Morgunblaðið - 25.09.2017, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 25.09.2017, Qupperneq 1
MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 2017 ÍÞRÓTTIR Knattspyrna Ásgeir Börkur Ásgeirsson og samherjar fögnuðu hressilega sigri í Inkassodeildinni í knatt- spyrnu eftir æsilegan endasprett í kapphlaupi við lið Keflavíkur. Gjöf til Fylkis á 50 ára afmæli félagsins. 8 Íþróttir mbl.is Sunna Jóns- dóttir, landsliðs- kona í hand- knattleik, leikur ekkert með sænska liðinu Skara HF á þess- ari leiktíð, eins og til stóð. Hún er ófrísk og á von á sér um miðjan mars. Sunna er þriðja landsliðskonan í handbolta sem ber barn undir belti um þessar mundir. Hinar eru Rut Arnfjörð Jónsdóttir og Steinunn Björns- dóttir. „Ég stefni á að gera eins og margar frábærar handboltakonur sem hafa komið sterkari til baka eftir barnsburð,“ sagði Sunna við Morgunblaðið. iben@mbl.is Sunna ófrísk og úr leik Sunna Jónsdóttir Morgunblaðið/Golli Táknrænt Blikarnir fögnuðu sigri í gær og tryggðu sæti sitt í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Eyjamenn eru áfram í óvissu um veru sína í deildinni. »4-5 FÓTBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Loksins get ég titlað mig atvinnu- mann í fótbolta. Nokkuð sem mig hefur dreymt um síðan ég var lítil stelpa,“ sagði Berglind Björg Þor- valdsdóttir, landsliðskona í knatt- spyrnu, glöð í bragði við Morgun- blaðið í gær. Berglind hefur skrifað undir 10 mánaða samning við ítalska A-deildarliðið Verona. Hún heldur þegar í stað til Ítalíu þar sem deild- arkeppnin hefst á laugardaginn. Hún verður þar af leiðandi ekki með Breiðabliki í lokaleik liðsins í Pepsi- deildinni á fimmtudagskvöldið. Berglind Björg segir að rúmlega hálfur mánuður sé liðinn síðan hún fregnaði fyrst af áhuga forráða- manna Verona- liðsins. Enda- hnúturinn á samninga- viðræðum hennar við félagið var hnýttur á fimmtudaginn en ekki opinberaður fyrr en í gær. „Ég fer nánast beint í fyrsta leik- inn úti,“ sagði Berglind Björg sem kvaddi félaga sína í Breiðabliki á laugardaginn með tveimur mörkum og sigurleik á fráfarandi Íslands- meisturum Stjörnunnar. Breiðablik á enn möguleika á Íslandsmeist- aratitli í lokaumferðinni. Til þess verður allt að ganga upp því Þór/KA hefur tveggja stiga forskot í efsta sæti. „Ég vissi það fyrir leikinn á laug- ardaginn að ég væri að leika minn síðasta leik fyrir Breiðablik að sinni. Þegar í ljós kom að Þór/KA tapaði og við ættum enn von um að verða Íslandsmeistarar voru tilfinning- arnar blendnar að geta ekki tekið þátt í lokaleiknum. Ég treysti á að samherjar mínir vinni leikinn. Hvort það nægir til að við verðum meist- arar kemur bara í ljós.“ Verona varð ítalskur meistari árið 2016 og hafnaði í þriðja sæti á síð- asta keppnistímabili. Nú stefna for- ráðamenn Verona hærra á komandi leiktíð að sögn Berglindar auk þess sem vaxandi áhugi er fyrir kvenna- fótbolta á Ítalíu en m.a. hefur hið mikla knattspyrnuveldi Juventus komið á fót sterku kvennaliði sem er ætlað að koma, sjá og sigra. Forráðamennn Verona hafa safn- að að sér leikmönnum m.a. frá Bandaríkjunum og einnig Englandi, þar á meðal frá Manchester City. Fyrir hefur Verona-liðið á að skipa ítölskum landsliðskonum. „Ég er einstaklega spennt fyrir að koma í þetta umhverfi og spreyta mig í þessari sterku deild,“ sagði Berglind sem fór út með næturflugi í nótt og mætir á æfingu síðdegis á morgun. Fyrsti leikur Verona í A-deildinni verður á laugardaginn. Keppnistímabilinu á Ítalíu lýkur 12. maí. Þá er gert ráð fyrir að Berg- lind Björg mæti til leiks með Breiða- bliki í úrvalsdeildina. „Það hentar af- ar vel því keppnin á Íslandi hefst yfirleitt ekki fyrr en um miðjan maí,“ sagði Berglind Björg Þor- valdsdóttir, næstmarkahæsti leik- maður Pepsi-deildar kvenna í sumar með 15 mörk. Loksins rætist draumur  Næstmarkahæsti leikmaður úrvalsdeildar kvenna leikur á Ítalíu í vetur Berglind Björg Þorvaldsdóttir Birgir Leifur Hafþórsson, at- vinnukylfingur úr GKG, lauk leik á Kasakstan Open í Almaty í Kasakstan á fjór- um höggum und- ir pari og endaði í 41.-45. sæti. Birgir Leifur lék fjórða og síð- asta hringinn í gær á pari vallarins, 72 höggum, og endaði því á fjórum höggum undir pari í heildina. Hann fékk tvo fugla og tvo skolla í gær. Verðlaunafé á þessu móti, sem er liður í Áskorendamótaröð Evrópu, er með þvi hæsta sem gerist á móta- röðinni og því voru flestallir sterk- ustu kylfingar mótaraðarinnar mættir til leiks. Kappinn er í harðri baráttu um að komast í hóp fimmtán efstu á peningalista mótaraðarinnar en það myndi tryggja honum keppn- isrétt á Evrópumótaröðinni. Hann er í 19. sæti á listanaum eftir mótið um helgina. skuli@mbl.is Birgir Leifur fjórum undir í Kasakstan Birgir Leifur Hafþórsson Íslenska pilta- landsliðið í golfi endaði í 4. sæti í 2. deild EM í Pól- landi þar sem veður setti strik í reikninginn. Ekkert varð af síðustu viðureign liðsins, sem átti að vera við Belg- íu, en með sigri þar hefði liðið náð þriðja sætinu og þar með sæti í fyrstu deild að ári. Strákarnir í fjórða sæti Ingvar Andri Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.