Fréttablaðið - 11.05.2018, Blaðsíða 14
Tilkynna þarf endanlegan
23 manna HM-hóp 4. júní.
Fyrir EM 2016 tilkynntu
Heimir Hallgrímsson og Lars
Lagerbäck 23 manna hóp
9. maí. Sex leikmenn voru á
biðlista en þeir þurftu að vera
klárir ef kallið kæmi.
43
leikmenn hefur Heimir Hall-
grímsson notað síðan Ísland
tryggði sér sæti á HM.
FÓTBOLTI Heimir Hallgrímsson til-
kynnir í dag íslenska hópinn sem
fer á HM í Rússlandi í næsta mánuði.
Heimir hefur sagt að hann muni fara
sömu leið og fyrir EM 2016. Þá völdu
þeir Lars Lagerbäck strax 23 manna
hóp en sumir landsliðsþjálfarar fara
þá leið að velja stærri hóp og skera
svo niður.
Þátttökuliðin á HM þurfa að vera
búin að tilkynna hóp 14. maí og
endanlegur 23 manna hópur þarf
að vera klár 4. júní.
Að þessu sinni eru baráttusætin í
íslenska hópnum aðeins 3-4. Ingvar
Jónsson, Ögmundur Kristinsson og
Frederik Schram berjast um stöðu
þriðja markvarðar á eftir Hannesi
Þór Halldórssyni og Rúnari Alex
Rúnarssyni.
Ingvar er ólíklegastur af þessum
þremur til að fara til Rússlands.
Hann hefur aðeins leikið tvo lands-
leiki frá EM og lítið spilað með sínu
félagsliði, Sandefjord, í upphafi
tímabils. Frederik lék vináttulands-
leikinn gegn Perú í lok mars og það
kæmi lítið á óvart að hann færi til
Rússlands.
Jón Guðni Fjóluson, Hjörtur
Hermannsson og Hólmar Örn
Eyjólfsson berjast svo um stöðu
fjórða miðvarðar. Hjörtur var í EM-
hópnum en hefur lítið sýnt í þeim
landsleikjum sem hann hefur fengið
síðan þá. Það vinnur þó með Hirti
að hann getur leyst stöðu hægri
bakvarðar. Jón Guðni hefur staðið
sig vel í Svíþjóð undanfarin ár og lék
allan leikinn og skoraði gegn Perú.
Rúrik Gíslason fór ekki á EM en
verður að öllum líkindum í HM-
hópnum. Ólafur Ingi Skúlason fór
ekki til Frakklands en hefur verið
í hópnum síðan þá og verið fyrir-
liði í nokkrum leikjum. Meiðsli
Arons Einars Gunnarssonar auka
líkur Ólafs Inga á að fá farseðil til
Rússlands. Arnór Ingvi Traustason
átti eftirminnilegt EM en gæti setið
heima að þessu sinni. Hann fékk
aðeins 33 mínútur í leikjunum í
Bandaríkjunum í mars.
Síðan er spurning hversu marga
framherja Heimir velur í HM-hóp-
inn. Alfreð Finnbogason og Jón Daði
Böðvarsson eru öruggir og Björn
Bergmann Sigurðarson fer líklega
með. Albert Guðmundsson hefur
nýtt tækifæri sín með landsliðinu
vel og sömu sögu er að segja af Kjart-
ani Henry Finnbogasyni. Þeir gætu
báðir farið með til Rússlands. Viðar
Örn Kjartansson situr væntanlega
eftir eins og fyrir tveimur árum.
ingvithor@frettabladid.is
Fá baráttusæti
Baráttusætin í íslenska HM-hópnum sem Heimir
Hallgrímsson tilkynnir í dag eru ekki mörg.
Ísland mætir Noregi og
Gana í vináttulandsleikjum á
Laugardalsvelli áður en haldið
verður til Rússlands.
25%
Vinur við veginn
Smellugashylkin eru sterk en
mjög létt og þægileg í
meðförum. Skipt er um hylki
með aðeins einu handtaki.
Gasáfyllingin fæst með 25%
afslætti til 13. maí.
AFSLÁTTUR AF
SMELLUGASI
TIL 13. MAÍ
1 1 . M A Í 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Rúnar Alex
Rúnarsson
Albert
Guðmundsson
Theodór Elmar
Bjarnason
Haukur Heiðar
Hauksson
Kolbeinn
Sigþórsson
Arnór
Smárason
Kári Árnason
Hörður Björgvin
Magnússon
Aron Einar
Gunnarsson
Birkir
Bjarnason
Ólafur Ingi
Skúlason
Björn Bergmann
Sigurðarson
Rúrik Gíslason
Samúel Kári
Friðjónsson
Aron
Sigurðarson
Hannes Þór
Halldórsson
Ragnar
Sigurðsson
Ari Freyr
Skúlason
Emil Hall-
freðsson
Alfreð
Finnbogason
Birkir Már
Sævarsson
Sverrir Ingi
Ingason
Jóhann Berg
Guðmundsson
Gylfi Þór
Sigurðsson
Jón Daði
Böðvarsson
Ögmundur
Kristinsson
Hólmar Örn
Eyjólfsson
Ingvar
Jónsson
Rúnar Már
Sigurjónsson
Viðar Örn
Kjartansson
Frederik
Schram
Jón Guðni
Fjóluson
Hjörtur
Hermannsson
Arnór Ingvi
Traustason
Kjartan Henry
Finnbogason
✿ Öruggir með sæti í hópnum ✿ Mjög líklegir ✿ Eiga möguleika ✿ Eiga fjarlæga möguleika
1
1
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
E
-1
6
9
C
1
F
B
E
-1
5
6
0
1
F
B
E
-1
4
2
4
1
F
B
E
-1
2
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K