, f. 2005; 3) Helgi, f. 3.2. 1970,
byggingatæknifræðingur hjá Límtré-
Vírneti, kvæntur Ernu Óðinsdóttur,
klæðskerameistara og hönnuði, og
eru börn þeirra Kjartan, f. 1996, Hall-
dór Fjalar, f. 2000, og Þórey Þula, f.
2004, og 4) Björn, f. 6.8. 1973, fram-
kvæmdastjóri Gömlu laugarinnar á
Flúðum, en sambýliskona hans er
Aga Szaa og dóttir Björns úr fyrri
sambúð er Sandra Michaela, f. 2009.
Systkini Kjartans eru Jóhannes,
búsettur í Hvammi II, kvæntur
Kristínu Karlsdóttur og eiga þau
fjögur börn, og Guðrún, búsett í
Reykjavík og á hún eina dóttur.
Foreldrar Kjartans voru Helgi
Kjartansson, f. 20.7. 1895, d. 20.11.
1977, bóndi í Hvammi í Hrunamanna-
hreppi, og k.h., Elín Guðjónsdóttir, f.
14.6. 1902, d. 11.11. 1982, húsfreyja.
Kjartan
Helgason
Guðrún Þórðardóttir
húsfr. á Brjánsstöðum
Erlendur Guðmundsson
b. á Brjánsstöðum í
Grímsnesi
Guðrún Erlendsdóttir
húsfr. í Gröf
Guðjón Helgason
b. og smiður í Gröf í Hrunamannahreppi
Elín Guðjónsdóttir
húsfr. í Hvammi
Guðrún Jónsdóttir
ljósm. í Berghyl
Helgi Eiríksson
b. í Berghyl
Ragnheiður Kjartansdóttir
fyrsti blindrakennari á Íslandi
Jóhannes Kjartansson verkfr.
Guðmundur Kjartansson jarðfr.
Guðmundur Helgason
prófastur í Reykholti
Ágúst Helgason alþm.
í Birtingaholti
Unnur Kjartansdóttir kennari viðMelaskóla,
síðar skólastj. í Ásaskóla og Flúðaskóla
Elín Kjartansdóttir
húsfr. í Rvík
Guðrún Kjartansdóttir húsfr. í Skipholti
Guðmundur Guð-
mundsson stærðfr.
Ásmundur
Guðmundsson
biskup Íslands
Magnús Ásmunds-
son yfirlæknir á
Akureyri, síðar í Rvík
Kjartan Skúla-
son verkam. í
Rvík.
Helgi Skúli
Kjartansson
sagnfr. í Rvik
Eyrún Guðjónsdóttir,
húsfr. í Gröf
Maren Ragnheiður Friðrika Lárusdóttir
húsfr. í Hjarðarholti
Jóhannes Guðmundsson
sýslum. í Hjarðarholti
Stafholtstungum
Sigríður Jóhannesdóttir
húsfr. í Hruna
Kjartan Helgason
prófastur í Hruna
Guðrún Guðmundsdóttir
húsfr. í Birtingaholti
Úr frændgarði Kjartans Helgasonar
Helgi Kjartansson
b. og organisti í Hvammi í Hrunamannahreppi
Tryggvi Ásmunds-
son læknir
Kjartan Magnús-
son borgarfulltrúi
Andrés Magnús-
son blaðam.
Elín Pálsdóttir
húsfr. á
Litlu-Háeyri
Páll And-
résson b. í
Nýjabæ
Lúðvík Geirss. fv.
form.BÍ,bæjarstj.
Hfj og alþm.
Geir
Gunnars-
son alþm
Björg Björgólfs-
dóttir húsfr. í
Hafnarfirði
Einar Stefáns-
son prófessor í
augnlækning-
um í Rvík.
Stefán
Pétursson
aðst.bankastj.
í Rvík
Magnús Andrésson pró-
fastur og alþm á Gilsbakka
Pétur Magnússon
alþm. og ráðh. í
Rvík og forseti
bæjarstj. í Rvík
Ásgeir Péturs-
son fyrrv.
sýslum. og
bæjarfógeti.
Sigríður
Ásgeirs-
dóttir lista-
maður.
Andrés
Magnússon
hreppstj. í
S-Langholti
Magnús
Þórðarson
framkv.stj.
NATÓ á Íslandi
Þórður
Eyjólfsson
hæstarétt-
ardómari
Eyjólfur
Andrésson b.
á Kirkjubóli í
Hvítársíðu
Helgi Magnússon
b. í Birtingaholti, af Kóps-
vatnsætt og Reykjaætt
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017
95 ára
Axel G.J. Thorsteinson
90 ára
Eiríkur Bjarnason
85 ára
Björgvin Guðmundsson
Hulda Árnadóttir
Kjartan Helgason
Sigrún Gísladóttir
80 ára
Gyða Guðbjörnsdóttir
Helga Hafdís Gústafsdóttir
75 ára
Birna Sigurbjörnsdóttir
Bjarni Magnússon
Gunnar Örn Haraldsson
Hrefna Haraldsdóttir
Kristinn Jónsson
Ólafur Guðmundsson
Sigríður Björg Dagsdóttir
Sigurður Oddsson
Snorri Guðmundsson
Sæmundur Bjarnason
70 ára
Anna Þórdís Bjarnadóttir
Ásbjörg Emanúelsdóttir
Björgvin Árnason
Gestur Karl Jónsson
Guðný Sigríður Elíasdóttir
Ingibjörg B. Jónsdóttir
Ingólfur Þ. Baldvinsson
Ingunn Þorvaldsdóttir
Jón Ólafur Þorsteinsson
Kristín Jakobína Gísladóttir
Pálmi Ásmundsson
Percy B. Stefánsson
Sigurður Eiríksson
Torfi B. Aspar
60 ára
Bunyat Theepan
Guðmundur Kristjánsson
Guðrún Antonsdóttir
Helga Kristín Bernhard
Kjartan Rolf Árnason
Magnús Skúlason
Margrét Markúsdóttir
María S. Stefánsdóttir
Ólafur Haukur Gíslason
Sigrún Halldórsdóttir
50 ára
Bertina Zofia Gajewska
Guðrún J. Þorbjarnardóttir
Guelmo R. Zanoria Oriol
Iwona Grygo
Jóhanna G. Einarsdóttir
Slavisa Rakanovic
40 ára
Agnieszka A. Boniecka
Alma Björk Ástþórsdóttir
Anna Rós Björgvinsdóttir
Bragi Þór Pétursson
Hlín Rafnsdóttir
Hrönn Grímsdóttir
Ólafur Þorsteinsson
Pálmi F. Guðmundsson
Sólveig Bessadóttir
Þorbjörg A.
Guðmundsdóttir
30 ára
Alexandre M.F. Massot
Alicja Karolina Domagala
Benedikt Halldórsson
Birna Íris Hlynsdóttir
Bjarni Fannar Stefánsson
Einar A. Eymundsson
Federick Alfred U. Capellan
Hlynur Sigurðsson
Höskuldur F. Hermannsson
Ívar Eyfjörð Hólmgeirsson
Joel Jozef Johan Coolen
Kristófer Snær Egilsson
Ramulah Kiiza Nabaasa
Rodrigó Sándor
Selma H. Vilhjálmsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Ívar ólst upp í
Vatnsholti í Staðarsveit,
býr á Neðra-Skarði í Leir-
ársveit, lauk prófi í vél-
virkjun og starfar á
Grundartanga.
Maki: Olga Lára Jóns-
dóttir, f. 1986, nemi.
Börn: Freyja Björk, f.
2006; Snædís Ragna, f.
2008, og Brynjar Þór, f.
2016.
Foreldrar: Ragna Ívars-
dóttir, f. 1967, og Stefán
Þórðarson, f. 1949.
Ívar Eyfjörð
Hólmgeirsson
30 ára Höskuldur ólst
upp á Brimnesi á Fá-
skrúðsfirði, er nú búsett-
ur á Egilsstöðum, lauk
sveinsprófi í kjötiðn og
starfar á beltagröfu í
vegagerð.
Maki: Steinunn Stein-
þórsdóttir, f. 1994, um-
sjónarkennari við Grunn-
skólann á Egilsstöðum.
Foreldrar: Halldóra
Eiríksdóttir, f. 1968, og
Hermann Kristjánsson, f.
1950.
Höskuldur F.
Hermannsson
30 ára Hlynur ólst upp í
Grundarfirði, býr þar, lauk
farmannaprófi og er stýri-
maður á Helga SH.
Maki: María Ósk Ólafs-
dóttir, f. 1982, kennari.
Synir: Ólafur Geir, f.
2012, Vilhjálmur Freyr, f.
2014.
Foreldrar: Sjöfn Sverris-
dóttir, f. 1964, sjúkraliði
við dvalarheimili, og Sig-
urður Ólafur Þorvarðar-
son, f. 1963, skipstjóri.
Þau búa í Grundarfirði.
Hlynur
Sigurðsson
Sigrún Sigurðardóttir hefur varið
doktorsritgerð sína í hjúkrunarfræði
við hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís-
lands. Ritgerðin ber heitið: Kynferð-
islegt ofbeldi í æsku: Afleiðingar og
heildræn meðferðarúrræði (Childhood
Sexual Abuse: Consequences and Hol-
istic Intervention). Umsjónarkennari
og meðleiðbeinandi í verkefninu var dr.
Sóley S. Bender, prófessor við hjúkr-
unarfræðideild Háskóla Íslands. Að-
alleiðbeinandi var dr. Sigríður Hall-
dórsdóttir, prófessor við Heilbrigðis-
vísindasvið Háskólans á Akureyri.
Markmið rannsóknarinnar var að
auka þekkingu og dýpka skilning á af-
leiðingum kynferðislegs ofbeldis í
æsku (e. Childhood Sexual Abuse) hjá
körlum og konum í því skyni að auka
hæfni hjúkrunarfræðinga og annarra
heilbrigðisstétta í að veita viðeigandi
umönnun. Að þróa og skoða reynslu
íslenskra kvenna af heildrænu með-
ferðarúrræði og reynslu af heilbrigð-
iskerfinu. Fyrirbærafræðileg rann-
sóknaraðferð var notuð til að auka
þekkingu og dýpka skilning á afleið-
ingum kynferðislegs ofbeldis í æsku.
Samtals voru 65 einstaklingsviðtöl
lögð til grundvallar í greiningar-
vinnunni í doktors-
verkefninu.
Helstu niður-
stöður rannsókn-
anna voru að af-
leiðingar
kynferðislegs of-
beldis í æsku,
bæði fyrir karla og
konur, voru alvar-
legar fyrir heilsufar og líðan. Þjáning
beggja kynja var mjög djúp og raunar
nánast óbærileg. Þátttakendur töldu
að þeir hefðu ekki fengið nægjanlegan
stuðning og skilning frá heilbrigðis-
starfsfólki, en þátttaka í Gæfuspor-
unum virtist bæta heilsu og líðan
kvennanna sem tóku þátt í þeim.
Kynferðislegt ofbeldi í bernsku get-
ur haft alvarlegar og víðtækar lang-
tímaafleiðingar fyrir heilsufar og líðan,
bæði karla og kvenna. Mikilvægt er
fyrir heilbrigðisstarfsfólk að þekkja
einkenni og afleiðingar kynferðislegs
ofbeldis í æsku til að vera betur í stakk
búið að veita stuðning og viðeigandi
meðferð. Mikilvægt er að halda áfram
að þróa heildræn meðferðarúrræði
einstaklinga sem hafa orðið fyrir
kynferðislegu ofbeldi í æsku.
Sigrún Sigurðardóttir
Sigrún Sigurðardóttir, f. 1968 á Ísafirði, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á
Ísafirði árið 1988 og lögreglumannsprófi frá Lögregluskóla ríkisins árið 1993. Hún lauk
BS-gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2001 og MSc-gráðu í heil-
brigðisvísindum frá sama skóla sex árum síðar, með áherslu á sálræn áföll og ofbeldi.
Hún er lektor við Háskólann á Akureyri. Sigrún á þrjú börn, Signýju Rós 18 ára, Sigurð
Boga 15 ára og Grétu Þóreyju 12 ára með Ólafi Ármanni Óskarssyni sjúkraþjálfara.
Doktor